Studia Islandica - 01.08.1937, Side 38

Studia Islandica - 01.08.1937, Side 38
36 notuð óvandlega. Ef til vill er nafn Helga varðveitt í Reykdælu (6. kap.). Þar segir frá Hróa í Klifshaga, sem þá virðist mestur fyrir sér af Öxfirðingum, og af falli Helga bróður hans. Þessir bræður eru heldur snemma uppi til þess að vera synir Arnsteins goða á Ærlæk. (Þeir gátu þó a. m. k. vel verið synir .Arnsteins goða Reistarsonar.) Hitt er meiri agnúi, að fall Helga, bróður Hróa, verður samkvæmt Reykdælu 20—50 ár- um fyrr en mál Akrakarls í Ljósv. En höfundur C-text- ans hefur varla vitað þetta og er vís til að hafa tekið þennan Helga (Arnsteinsson), d. fyrir 980, úr ættar- tölu inn í frásögn sína um atvik eftir 1000. Vafalaust hefur C-ritarinn þekkt ýmsar ættartölur. Þannig má skýra, að hann nefnir konu Þorkels háks Þorgerði, en nafn hennar kemur hvergi fram annara staðar. Nafn Guðrúnar dóttur þeirra gæti verið tekið eftir Ljósv. 2473 og gizkað á, að hún hafi verið 4 ára við víg Þorkels. Eftir lok frábrugðna kaflans, Ljósv. 20d (neðanmáls), hefur C innskotssetning, sem gæti stafað frá sömu ættartölu og nafn Þorgerðar. Eftir orð- in í A: „Guðríðr, er Þorgeirr goði átti“, bætir C við: „en eigi Hjalti Eiríksson“. Hjalti er ókunnur og inn- skotið sérkennilegt fyrir ættaskrár, en fjarlægt sögu- venjum. Nafnbreyting Akrakarls og Rindils kemur ekki frá ættartölum. Þeir eru föðurnafnslausir. Og varla hafa þeir orðið kynsælir. Breytingin stafar annaðhvort af sagnamun eða geðþótta C-ritarans, sem hefur kannske viljað auka nýjabragð ritsmíðar sinnar með þessu. Þjóðsagnafræðingar munu eigna það munnlegri sögn, að Akrakarl fær í C sama nafn og goði hans, um leið og barátta goðans við Guðmund færist að miklu leyti yfir á Akrakarl. Víst er það mögulegt. En nafnbreyt- ingin ein sér er engin sönnun fyrir tilveru slíkrar sagn- ar. Höfundur C-textans var víst nógu laus við sagn- fræðilega íhaldssemi til að gera nafnfærsluna um leið

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.