Studia Islandica - 01.08.1937, Blaðsíða 19

Studia Islandica - 01.08.1937, Blaðsíða 19
17 segir þó nákvæmar af sumum atvikum, einkum í njósn- arförinni til Þorkels. En C hefur miklu lengri samtöl og margfaldar söguna af Akrakarli. Þetta sýnir ann- an sögusmekk en í A. En auk þess stafar það annað- hvort af ólíkum sögnum eða ólíkum persónuskilningi, eins og rætt verður um í greinarlok. Mesti ágreiningurinn er sá, að Þórir Helgason er 1 C sekur um fjárdrátt, en saklaus í A um allt slíkt. En undarlega breytir þetta lítið atburðarásinni. Hér virð- ist vera tvenns konar sagnfræðilegur skilningur á vafa- málinu, verknaði Þóris, en enginn teljandi þekkingar- munur. I greinarlok skal ég rekja, hvernig ótal smábreyt- ingar hefur leitt af aðalbreytingunum og af smekkmun höfundanna. Ég get fullyrt það strax, að frábrigðin, sem sýnast margbreytt og flækt hvert inn 1 annað, geta stafað af örfáum, skjótvirkum orsökum, ef á þau er horft frá því sjónarmiði, að C hafi breytzt, en A hald- izt í upprunalegri mynd. Á hinn bóginn þarf ekki ann- að en bera saman fáeinar blaðsíður, t. d. um Akrakarl eða Einar á Þverá, til að sannfærast um það, að A get- ur ekki stafað frá C eða neinni þvílíkri gerð. Þetta er aðeins bending um, hvor gerðin sé eldri. Hitt skiptir meiru í þessu sambandi, hvor þeirra er samkvæmari sjálfri sér. Þar er afarmikill munur, eins og síðar mun birtast, — einkum eðlismunur á samkvæmninni. — Eitt atriði stingur sérstaklega í augu: Víg Þorkels háks er þyngdarpunktur Ljósv. í báðum gerðum, en undirbúningur þess er vanræktur í C. — Annað er líka ómótmælanlegt: I hvorugri gerðinni er hefnd Guð- mundar fyrir illmælið drengilega unnin. Enda verður hún sýndarsigur, því að Þórir hlýtur ekki tjón af og víg Þorkels hefnir sín margfaldlega. Þá er það ósam- kvæmni í C, að láta Þóri falla á eigin bragði, hafra- leyndinni. Hitt er eðlilegt í A, að Guðmundur noti logna sök. A er þannig samfelldari heild og róttæk í með- 2

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.