Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR
OFBELDI GEGN LÖGREGLU
TEKIÐ VETTLINGATÖKUM
Fjöldi ákæra hefur verið gefinn út síðustu misseri vegna árása á lögreglu-
menn. Þrátt fyrir nokkuð rúman refsiramma er ljóst að hann er afar sjaldan
nýttur nema að mjög litlu leyti. Mútur og líflátshótanir meðal ákæruefna.
H éraðssaksóknari hefur undanfarin misseri gefið út fjölda ákæra
vegna árása einstaklinga á
lögreglumenn að störfum.
Ákært er fyrir brot gegn
valdstjórninni. Samkvæmt
reglum þar um ákærir héraðs-
saksóknari í öllum málum er
varða árásir á lögreglumenn.
Í einni ákærunni er 32 ára
karlmaður sagður hafa kýlt
lögreglumann í andlitið í maí
í fyrra með krepptum hnefa
með þeim afleiðingum að lög-
reglumaðurinn hlaut mar á
augnloki og augnsvæði. Árás-
in átti sér stað í Vesturbænum
í Reykjavík.
Mútur og hrákar
Í annarri ákæru er konu á
sextugsaldri gefið að sök að
hafa fyrir utan íbúðarhús í
Grafarvogi reynt að bíta lög-
regluþjón sem og sparkað í fót
hans.
Þá er 65 ára gömul kona
ákærð fyrir að hafa reynt að
bera á lögreglumenn fé. Lög-
reglumennirnir höfðu afskipti
af konunni á bílaplani áfengis-
verslunarinnar Heiðrúnar við
Stuðlaháls í Reykjavík í júní
í fyrra. Segir í ákærunni að
konan hafi „boðið lögreglu-
manni við skyldustörf pen-
ingagreiðslu sem hann átti
ekki tilkall til, gegn því að
hann myndi hætta afskiptum
og leyfa henni að fara heim til
sín.“ Ekki kemur fram í ákær-
unni hvað orsakaði afskipti
lögreglu til að byrja með.
Að lokum hefur rétt tæp-
lega fertugur karlmaður úr
Hafnarfirði verið ákærður
fyrir að hrækja á lögregluþjón
við skyldustörf í Hveragerði
þannig að hrákinn lenti á efri
vör lögregluþjónsins.
Refsiramminn illa nýttur
Ofangreindar ákærur verða
allar þingfestar í héraðsdómi
á fyrstu dögum aprílmánaðar
og í öllum málum er ákært
fyrir brot á 106. grein al-
mennra hegningarlaga. Gerð
er krafa um að viðkomandi
einstaklingum verði gert að
sæta refsingu og greiðslu
sakarkostnaðar.
Í 106. grein segir að hver
sá sem ræðst með ofbeldi eða
hótunum um ofbeldi á opin-
beran starfsmann er hann
gegnir skyldustarfi sínu eða
leitast við að hindra fram-
kvæmd skyldustarf opin-
bers starfsmanns skuli sæta
fangelsi allt að sex árum. Þá
er þess sérstaklega getið að
ef brotið beinist gegn opin-
berum starfsmanni sem
að lögum hefur heimild til
líkamlegrar valdbeitingar
má beita fangelsi allt að átta
árum. Þó má beita sektum ef
brot er smáfellt. Þyngja má
refsingu um helming ef við-
komandi hefur verið refsað
fyrir sambærilegt brot áður.
Þrátt fyrir nokkuð rúman
refsiramma er ljóst að hann
er afar sjaldan nýttur nema
að mjög litlu leyti. Um miðjan
mars þessa árs féll dómur
yfir konu sem ákærð var
fyrir brot gegn valdstjórninni
með því að sparka í læri lög-
reglumanns við skyldustörf.
Konan játaði sök og hafði
hreint sakavottorð fram að
árásinni. Í dóminum segir:
„Samkvæmt myndupptöku
verður ráðið að ákærða hafi
verið talsvert drukkin og illa
fyrir kölluð andlega þegar
verkið var framið.“ Ákvörð-
un refsingar var því frestað,
skilorðsbundið til tveggja
ára. Sakarkostnaður nam 38
þúsund krónum.
Í öðru máli frá því í febrúar
á þessu ári hlaut útlendur
maður 30 daga skilorðsbundið
fangelsi fyrir að slá til lög-
reglumanna og hóta lífláti.
Árið 2012 var maður sak-
felldur fyrir að hafa reynt að
hrinda lögreglumanni fram
af svölum íbúðar sinnar og
fyrir að hafa hótað þeim lög-
reglumanni og fleirum lífláti.
Nokkrum mánuðum síðar
réðst maðurinn aftur að lög-
reglumönnum á Egilsstöðum,
reif af einum þeirra bindið og
greip í háls hans. Í niðurstöðu
dómsins er þess sérstaklega
getið að litið hafi verið til
þess að maðurinn hafi hlotið
að minnsta kosti tvo dóma
fyrir ofbeldisbrot á Íslandi og
annan fyrir tilraun til mann-
dráps í Svíþjóð. Maðurinn
hlaut þriggja mánaða skil-
orðsbundinn fangelsisdóm.
Allt að átta ára fangelsi
Í samtali við blaðamann DV
segir Friðrik Smári Björg-
vinsson, saksóknari hjá emb-
ætti Héraðssaksóknara, að
árið 2019 hafi embættið gefið
út 47 ákærur um brot gegn
valdstjórninni. Þar af snérist
41 um árásir eða hótanir gegn
lögreglumönnum.
Aðspurður hvort hann
kannist við að refsirammar
einhverra annarra brota séu
jafn lítið nýttir eins og í til-
felli brota gegn valdstjórninni
segist Friðrik ekki hafa skoðað
það sérstaklega, en bendir á
að refsiramminn hafi verið
rýmkaður fyrir nokkrum
árum án þess að þyngd refs-
inganna hafi fylgt þeirri
rýmkun.
Breytingin sem Friðrik vís-
ar til tók gildi árið 2007, en þá
bættist inn setning um að beita
mætti allt að átta ára fangelsi í
málum þar sem brotið beinist
gegn þeim handhöfum opin-
bers valds sem hafa heimild til
líkamlegrar valdbeitingar, það
er að segja lögreglumönnum.
Friðrik segir jafnframt sak-
sóknara ekki geta ákært fyrir
til dæmis brot á grein sem
fjallar um líkamsárás ef árás-
in beinist að lögreglumanni,
nema að árásin sé þeim mun
alvarlegri. Þá væri hugsanlega
hægt að ákæra fyrir meiri
háttar líkamsárás, segir Frið-
rik. n
Lögreglumenn geta orðið fyrir margvíslegu ofbeldi við skyldustörf. MYND/ERNIR
Heimir
Hannesson
heimir@dv.is
1. APRÍL 2021 DV
Þá er 65 ára
gömul kona ákærð
fyrir að hafa reynt
að bera á lög-
reglumenn fé.