Dagblaðið Vísir - DV - 19.03.2021, Síða 33
Heiðar Örn Kristjánsson
7. september 1974
Meyja
n Metnaðarfull
n Traust
n Góð
n Vinnuþjarkur
n Of gagnrýnin
n Feimin
Kolbrún Haraldsdóttir
7. janúar 1981
Steingeit
n Ábyrg
n Öguð
n Góður stjórnandi
n Skynsöm
n Besserwisser
n Býst við hinu versta
V ið óskum tónskáldinu Hildi Guðnadóttur til lukku með lífið en hún vann á dögun-um Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína í
kvikmyndinni Joker. Í fyrra vann hún Óskarinn
fyrir tónlist sína í þáttunum Chernobyl. Það er
því tilvalið að rýna í spilin fyrir Hildi.
Hildur er fædd í byrjun september og því
fædd í Meyjumerkinu. Meyjan er afar vandvirk
og mikil tilfinningavera. Hún er þekkt fyrir að
vera skipulögð og þarf góða rútínu til þess að
fúnkera. Hún er alveg til í alls konar flipp en
þarf bara að fá að vita það með smá fyrirvara
til þess að undirbúa sig andlega. Meyjan er
jarðarmerki og því jarðbundin týpa að eðlisfari.
Þær þurfa að vera jarðtengdar, bókstaflega með
tærnar í grasinu.
Tvistur í Bikurum
Sameinuð ást | Samstarf | Gagnkvæm virðing
Það er mikil ást og umhyggja sem ríkir í þessu spili. Hér
eru tveir einstaklingar sem eru til staðar hvor fyrir annan
og gefa sér tíma til þess að sjá og skilja þarfir hvors
annars. Þetta virðist ekki vera ný ást heldur bara stað-
festing á einhverju sem er nú þegar. Mögulega ertu að
kafa enn dýpra í það samband sem þú ert í. Sambandið
virðist færast á nýtt þroskastig, þar sem allir fá að vera
fullkomlega þeir sjálfir.
Fjarki í Sverðum
Hvíld | Slökun | Hugleiðsla | Íhugun | Endurreisn
Þetta spil minnir þig á að hlúa vel að sjálfri þér. Þú átt það
til að gleyma þér og jafnvel ofgera þér því metnaðurinn
er svo mikill. Það er mikil lukka sem umvefur þig og tæki-
færin laðast að þér. Til þess að takast á við þessi tækifæri
þarf maður að vera með góðan grundvöll og innri styrk.
Hlustaðu vel á innsæi þitt og finndu hvað það er sem þú
þarft að gera til þess að vera besta útgáfan af sjálfri þér.
Flónið
Upphaf | Sakleysi | Sjálfsprottið | Frjáls andi
Mér finnst þetta svo skemmtilegt spil. Það er svo mikill
leikur og ævintýri sem fylgir því. Þetta er klárlega tákn
um nýtt og spennandi upphaf. Það er svo mikil barnsleg
orka sem fylgir þessu spili að ef það er ekki bara bók-
staflega barn á leiðinni eða í planinu þá gæti þetta verið
Skilaboð frá spákonunni
Gefðu þér tíma til þess að taka ákvarðanir.
Það liggur ekkert á.
STJÖRNUSPÁLESIÐ Í TAROT Hildur Guðnadóttir
SVONA EIGA ÞAU SAMAN
Vikan 19.03. – 25.03.
Frjósamt tímabil...
Botnleðjubarn á leiðinni
MYND/SIGTRYGGUR ARI
stjörnurnarSPÁÐ Í
H eiðar Örn Kristjánsson, betur þekktur sem Heiðar í Botnleðju, á von á barni með kærustu sinni, Kollu Haralds-
dóttur. DV lék forvitni að vita hvernig parið á
saman ef litið er til stjörnumerkjanna.
Heiðar er Meyja og Kolbrún er Steingeit.
Bæði deila þau þeim hæfileika að geta átt skýr
og heiðarleg samskipti. Samtöl þeirra verða
bara betri með tímanum, rétt eins og samband
þeirra.
Pörun þessara tveggja stjörnumerkja getur
eiginlega ekki klikkað. Kynlífið er töfrandi,
ástin er ótrúleg. Þetta verður varla betra.
Þegar þau verða ástfangin verða þau helguð
hvort öðru. Annað hvort er sambandið alvar-
legt og merkingarbært, eða þau geta alveg
eins sleppt þessu. Þau veita markmiðum og
draumum hvors annars skilning og deila sömu
framtíðarsýn.
Fjölskyldan skiptir Meyjuna og Steingeitina
miklu máli, en einnig virðing og tryggð. Þetta
er par sem verður saman til endaloka. n
MYND/TWITTER
Hverjar eru þarfir þínar þessa vikuna
samkvæmt stjörnumerkinu þínu?
Hrútur
21.03. – 19.04.
Þarfir hrútsins þessa dagana
snúast um að deila álaginu og þá
sérstaklega heima við. Þú þarft
ekki að sjá um allt saman en þarft
þá kannski líka að sleppa takinu og
læra að úthluta verkum til annarra
sem búa undir sama þaki.
Naut
20.04. – 20.05.
Þarfir nautsins að þessu sinni eru
eitthvað nýtt plan. Þér líður ekkert
sérlega vel í óvissunni og vilt í það
minnsta hafa gott markmið sem
þú getur unnið markvisst að því að
ná. Það þýðir ekkert lengur að bíða
eftir öðrum, þú þarft að finna þína
stefnu.
Tvíburi
21.05. – 21.06.
Tvíburinn þarf innblástur þessa
vikuna. Við mælum með að þú veljir
þér nokkrar áhugaverðar heim-
ildarmyndir um fólk sem gerir eitt-
hvað skapandi og hlustir á einhver
uppbyggjandi hlaðvörp til að koma
þér í gírinn.
Krabbi
22.06. – 22.07.
Krabbinn þarf smá andlegan
stuðning þessa vikuna. Hann vill
láta hlusta á sig og að aðrir sjái
hann. Þú biður ekki oft um athygli
en átt hana svo sannarlega skilið
því þú veitir öðrum svo mikla at-
hygli og ást. Þú er mannlegur eins
og við hin, manstu.
Ljón
23.07. – 22.08.
Ljónið þyrstir í gott make-over.
Því leiðist ekki að endurskapa sig
og hefur gaman af því að sýna
persónuleika sinn með fatastílnum
sínum. Tilvalin vika til að taka til
í fataskápnum og skella sér svo í
næstu nytjaverslun.
Meyja
23.08. – 22.09.
Meyjan þarf ráð þessa vikuna. Þú
ert venjulega sú sem gefur öllum
öðrum ráð og þú verður að viður-
kenna að þú átt til að vera smá
besserwisser stöku sinnum. En að
þessu sinni leitar þú að svörum og
vilt fá að heyra reynslusögur frá
öðrum.
Vog
23.09. – 22.10.
Vogin er alltaf á andlegu brautinni
og sækir í alls konar heilun þessa
daga til að heila gömul sár og
halda svo áfram enn sterkari og
sjálfsmeðvitaðri um þarfir sínar og
langanir. Einn góður jógatími gæti
verið málið fyrir þig.
Sporðdreki
23.10. – 21.11.
Þú kannt að gera vel við þig og
veist líka að þú þarft á því að halda
að slaka vel á inn á milli þess að
sigra heiminn. Þarfir þína liggja
helst í góðu djúpnuddi til að byggja
upp taugakerfi þitt.
Bogmaður
22.11. – 21.12.
Bogmaðurinn þarf eitt gott hláturs-
kast alveg þannig að tárin leka
niður kinnarnar og þú færð krampa
í magann. Hann nennir ekki hvað
lífið er stundum alvarlegt og vill
eiga eina létta og góða viku með
sínu fólki.
Steingeit
22.12. – 19.01.
Útrás er þér ofarlega í huga. Kick
box-æfing, sprettir eða öskur í
náttúrunni gæti verið svarið fyrir
þig til að losa um smá spennu. Þú
segir ekki allt upphátt og átt til
að vera meðvirk í sumum málum,
útrás af einhverjum toga er svarið
fyrir þig.
Vatnsberi
20.01. – 18.02.
Vatnsberinn þráir ævintýri.
Aðstæður alheims eru þér ekki
auðveldar, þig langar að bóka flug
helst á morgun og upplifa nýja
menningu. Prófaðu að vera túristi
í eigin landi og plana skemmtilega
menningarferð innanlands.
Fiskur
19.02. – 20.03.
Fiskurinn er sá sem segir upp-
hátt að hann þurfi ekki á fleiri
vinum að halda. Hans innri kjarni
dugar honum vel, hann elskar líka
að rækta sinn innri heimaalning.
Fiskurinn þráir að vera undir teppi
þessa vikuna með kakó og góða
bók. Hans eigin félagsskapur dugar
honum.
einhvers konar nýtt sköpunarverk sem tengist barnæsku
og nostalgíu. Ástæðan fyrir því að þetta spil er svona
spennandi er að þetta er tímabil þar sem maður fer út
fyrir þægindarammann, í smá óvissu þar sem þú veist ekki
nákvæmlega hver útkoman verður en ert samt til í að taka
skrefið og prófa eitthvað nýtt.
FÓKUS 33DV 19. MARS 2021