Studia Islandica - 01.08.1937, Page 34

Studia Islandica - 01.08.1937, Page 34
32 ;sauðamaður varla getað rekizt á hafrana. Bærinn Skúta(r), þar sem Oddur situr fyrir Guðmundi í A, fellur að sjálfsögðu úr C, og eins bærinn Steðji, sem í A er tengdur við afsakanir á Þóri Helgasyni. Engin ný örnefni koma í þessara stað og ekkert, sem sýnir, hvort höfundur C-textans hefur komið í Hörgárdal eða ekki. Ef sagan missir jarðfestu við þetta, fær hún e.k. uppbót í því, hve Akrakarl stækkar tilsýndar. Það er ekki nóg, að lengdin á sögu hans margfaldast, heldur getur hann gefið Þóri Helgasyni 30 hafra í stað hinna 10, sem Oddur vísaði til, „mikit fé“ verður ,,afarfé“, og lýsingin „ekki mjök vinsæll né trúr í kaupum“ verður: „— eigi vinsæll ok slægr í kaupum við menn,--------- hefir hann sök á hverjum manni ok vélar lengi haft; hefir hann saman dregit of fjár“. — Að öðru leyti eru breytingarnar á þessari aukapersónu ómerkilegar. Rindill aftur á móti breytir eðli, en verður sízt stærri. Eftir líkum að dæma er það skilningur C-ritarans á Guðmundi ríka, sem veldur beint eða óbeint einna mest- um breytingum frá A-textanum. Þetta getur skýrt að nokkru breytinguna á Rindii. Það er viðfangsefni 18. kap. að gera Rindil úr garði sem flugumann til Þor- kels háks og lýsa njósn hans. í þessum kap. í A er mynd Guðmundar dauf, en Rindils glögg. Hann er öllum mönnum ógæfulegri, svo að Guðmundur tregðast við að taka hann í vist á alþingi. Samt er hann skotlegur í bragði og notar hvert tækifæri til að gera sig merki- legan. Hann er sjálfkjörinn flugumaður, svo að Guð- mundur kemst ekki að með ráðkænsku sína og uppeld- isaðferðir til að gera úr honum flugumann. Það er þessi fullkomnun Rindils og framsækni hans, sem ger- ir Guðmund aðgerðalítinn og daufan í A. C bætir á sinn hátt úr því, a. n. 1. á kostnað Rindils. I C verður Guðmundur fyrri til að uppgötva Rindil en Rindill hann, en öfugt í A. Myndin, sem lesandinn fær smátt og smátt af Rindli í A, er í C dregin saman

x

Studia Islandica

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.