Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Page 12
vilt fara í tæknifrjóvgun þá þarft þú að hitta félagsráð­ gjafa, en ekki af það er par. Svo þarf enginn að spyrja kóng né prest ef það er verið að eignast barn án tækni­ legrar aðkomu,“ segir Hildur hlæjandi. Hún nefnir annað dæmi. „Það má ekki gefa fóstur­ vísa. Ef vinkona þín og vinur vilja gefa þér fósturvísi má það ekki. Það má gefa egg og sæði en ekki fósturvísi sem er búið að frjóvga og myndi þá taka mun minni tíma. Ef par á fósturvísi verður að eyða honum þegar sambúð er slitið. Þau mega ekki gefa hann áfram eða gefa sam­ þykki fyrir að annað þeirra eigi hann og nýti. Mér finnst að eigi að treysta fólki sem vill skapa líf og hlúa að því til þess að gera það. Við erum með alls konar aðrar reglur í samfélaginu sem gæta að velferð barna og það blessunarlega, en að við séum að gera þetta ferli óþarflega flókið finnst mér bera keim af of miklum afskiptum hins opinbera.“ Ættleiðingar og aldur Talið berst að ættleiðingum. Hildur segir hún hafi velt upp öllum sviðsmyndum bæði af forvitni og líka þar sem hún útilokar ekkert þó vonin sé vissulega að glasafrjóvgunin beri ávöxt. „Par sem hefur áhuga á að ættleiða verður að hafa verið í staðfestri sambúð í fimm ár eða gift í þrjú ár. Ef fólk kynnist seint, prófar kannski fyrst að reyna að eignast barn sjálft en gengur ekki og er ekki búið að skrá sig í sambúð eða gift, þá þarf þetta fólk að bíða ansi lengi til þess að mega byrja ætt­ leiðingarferlið en þá kemur líka inn líffræðilega ferlið því þau mega ekki vera eldri en 45 ára.“ Hildur bendir á að þarna þurfi að setja í samhengi að frjósemin fer dvínandi eftir 35 ára aldur. „Það kom ekki bara aftan að mér heldur mörgum öðrum konum. Allt líf okkar er mikið yngra en það var og við heyrum sífellt af hækkandi aldri mæðra. Við erum flest hraust og hress lengur, en líffræðilega erum við í sömu frjósemi og við vorum fyrir 100 árum þegar fólk var orðið gamalmenni upp úr fertugu. Hérna set ég spurningarmerki við þessa 45 ára reglu. Ef þessu væri hnik­ að til þó það væri ekki nema eitt eða tvö ár þá gæti það haft stórkostleg áhrif á líf fólks.“ Hildur segist ekki efast um að upprunalega séu þessar reglur settar með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. „Það má samt ekki gleyma því að það hafa áður verið settar reglur sem voru mjög strang­ ar og tóku á áhyggjum sem voru óþarfar, eins og þegar samkynhneigðir áttu engin réttindi gagnvart börnum.“ Frystu eggin þín „Fyrir sirka tveimur árum birtist viðtal við frjósemis­ lækni sem var að koma svona Hildur hefur komið víða við bæði starfað sem þingmaður og gefið út bók. MYND/VALLI 12 FRÉTTIR 1. APRÍL 2021 DV Ég leyfi mér að segja við mér yngri konur, frystu eggin þín. upplýsingum á framfæri og fyrirsögnin var „Konur eru að koma of seint“. Við þetta orðalag fóru einhverjar í vörn, fannst að þeim vegið og gerðu grín að þessu með femínista­ slagorðinu „konur þurfa bara að vera duglegar að koma ekki of seint“. Það þótti mér leiðin­ legt að sjá. Því þó að það megi vel vera að undirliggjandi vandamálið sé of lítil umræða um raunveruleika kvenna frekar en konurnar sjálfar, þá hjálpar auðvitað ekkert ef það á að skjóta sendiboðann sem er að reyna að koma réttum upplýsingum á framfæri“ Hildur segir skort á upplýs­ ingum geta leitt til þess að kon­ ur geri sér ekki grein fyrir því hvaða takmarkanir líkaminn setji þeim í þessum efnum og hvaða valkostir standi þeim til boða. Hún bendir á að hægt sé að frysta egg og það sé dæmi um upplýsingar sem allar kon­ ur ættu að hafa. „Ég leyfi mér að segja við mér yngri kon­ ur, frystu eggin þín. Ég held að það sé þess virði og vildi gjarnan að ég hefði gert það.“ Frelsispési „Ég er mikill frelsispési og finnst mikilvægt að við rýnum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.