Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 19
DV 1. APRÍL 2021 EYJAN 19 hefur fundist að það sé mun- ur á því hvernig Landsréttur tekur á því þegar mál hafa dregist og hvernig Hæsti- réttur hefur gert það. Það er hins vegar tilfinning, get ekki fullyrt um það. Í allmörgum dómum Hæsta- réttar hefur komið fram að mál hafi dregist, að ákærða sé ekki um að kenna en al- varleiki og eðli brotsins geri það að verkum að þetta hafi þó ekki áhrif til refsilækk- unar. Í einhverjum tilvikum var kannski hluti refsingar skilorðsbundinn með vísan í drátt á málarekstri eða ungs aldurs ákærða, nema hvoru tveggja væri. Mín tilfinning er að Landsréttur sé jafnvel harðari en Hæstiréttur að þessu leyti.“ Þorbjörg segir að algengt sé að þolendur vilji fá viður- kenningu frá geranda og að hann taki ábyrgð. „Það er sérkenni á þessum brotum að gerandi er yfirleitt sakfelldur á grundvelli sönnunargagna, en hann játar ekki. Fyrir þol- endur skiptir þá kannski máli að dómurinn sé skýr og að dæmd refsing sé ekki vægari út af málsmeðferðartíma,“ segir hún. Tafir bitna á gæðum Fyrr í þessum mánuði var greint frá því að níu konur hefðu lagt fram kærur til Mannréttindadómstólsins á hendur íslenska ríkinu. Allar höfðu konurnar áður kært kynferðisofbeldi, heimilisof- beldi eða kynbundna áreitni til lögreglu en mál þeirra voru felld niður eftir rann- sókn lögreglu og sú ákvörðun staðfest af ríkissaksóknara. Þrettán kvenna- og jafnréttis- samtök stóðu þá fyrir blaða- mannafundi þar sem greint var frá þessum kærum til MDE. Kom fram að í öllum málum hefði málshraðinn verið allt of hægur, þau hefðu tekið of langan tíma í rann- sókn og það hefði komið niður á gæðum rannsóknanna. Daginn eftir að greint var frá kærunum til MDE til- kynnti Áslaug Arna Sigur- björnsdóttir dómsmálaráð- herra að hún hefði samið við Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttar- dómara, um aðstoð við vinnu ráðuneytisins að styttingu málsmeðferðartíma í refsi- vörslukerfinu. Þessi ákvörðun ráðherra var gagnrýnd harðlega af ýmsum aðilum, svo sem ung- liðahreyfingum Samfylkingar og Viðreisnar sem sögðu Jón Steinar ítrekað hafa grafið undan trúverðugleika brota- þola kynferðisofbeldis. Áslaug sagði að áherslan í störfum hans fyrir ráðuneytið ætti að vera í efnahagsbrota- málum en það var þó ekkert tekið fram um slíkt í samningi ráðuneytisins við hann. Þegar ráðherra tilkynnti síðan að Jón Steinar hefði óskað lausnar og Hörður Fel- ix Harðarson hæstaréttarlög- maður hefði tekið að sér að sinna verkefninu hans í stað, sagði Áslaug í færslu á Face- book við þetta tilefni: „Ég tel rétt að árétta að tildrögin að þessu verkefni voru síendur- teknar fréttir af löngum máls- meðferðartíma efnahags- brota…“ Í umræðu á Alþingi í liðinni viku beindi Þorbjörg orðum sínum til Áslaugar Örnu þegar hún sagði: „Nýlega fékk málsmeðferðartíminn á sig hið pólitíska kastljós þegar fréttir bárust af sér- stöku verkefni af hálfu dóms- málaráðherra um vinnu við að rýna málsmeðferðartíma í efnahagsbrotamálum, og sú vinna er auðvitað af hinu góða og ekkert við hana að athuga. En, þessi vandi á við um alla brotaflokka og það eru dálítið sérstök skilaboð að taka allt annan brotaflokk fyrir en þann sem mest hefur verið til umfjöllunar vegna þessa vanda. Það er nefni- lega enn að gerast að dómar fyrir alvarleg kynferðisbrot séu mildaðir á áfrýjunarstigi vegna þess að málin hafa dregist í kerfinu.“ Áslaug Arna mótmælti þessu og sagði málsmeðferð efnahagsbrota alls ekki vera í meiri forgangi hjá ráðuneyt- inu en málsmeðferð kynferð- isbrota „…sem hafa verið í skýrum forgangi allt frá 2018 með nýrri aðgerðaáætlun í þessum málum,“ sagði hún í pontu. Þá sagði hún að verið væri að ráðast bæði að rót vandans og hala hans, til að mynda með því að stytta boðunar- tíma í fangelsi. Ekki tekið á rót vandans Þorbjörg segir að allir armar kerfisins þurfi að hafa burði til að vinna hratt án þess að gefa afslátt af gæðum. „Það hefur mikil og jákvæð vinna átt sér stað innan kerfisins í því skyni að bæta hér úr, til þess að mál- in fari hraðar í gegn. Á sama tíma er það samt staðreynd að kynferðisbrotamálum sem lög- regla fær til rannsóknar hefur fjölgað mikið. Ég lít ekki svo á að hér sé við kerfið sjálft að sakast,“ segir hún. Hún tekur undir með ráð- herra að álag á kerfinu birt- ist til að mynda í biðlistum vegna afplánunar sem ekki sé boðlegt. „Dæmdir menn bíða mánuðum og stundum heilu árin eftir að sitja dóma af sér. Að þeim tíma liðnum eru menn stundum komnir á allt annan stað með sitt líf og dómur hefur ekki lengur þann tilgang sem til var ætlast. Og við sjáum líka að dómar eru að fyrnast. Það hefur þau áhrif að menn þurfa þá ekki að afplána dómana. Það er þess vegna sem dóms- málaráðherra er nú að leggja fram tillögur um að auka sam- félagsþjónustu sem taki til allt að tveggja ára fangelsisdóma. Þetta er gert til að stytta boð- unarlista í fangelsin sem hefur lengst svo síðustu ár að biðtími eftir að afplánun í fangelsis- vist hefur lengst. Við erum að tala um biðlista í fangelsi, sem væri dálítið fyndið ef málið væri ekki svona alvarlegt. Ég er hrifin af hugmyndum um að nota samfélagsþjónustu meira og er á því að dómarar ættu að hafa heimild til að dæma til samfélagsþjónustu. En þessi hugmynd býr til tímabundna heimild um sam- félagsþjónustu fyrst og fremst til að klippa aftan af allt of löngum boðunarlista í fang- elsi. Þessi leið er skiljanleg en þar er ekki tekið á neinni rót vandans, heldur bara verið að bregðast við stöðu. Stöðu sem mun koma aftur upp ef ekkert annað breytist.“ n Það eru hagsmunir sakborn- ingsins sem eru leiðarljósið þegar dómur er mildaður með þessum hætti en málsbæturnar fyrir brotaþola eru engar. Þorbjörg Sigríður Gunn- laugsdóttir þingmaður Viðreisnar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.