Studia Islandica - 01.08.1937, Page 22

Studia Islandica - 01.08.1937, Page 22
20 klofnað löngu fyrir ritunartíma og munnlegu sögu- brigðin þróazt eftir það óháð hvort öðru. Rök hans eru fern (útskýringum sleppt úr) : 1. Gleymska hefur vald- ið breytingum. Gerðirnar vantar hvora um sig atriði, sem hin hefur. 2. Röð atriða er breytt. T. d. færast mest öll skipti Guðmundar ríka við Einar bróður hans fram fyrir sektardóm Þóris Akrakarls í C, en smásaga úr æsku þeirra bræðra færist í hina áttina og í nýtt samhengi. 3. Munur gerðanna kemur skýrast í ljós í smáatriðum, eins og þeim nafnabreytingum, að far- maðurinn heitir Ingjaldur í A, en Helgi Arnsteinsson í C; Rindill og Akrakarl heita Þorsteinn og Þorgils í A, en Þorbjörn og Þórir í C; sá, sem vísar Þóri til hafr- anna, er sauðamaður Guðmundar í annarri gerðinni og nafnlaus, en í hinni heitir hann Oddur og er hjú Þóris. 4. í þesum kafla Ljósv. er alþjóðleg farandsögn, og telur Liestöl hana þá einu, sem komi fyrir nokkurn veginn óbreytt í íslendinga sögum. Það er smásagan úr æsku bræðra. Honum finnst auðséð af orðamun þess- arar sagnar í gerðunum og lengdarmun (121:155 orð), að tengsl þeirra séu aðeins munnleg. í svo einfaldri, auðskilinni sögn, sem er í föstu formi gamallar þjóð- sögu og a. m. 1. laus úr samhengi Ljósv., mætti búast við meira samræmi milli textanna en í öðrum köflum, ef sögubrigðin væru munnleg. Þetta reynist líka þann- ig við athugun, og Liestöl gefur í skyn, að það mæli móti rittengslum. Að lokum segir hann, að fram megi færa heila „röð af öðrum sönnunum“ fyrir skoðun Erichsens um munn- leg sögubrigði. En gallinn er sá, að engin „sönnunin“ nær lengra en það að sýna, að ekki sé fjarstæða að trúa því, að sögubrigðin séu munnleg. Röksemdirnar um munnleg sögubrigði í farandsögn- inni eru ekki áþreifanlegar. Mismunur textanna er alls ekki þess eðlis, að hann útiloki rittengsl. Því síður ger- ir hin nána líking það. Liestöl hefur í rauninni sýnt

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.