Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 13
Hildur Sverris vill að kynfræðsla nái yfir frjósemismál. MYND/VALLI
FRÉTTIR 13DV 1. APRÍL 2021
hvar hið opinbera er að vera
óþarflega fyrirferðarmikið og
stýrandi. Einnig hef ég lengi
haft áhuga á raunveruleika
kvenna á þeirra forsendum,
og í þeim tilgangi ritstýrði ég
til dæmis bókinni Fantasíur,
um kynferðislegar fantasíur
íslenskra kvenna. Þannig að
það kallaði mjög sterkt á mig
að skoða bæði umræðuna og
reglurammann í kringum
þessi mál.“
Hver kona er að glíma við
sitt og þær frjósemisaðgerðir
sem fólk fer í gegnum eru
ólíkar. „Ég get aðeins talað út
frá mér en heilt á litið fannst
mér þetta ekki vond reynsla.
Ef það væri hægt að taka
andlega þáttinn út, kvíðann
og áhyggjurnar og það að
þora ekki að hugsa til enda ef
þetta gengur ekki. Það álag
finnst mér miklu verra en
líkamlegi parturinn. Þessi
lyf hafa farið mikið batnandi
skilst mér. Kærastinn minn
sprautar mig í magann á
hverju kvöldi og þetta er orð-
ið að frekar fallegri rútínu
hjá okkur. Þetta er partur af
okkar lífi og við tökum því.
Við erum að mörgu leyti svo
heppin. Hann á þrjú yndisleg
börn og við erum almennt
mjög kát og glöð. Ég veit að
við höfum það að mörgu leyti
mjög gott. Það er erfitt að út-
skýra þessa tilfinningu. Ég
hef alltaf gert ráð fyrir að ég
yrði mamma.“
Engin óviðeigandi frænka
Þegar talið berst að sam-
félaginu og umræðunni þar
segist Hildur samgleðjast
vinum sínum innilega þegar
þeir eiga von á barni. „Ég skil
hins vegar líka þá tilfinningu
þegar fólk viðurkennir að það
er hætt að samgleðjast eftir
að hafa sjálft reynt lengi, en
ég er ekki þar. Ég öfunda þau
kannski alveg smá en það
kemur frá góðum stað. Maður
á kannski stundum daga sem
maður tekur sér frí frá sam-
félagsmiðlum með öllum
krúttlegu börnunum þar,
en það er sjaldan. Almennt
er þetta partur af lífinu og
þetta er okkar verkefni og við
upplifum mikinn kærleik og
stuðning frá okkar fólki.“
Ótrúlegt en satt hefur Hild-
ur ekki lent í hinni klassísku
spurningu – á ekki að fara
koma með barn? „Ég bara
minnist þess ekki að hafa
fengið þessa spurningu þó ég
hafi ítrekað heyrt þessa um-
ræðu um að fólk sé spurt að
þessu. Ég hef samt ekki rætt
mína stöðu almennt og ég
reyndar held ekki að ég tæki
spurningunni illa.“
Á ég að trúa því að þú eigir
enga óviðeigandi frænku eða
frænda?
Hildur hlær og bjart bros
breiðir úr sér. „Nei veistu ég
held bara ekki. Það að ég sé að
fara í þetta viðtal er mín til-
raun til þess að vekja athygli
á því að það sé ekki hægt að
ganga að því vísu að eignast
barn og vonandi varpa ljósi á
að kerfið getur verið meira til
aðstoðar en trafala. Annars
hef ég verið mjög prívat með
þessi mál.“ n