Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 8
BROTTHVARF MINNKAR ÞVERT Á ÁHYGGJUR HÆTTUR Í ÖLLU HVÍTA STÖFFINU Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is L íðan ungmenna á tím-um kórónaveirunnar hefur valdið nokkrum áhyggjum undanfarið ár og var meðal annars óttast að brottfall úr framhaldsskólum myndi aukast mikið. Snemma í faraldrinum bárust meðal annars fréttir af því að kenn- arar og starfsfólk framhalds- skólanna væri farið að hringja í nemendur vegna hættu á stórauknu brotthvarfi, þung- lyndi og kvíða. Hins vegar hefur annað komið á daginn, en samkvæmt upplýsingum frá mennta- og menningarmálaráðuneyti hefur brotthvarf úr fram- haldsskólum minnkað, en það mældist 10 prósentum minna síðasta haust en haustið 2019. Minna félagslíf „Greining ráðuneytisins á upplýsingum frá framhalds- skólum sýnir að brotthvarfs- tíðnin hafi verið 10% minni síðastliðið haust samanborið við haustönn 2019,“ segir í svari ráðuneytisins við fyrir- spurn DV. Mennta- og menningar- málaráðuneytið lét fyrr í vetur gera könnun á líðan, námi og aðstæðum fram- haldsskólanema en niðurstöð- ur könnunarinnar benda til þess að meirihluti nemenda sé ánægður með viðbrögð framhaldsskólanna við CO- VID-19 og upplifi sig örugga í skólanum. Meirihluti nemenda, 61%, taldi þó að faraldurinn hefði haft neikvæð áhrif á félagslíf og um 4% nemenda eru talin eiga í verulegum erfiðleikum vegna þunglyndis. Þó að framhaldsskólanemar hafi mikið þurft að vera í fjarnámi undanfarið ár virð- ist það ekki hafa haft mikil neikvæð áhrif, en fjórðungur nemenda telur sig standa sig betur í fjarnámi en staðnámi og annar fjórðungur telur sér vegna jafn vel í stað- og fjarnámi. Rúmur helmingur tilgreindi þó að hann teldi sig standa sig betur í staðnámi. Tæpur helmingur nemenda, 47%, kvaðst vilja fá að ráða því hvort þeir væru í stað- eða fjarnámi. Færri valmöguleikar Faraldurinn er ekki búinn, en miðað við ánægjulegar tölur frá ráðuneytinu um að brotthvarf sé að minnka en Brottfall úr framhaldsskólum minnkar um 10%. Formaður Skóla- meistarafélags Íslands telur það að hluta stafa af skorti á vinnu. ekki aukast þá gætu menn leyft sér að vera vongóðir um framhaldið líka. Krist- inn Þorsteinsson, formaður Skólameistarafélags Íslands og skólameistari Fjölbrauta- skólans í Garðabæ, segir að fagna beri þessum tölum en þó taka þeim með fyrirvara. „Ég var búinn að sjá tölur sem við tókum saman fyrr í vetur og þar af leiðandi vissi ég að brottfall hefði minnkað en aðstæður eru mjög sér- stakar. Það hefur einkennt brottfall á Íslandi að hluti þess hefur falist í því að nem- endur hætta til að fara að vinna. Núna eru vinnumögu- leikar miklu minni svo það skýrir eflaust það að brottfall minnki. Nemendur hafa bara færri valmöguleika. Svo getur verið að skólar hafi lagt mikla áherslu á að halda nemendum inni í ljósi þessara aðstæðna sem eru í gangi. Þannig að það kemur mér ekki á óvart að það sé minna brottfall. Það er gleðilegt en ég held að menn ættu líka að varast að draga of stórar ályktanir af því, vegna þess að ástandið er ekki líkt neinu sem upp hefur komið áður. Skortir samanburð Ég held að margir skólamenn hafi ekki óttast aukningu brottfalls neitt sérstaklega. Við tókum saman tölur síðasta haust þar sem kom í ljós að brottfall minnkaði. Auðvitað óttuðust menn að þessi mikla fjarkennsla myndi valda ein- hverjum hnökrum og hún hefur gert það en þeir hafa ekki endilega birst í brottfalli. Við höfum ekkert til að bera þessar aðstæður saman við. Það var lögð sérstök áhersla á að halda í nemendur og sinna þeim vel en þegar kemur að því að meta hvort það hafi tekist eða ekki, að þá eru að- stæður svo sérstakar að það er erfitt að segja nákvæmlega til um það. Það ber að fagna þessu en að nálgast líka með varfærni.“ n Minna brottfall var úr framhaldsskólum í haust en haustið 2019. MYND/GVA Vegna fjölda áskorana verður sér- stakur páskaþáttur með Helga Björns í Sjónvarpi Símans. Hann hefur aldrei litið betur út og fúlsar nú við bæði brauði og bjór. Erla Hlynsdóttir erlahlyns@dv.is Á áttunda þúsund manns skoruðu á Helga Björns að halda eina aukatón- leika um páskana með Reið- mönnum vindanna og góðum gestum í Sjónvarpi Símans. Þættirnir urðu til samfara samkomutakmörkunum vegna COVID í fyrra, en lok þáttarað- arinnar voru ákveðin með það í huga að fólk væri á faralds- fæti um páskana. „Ég hafði ætlað að fara vestur á Ísafjörð og vera á skíðum. Síðan voru settar þessar nýju sóttvarna- reglur, eðlilega, og það kom þrýstingur um að gera einn þátt í viðbót,“ segir Helgi. Út með sykur, hveiti og mjólk Þátturinn verður með svipuðu sniði og þeir fyrri, fullt af flottum gestum en ekkert er gefið upp um það fyrir fram hverjir koma, ekki frekar en fyrri daginn. Þeir sem hafa fylgst með þáttunum hafa séð að Helgi lítur sífellt betur út og virðist koma betur undan COVID en aðrir. „Ég var farinn að gera svo vel við mig þegar ég var svona mikið heima og ákvað að minnka matarskammtana. Það þýðir ekkert að vera bara að borða brauð, kex og sæl- gæti. Ég ákvað að taka allt hvíta stöffið út: sykur, hveiti og mjólk. Ég sleppi líka bjórn- um. Það er mikið hveiti og sykur í honum,“ segir Helgi. Stígur aldrei á vigt Nú ert þú vanur að spyrja hvort það séu ekki allir sexí. Má ekki segja að Helgi Björns sé enn meira sexí núna? „Við erum bara öll sexí, er það ekki? Allir eru sexí, hver á sinn hátt. Ég vona allavega að ég sé líka sexí,“ segir hann glaðvær. Hann segist aldrei stíga á vigt og því ekki hafa hugmynd um hvað hann hafi lést mikið. „Enda skiptir það engu máli. Þetta snýst um að líða vel. Ég veit ekki hvað ég var þungur og veit ekki hvað ég er þungur í dag,“ segir Helgi. Næstu dagar fara í skipulagningu og æfingar fyrir þátt- inn á laugardag. „Ég ætla annars að nota páskana til að vera með börnum og barnabörnum, að vera í páskakúlunni okkar. Ég verð með páskalamb á sunnudaginn fyrir fjöl- skylduna. Fyrst það er ekki hægt að fara á skíði fer ég væntanlega upp í hesthús og hef það notalegt einhvers staðar úti í móa.“ n Helgi Björns virðist koma betur undan COVID en flestir aðrir. 8 FRÉTTIR 1. APRÍL 2021 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.