Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Side 10
10 FRÉTTIR H ildur Sverrisdóttir lögfræðingur hefur kynnst því af eigin raun að það er ekki sjálfgefið að eignast barn. Hún bendir á mikilvægi þess að konur hafi réttar upplýsingar um hvað standi þeim til boða og að kerfið sé ekki óþarflega flókið. „Ég var alltaf með þá hug- mynd að ég myndi eignast börn og lengi vel gekk ég út frá því að ég myndi eignast fleiri en eitt barn,“ segir Hildur, sem hefur reynt að eignast barn ásamt sambýlismanni sínum Gísla Árnasyni án árangurs. Hildur hóf nýverið sína fjórðu meðferð í hormónaörvun sem er undanfari glasafrjóvgunar. Þau Gísli hafa verið saman í tæp fjögur ár og eftir að hafa reynt að eignast barn og vera komin yfir fertugt varð henni ljóst að það væri ekkert unnið með því að bíða lengur. Hildur er menntaður lög- fræðingur og vann lengi sem slíkur hjá fjölmiðlasam- steypunni 365 og starfaði um tíma einnig sem varaborgar- fulltrúi. Þegar hún hætti hjá 365 hellti hún sér alfarið út í stjórnmálin, fyrst sem borgar- fulltrúi og síðar sem þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins. Hún starfar í dag sem að- stoðarmaður Þórdísar Kol- brúnar Reykfjörð, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráð- herra Íslands. „Ég var þing- maður í ofsalega stuttu rík- isstjórninni sem sprakk í kringum uppreist æru-málið. Ég var svo nýbyrjuð og ekki búin að sýna hvað í mér bjó en þá bauð Þórdís mér að verða aðstoðarmaður sinn, sem mér hefur þótt meiri háttar reynsla. Ég hef verið vara- þingmaður á þessu kjörtíma- bili og það kemur eiginlega bara í ljós hver verða næstu skref. Flokkurinn í Reykjavík er ekki búinn að taka ákvörð- un um hvort það verði yfir höfuð prófkjör eða þá hvenær en það fer þá að líða að því,“ segir Hildur. Metnaður og tölfræði Aðspurð hvort metnaðurinn hafi seinkað barneignum svar- ar hún: „Þetta er blanda af því að ganga út frá því og langa mjög mikið til þess að eignast fjölskyldu og á sama tíma ýta því á undan sér. Í rauninni var þetta ekki það nærri mér að ég væri að ýta því á undan mér, ég hugsaði að það kæmi að þessu seinna. Það er lögð mikil áhersla á það að konur mennti sig og komi undir sig fótunum, sem er gott. Konur eru fræddar í skólakerfinu um getnaðarvarnir sem er flott en það fylgja síður með þessar upplýsingar um frjósemi og hvað það þýðir í árum og gagnvart tölfræði að ákveða að klára námið og koma sér inn í frama áður en ákveðið er að eignast börn.“ Innbyggð bjartsýni „Lífið er alls konar. Það spil- aði líka inn í að það var í raun- inni ekki fyrr en ég kynntist Gísla mínum að ég áttaði mig á því af fullri alvöru, alveg ofan í bein, hversu mikið mig langaði að eignast barn. Sem manneskja er maður svo mik- ið samansafn af alls konar. Eitt eru aðstæður og annað eru tilfinningar og svo úr þessu myndast einhver kúla sem heldur svo áfram að rúlla og gera sitt besta. Auðvitað kemur margt til og eitt af því er að við kynnumst seint á einhverjum hlutlægum mæli- kvarða, ég er þá orðin 38 ára.“ Þegar fólk er ekki lengur unglingar og ástin er sterk gerast hlutirnir hratt. „Við vissum það nokkuð fljótt að við vildum stíga þessi skref og höfðum enga ástæðu til að halda að það myndi ekki ganga. Það er innbyggt í mann að gera ráð fyrir því að hlut- irnir gangi upp. Það er partur af því að vera til, að hanga í því. Við gerum ekki ráð fyrir því að lenda í slysum eða veikjast. Þó pabbi minn hafi látist úr krabbameini geri ég ekki ráð fyrir því að fá krabbamein frekar en við flest.“ Tveggja ára bið Þegar Hildur og Gísli kynn- ast á hann fyrir þrjú börn og það yngsta er þá fjögurra ára. „Það var ekkert sem benti til þess að þetta myndi ekki ganga þó ég væri vissulega að eldast. Svo bara gengur þetta ekki. Núna erum við í okkar fjórðu meðferð hjá Liv- io og það er ekkert að. Við erum heppin hvað það varðar en þetta er ekki að ganga enn sem komið er, en vonandi breytist það. Þetta er bara staðan og hún er raunveru- leiki mjög margra og þá af hverju ekki við eins og svo margir aðrir.“ Það er samt ekki minna vont þó það séu margir að glíma við sömu erfiðleikana? „Nei ég viðurkenni það. Þetta er þungt ég ætla ekki að gera lítið úr því. Hafandi farið í gegnum þetta og upp- lifað þennan raunveruleika þá fór ég að horfa á kerfið öðrum augum en ég hafði gert áður en þetta varð partur af mínu lífi. Það eru hlutir í kerfinu sem mér finnst vera að hamla fólki, og gera því erfiðara fyrir þegar það ætti þvert á móti að hjálpa fólki að eign- ast börn. Löggjöfin í þessum málum hefur tekið stórkost- legum framförum síðustu ár sem betur fer en þó stendur ýmislegt eftir.“ Hildur segir lögin sé teiknuð upp eftir gömlum staðal ímyndum þar sem for- eldrarnir eru ung kona og Hildur sá alltaf fyrir sér að eignast börn. MYND/VALLI Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Förðun: Elín Reynisdóttir Myndir: Valgarður Gíslason Við eigum að aðstoða fólk við barneignir 1. APRÍL 2021 DV Hildur Sverrisdóttir lögfræðingur og varaþingmaður hefur kynnst því af eigin raun að það er ekki sjálf- gefið að eignast barn. Hún bendir á mikilvægi þess að konur hafi réttar upplýsingar um hvað standi þeim til boða og að kerfið sé ekki óþarflega flókið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.