Studia Islandica - 01.08.1937, Qupperneq 12

Studia Islandica - 01.08.1937, Qupperneq 12
10 Níð Þorkels háks og Þóris um GuÖmund ríka er ekki nefnt í 1.—4. kap. Þess veg-na álítur Erichsen skipt um söguupphaf. Þetta er missýning; hún skilur ekki list sögunnar í meðferð níðsins. Konur tala fyrst um það í 13. kap., dult og vandræða- lega, eins og vera bar. Launungin eitrar illmælið; það ískrar kring um Guðmund. Hann finnur, að skugginn á sæmd hans hverfur ekki nema við fulla hefnd. Hefndin tekst að lokum. Þá væri illmælið afmáð, ef kjarni þess hefði ekki verið falinn til síðustu stundar, þegar Þorkell er sár til ólífis. Guðmundur get- ur þá ekki hefnt oftar né meir. En Þorkell hefnir sín enn. Síð- ustu orð hans skýra illmælið til fulls: Möðruvallagoðinn er rag- ur kynvillingur. Tengslin milli 1.—4. kap. og 13.—31. kap. eru veik, en þó viðunandi. Efnið, sem fyrir höfundi lá, hefur lík- lega verið svona ósamfellt og hann ekki ort í eyðurnar meir en þurfti. Ekkert, sem stendur í 1.—4. kap., er óhæft til að standa í upphafi Ljósv. Erichsen hefur hvorki sýnt þar vöntun né viðbætur með nægum rök- um. Kenningin um, að skipt sé um upphaf, er því óþörf og fallin úr gildi. Upphafið gæti verið eitthvað saman- dregið, en ekki er það nema ósannanlegur möguleiki. Erichsen hefur borið stíl þess saman við 13.—18. kap. í C og fundið glöggan mismun. En hefði hún borið sam- an við A 13.—18. eða 19.—31. kap., væri mismunur- inn hverfandi. Því næst má víkja að tengslunum milli fyrri og seinni hluta Ljósv. Mannsaldur líður milli 21. og 22. kap. Þess vegna hafa sumir talið 22.—31. kap. sjálfstæða sögu, sem afritari hafi skeytt við Ljósv. í 21. kap. þrýtur A til fulls. En áður er komin spá Drauma-Finna um hefnd eftir Þorkel og spá Þórhildar um dauða einhvers af sonum Guðmundar. Þetta sýnir, að seinni hluti Ljósv. hefur verið í A-gerðinni, meðan hún var heil. í seinni hlutanum er margsinnis minnt á eldri f jandskap og víg Þorkels. Erichsen hefur sýnt prýðilega samhengið við fyrri hlutann og rökrétt framhald hefndanna. Hún

x

Studia Islandica

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.