Studia Islandica - 01.08.1937, Side 18
16
A
sáttaumleitun Einars. En Ein-
ar bregzt þá bróður sínum og
.styður Þóri. 6V2 bls.
Þingreið og þingdeilur. (Vant-
ar að mestu í handritið nema
upphaf og endi. Hefur sam-
svarað rúmum 4 bls.)
Ráðning Þorsteins rindils.
Heimför af alþingi. Utanfar-
ir Þóris Helgasonar. Njósnar-
för til Þorkels háks og aðdrag-
.andi að vígi hans. 5 bls.
c
sáttatilraunir Einars árang-
urslausar. Einar segir upp
tryggðum við bróður sinn og
veitir Þóri. 4 bls.
Þingreið og þingdeilur. 5 bls.
Utanfarir Þóris Helgasonar.
Ráðning Þorbjarnar rindils,
heimför af alþingi og njósnar-
för til Þorkels háks; aðdrag-
andi að vígi hans. Rúmar 5
bls.
Nánar má benda á, hvað felst í þessum mismun. I
fyrsta lagi vantar alveg í C fjörráð Einars Konáls-
sonar við Þorkel hák. Sömuleiðis vantar þá fyrirætlun
Guðmundar á alþingi, að bæta Þorkel með bótum frá
Þóri. Við það slitnar að mestu samhengið milli „þátt-
-arins“ af Þóri og söguframhaldsins. Þáttaskiptin verða
snemma í 18. kap., þar sem ekki er andartaks hlé í A,
heldur stígandi eftirvænting eftir vígi Þorkels háks.
Þáttaskiptin virðast gerð af ráðnum huga í C. Að lok-
inni alþingisfrásögn segir A-textinn af fyrstu utanför
Þóris, en hnýtir við það stuttri grein um síðari utan-
farir hans. Þessi grein er ekki alveg í réttri tímaröð,
en þó mundu flestir söguhöfundar hafa sett hana á
þennan stað. í C er utanfaranna allra getið inni í miðri
alþingisfrásögn. Það er aftur á móti svo sjaldgæft og
alvarlegt brot á réttri tímaröð, að það hlýtur að vera
gert viljandi. Höfundur C-textans vill m. ö. o. ekki búa
undir víg Þorkels, fyrr en Þórir Helgason er úr sög-
unni.
Fyrir bragðið er eins og höfundur C-textans gefi
.sér meira tóm. A er að m.eðaltali fjórðungi styttri og
■