Studia Islandica - 01.08.1937, Blaðsíða 21

Studia Islandica - 01.08.1937, Blaðsíða 21
19 leik sögunnar. Þessar 18 „því at“-setningar gefa ástæðu íil að tala um sjaldgæfan skýringaráhuga í C 13.—18., ólíkt meiri en annars í Ljósv. En í A 13.—18. eru 332 línur. Þar væri meðal- tíðleik sögunnar náð, ef þar væri einni „því at“-setning fleira en er. Rök Erichsens fyrir þvi, að C 13.—18. sé samkynja sögunni, eru allmörg (bls. 55—60) og verða varla fundin fleiri. Sum snú- ast fremur móti henni en með, ef þau eru rannsökuð. En hin eru varla nógu áþreifanleg til þess, að hægt sé að gagnrýna þau. En svo langt sem athuganir mínar á sögustílnum ná, benda þær eindregið á sama höfundarbrag á allri A-gerðinni, en annan á C 13.—18. Merkastar í því efni eru samræðurnar. I 1.—4. kap. og 19.—31. kap. eru samtölin 43 % og rnjög líkt í A 13.—18. eða 41 %. En í C 13.—18. eru samtölin 53 %, og ep það óvenju hátt hlutfall í eldra hópi íslendinga sagna. Það var markmið þessa greinarkafla að finna, hvort það er heldur A eða C, sem er ósamkynja heild. Markmiðið næst ekki að fullu, nema ný leið sé valin. En það hefur áunnizt, að dóm- ur Erichsens villir ekki lengur og tími er kominn til að gera nýja leiðsögutilgátu eftir fengnum bendingum. IV. RITTENGSL MILLI GERÐANNA C OG A. Setjum svo, að A sé hin upprunalega Ljósv., en C önnur útgáfa aukin og endurbætt. Til þess að þetta verði sennileg tilgáta, þarf að benda á gildar ástæður fyrir breytingum, sem höfundur C 13.—18. hefur þá gert á frumtexta sínum, A 13.—18. Viðbætur í C geta hins vegar verið eftir ýmsum heimildum eða aiger skáldskapur. Þessi tilgáta um myndun C 13.—18. hef- ur sótt á menn fyrr. Knut Liestöl mótmælir henni sterk- lega.1) Hann byggir á niðurstöðum Erichsens og reikn- ar með því, að frábrugðnu kaflarnir í A og C hafi 1) Liestöl, Upphavet til den islendske ættesaga, Oslo 1929, 'bls. 50—55. Uppruni íslendinga sagna, Rvik 1937, bls. 40—45. Sbr. Maal og minne 1936 bls. 4 o. áfr. 2*

x

Studia Islandica

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.