Studia Islandica - 01.08.1937, Page 37
35
ek fyrir þá sök“. Það mætti ætla, að höfundi C-textans
hafi þótt missir að svo snjöllum svörum. En raunar
eru þau óskyld stíl hans, vantar mýkt hans, og í öðru
lagi rúmast þau ekki í C fyrir orðastraumi Guðmund-
ar. Orð Guðmundar í C: „Ek mun setja til ráðit“, eru
tekin frá Rindli, eins og orð hans fyrr í C: „Fédrjúgir
verða þeir nú, þingmenn Þóris“, eru til dæmis tekin frá
Oddi sauðamanni. Slíkir smámunir eru tákn þess, hvern-
ig höfundur C-textans fer að því að auðga Guðmund
hinn ríka.
Nú má víkja frá persónulýsingum að nafnabreyting-
um í C. Fyrsta og mesta breytingin er það, að Helgi
Arnsteinsson, íslenzkur farmaður, er settur í stað Ingj-
alds austmanns. Hér virðist ekki vera um frábrugðna
sögn að ræða, því að Helgi fær hlutverk Ingjalds
óbreytt. Á hinn bóginn er ótrúlegt, að nafnið sé val-
ið út í bláinn, m. a. af því, hve nafnið Arnsteinn er fá-
gætt. Þá liggur næst að halda, að Helgi Arnsteinsson
sé gripinn úr einhverri ættartölu, þar sem hann kann
að hafa verið nefndur farmaður og jafnvel settur í eitt-
hvert samband við Guðmund ríka. Um þetta verður
fátt fullyrt, en þó er vafalítið, hverrar ættar Helgi Arn-
steinsson hefur verið.1) Landnáma getur einskis Arn-
steins nema Arnsteins goða Reistarsonar. Ljðsv., 4.
kap., segir frá því, er Arnsteinn frá Ærlæk í Öxar-
firði missti goðorð sitt um 990, og er það líklega sami
maður, nokkuð við aldur. Njála (138. kap.) telur Hróa
Arnsteinsson með forráðamönnum Öxfirðinga 1011.
Vel færi á því, að Helgi Arnsteinsson í Ljósv. væri
bróðir þess Hróa og þeir væru synir Arnsteins á Ær-
læk. En sé svo, er höfundi C-gerðar Ljósv. það ekki
ljóst; hann setur ekki Helga í nokkurt samband við
skipti Arnsteins og Guðmundar ríka í 4. kap. Það 'bend-
ir til, að heimild hans um Helga hafi verið mögur eða
1) Bending- frá Sigurði Nordal.
3*