Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Qupperneq 8
BROTTHVARF MINNKAR ÞVERT Á ÁHYGGJUR
HÆTTUR Í ÖLLU HVÍTA STÖFFINU
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
L íðan ungmenna á tím-um kórónaveirunnar hefur valdið nokkrum
áhyggjum undanfarið ár og
var meðal annars óttast að
brottfall úr framhaldsskólum
myndi aukast mikið. Snemma
í faraldrinum bárust meðal
annars fréttir af því að kenn-
arar og starfsfólk framhalds-
skólanna væri farið að hringja
í nemendur vegna hættu á
stórauknu brotthvarfi, þung-
lyndi og kvíða.
Hins vegar hefur annað
komið á daginn, en samkvæmt
upplýsingum frá mennta- og
menningarmálaráðuneyti
hefur brotthvarf úr fram-
haldsskólum minnkað, en það
mældist 10 prósentum minna
síðasta haust en haustið 2019.
Minna félagslíf
„Greining ráðuneytisins á
upplýsingum frá framhalds-
skólum sýnir að brotthvarfs-
tíðnin hafi verið 10% minni
síðastliðið haust samanborið
við haustönn 2019,“ segir í
svari ráðuneytisins við fyrir-
spurn DV.
Mennta- og menningar-
málaráðuneytið lét fyrr í
vetur gera könnun á líðan,
námi og aðstæðum fram-
haldsskólanema en niðurstöð-
ur könnunarinnar benda til
þess að meirihluti nemenda
sé ánægður með viðbrögð
framhaldsskólanna við CO-
VID-19 og upplifi sig örugga
í skólanum.
Meirihluti nemenda, 61%,
taldi þó að faraldurinn hefði
haft neikvæð áhrif á félagslíf
og um 4% nemenda eru talin
eiga í verulegum erfiðleikum
vegna þunglyndis.
Þó að framhaldsskólanemar
hafi mikið þurft að vera í
fjarnámi undanfarið ár virð-
ist það ekki hafa haft mikil
neikvæð áhrif, en fjórðungur
nemenda telur sig standa sig
betur í fjarnámi en staðnámi
og annar fjórðungur telur
sér vegna jafn vel í stað- og
fjarnámi. Rúmur helmingur
tilgreindi þó að hann teldi sig
standa sig betur í staðnámi.
Tæpur helmingur nemenda,
47%, kvaðst vilja fá að ráða
því hvort þeir væru í stað-
eða fjarnámi.
Færri valmöguleikar
Faraldurinn er ekki búinn,
en miðað við ánægjulegar
tölur frá ráðuneytinu um að
brotthvarf sé að minnka en
Brottfall úr framhaldsskólum
minnkar um 10%. Formaður Skóla-
meistarafélags Íslands telur það
að hluta stafa af skorti á vinnu.
ekki aukast þá gætu menn
leyft sér að vera vongóðir
um framhaldið líka. Krist-
inn Þorsteinsson, formaður
Skólameistarafélags Íslands
og skólameistari Fjölbrauta-
skólans í Garðabæ, segir að
fagna beri þessum tölum en
þó taka þeim með fyrirvara.
„Ég var búinn að sjá tölur
sem við tókum saman fyrr í
vetur og þar af leiðandi vissi
ég að brottfall hefði minnkað
en aðstæður eru mjög sér-
stakar. Það hefur einkennt
brottfall á Íslandi að hluti
þess hefur falist í því að nem-
endur hætta til að fara að
vinna. Núna eru vinnumögu-
leikar miklu minni svo það
skýrir eflaust það að brottfall
minnki. Nemendur hafa bara
færri valmöguleika. Svo getur
verið að skólar hafi lagt mikla
áherslu á að halda nemendum
inni í ljósi þessara aðstæðna
sem eru í gangi. Þannig að
það kemur mér ekki á óvart að
það sé minna brottfall. Það er
gleðilegt en ég held að menn
ættu líka að varast að draga of
stórar ályktanir af því, vegna
þess að ástandið er ekki líkt
neinu sem upp hefur komið
áður.
Skortir samanburð
Ég held að margir skólamenn
hafi ekki óttast aukningu
brottfalls neitt sérstaklega.
Við tókum saman tölur síðasta
haust þar sem kom í ljós að
brottfall minnkaði. Auðvitað
óttuðust menn að þessi mikla
fjarkennsla myndi valda ein-
hverjum hnökrum og hún
hefur gert það en þeir hafa
ekki endilega birst í brottfalli.
Við höfum ekkert til að bera
þessar aðstæður saman við.
Það var lögð sérstök áhersla á
að halda í nemendur og sinna
þeim vel en þegar kemur að
því að meta hvort það hafi
tekist eða ekki, að þá eru að-
stæður svo sérstakar að það
er erfitt að segja nákvæmlega
til um það. Það ber að fagna
þessu en að nálgast líka með
varfærni.“ n
Minna brottfall var úr framhaldsskólum í haust en haustið 2019. MYND/GVA
Vegna fjölda áskorana verður sér-
stakur páskaþáttur með Helga
Björns í Sjónvarpi Símans. Hann
hefur aldrei litið betur út og fúlsar
nú við bæði brauði og bjór.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Á áttunda þúsund manns skoruðu á Helga Björns að halda eina aukatón-
leika um páskana með Reið-
mönnum vindanna og góðum
gestum í Sjónvarpi Símans.
Þættirnir urðu til samfara
samkomutakmörkunum vegna
COVID í fyrra, en lok þáttarað-
arinnar voru ákveðin með það
í huga að fólk væri á faralds-
fæti um páskana. „Ég hafði
ætlað að fara vestur á Ísafjörð
og vera á skíðum. Síðan voru
settar þessar nýju sóttvarna-
reglur, eðlilega, og það kom
þrýstingur um að gera einn
þátt í viðbót,“ segir Helgi.
Út með sykur,
hveiti og mjólk
Þátturinn verður með svipuðu
sniði og þeir fyrri, fullt af
flottum gestum en ekkert er
gefið upp um það fyrir fram
hverjir koma, ekki frekar en
fyrri daginn.
Þeir sem hafa fylgst með
þáttunum hafa séð að Helgi
lítur sífellt betur út og virðist
koma betur undan COVID en
aðrir.
„Ég var farinn að gera
svo vel við mig þegar ég var
svona mikið heima og ákvað
að minnka matarskammtana.
Það þýðir ekkert að vera bara
að borða brauð, kex og sæl-
gæti. Ég ákvað að taka allt
hvíta stöffið út: sykur, hveiti
og mjólk. Ég sleppi líka bjórn-
um. Það er mikið hveiti og
sykur í honum,“ segir Helgi.
Stígur aldrei á vigt
Nú ert þú vanur að spyrja
hvort það séu ekki allir sexí.
Má ekki segja að Helgi Björns
sé enn meira sexí núna?
„Við erum bara öll sexí, er
það ekki? Allir eru sexí, hver
á sinn hátt. Ég vona allavega
að ég sé líka sexí,“ segir hann
glaðvær.
Hann segist aldrei stíga
á vigt og því ekki hafa
hugmynd um hvað hann
hafi lést mikið. „Enda
skiptir það engu máli.
Þetta snýst um að líða
vel. Ég veit ekki hvað
ég var þungur og
veit ekki hvað ég er
þungur í dag,“ segir
Helgi.
Næstu dagar fara
í skipulagningu og
æfingar fyrir þátt-
inn á laugardag.
„Ég ætla annars að
nota páskana til að
vera með börnum og
barnabörnum, að vera
í páskakúlunni okkar.
Ég verð með páskalamb
á sunnudaginn fyrir fjöl-
skylduna. Fyrst það er
ekki hægt að fara á skíði fer
ég væntanlega upp í hesthús
og hef það notalegt einhvers
staðar úti í móa.“ n
Helgi Björns
virðist koma
betur undan
COVID en
flestir aðrir.
8 FRÉTTIR 1. APRÍL 2021 DV