Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Qupperneq 22
22 FÓKUS 1. APRÍL 2021 DV
Dónalegir bollar
sem mokseljast
Birna Jódís, förðunarfræðingur og keramiklistakona með
meiru, gerir krúttlega bolla með ekki svo krúttlegum
skilaboðum sem rokseljast, sérstaklega í COVID.
B irna Jódís Magnúsdóttir býr til keramik-bolla, vasa og annars konar
skúlptúra undir nafninu End-
emi. Hún hefur varla undan
við að búa til bolla með skila-
boðum eins og: „Fokking fokk
sjitt sjittafokk“, „helvítis“ og
„fokk sjitt“.
Hún segir að vinsældir
bollanna hafi aukist í COVID.
„Mér finnst vinsældirnar vera
í takt við COVID-bylgjurnar.
Líka hjá mér sjálfri. Ég tek
stundum pásur frá því að búa
til bolla, fer að einbeita mér að
öðru en svo finn ég að þegar
ég fyllist af einhverri svart-
sýni dett ég aftur í „fokk“ og
„sjitt“,“ segir Birna.
„Ég var byrjuð að gera
bolla með áletruninni „þetta
verður allt í fokking lagi“. Ég
gerði svolítið af þeim fyrir
jól, því þá var ég farin að sjá
fyrir endann á þessu og fólk
líka almennt. En svo datt ég
aftur í þennan fokk-pakka um
daginn í ljósi nýjustu COVID-
fregna.“
Krúttlegt og alls
ekki krúttlegt
Birna byrjaði að vinna með
keramik fyrir tveimur árum.
„Ég þekki listakonu sem
vinnur mikið með leir, ég fékk
að fylgjast með henni og nota
aðstöðuna hennar. Ég hef ekki
stoppað síðan,“ segir Birna.
„Bollarnir komu fljótlega
upp úr því. Ég var að vinna
með krúttlega liti og mig lang-
aði að fá smá „contrast“ þann-
ig skilaboðin á bollunum eru
ekki mjög krúttleg.“
Fer eftir eigin höfði
Birna tekur ekki á móti sér-
pöntunum og allt sem hún
auglýsir til sölu á Instagram-
síðu Endemis rýkur út. „Það
er lúxusvandamál,“ segir hún.
„Ég tek orðið ekki pantanir,
ég set inn vörur þegar ég get.
Stundum sel ég beint út úr
stúdíóinu hjá mér og það ratar
ekki á síðuna.“
Hún viðurkennir að það sé
frábært að hafa frelsið til að
búa til það sem hana langar
til að hverju sinni. „Það er al-
gjör bónus að fólki finnist það
skemmtilegt sem ég ákveð að
gera.“
Listakona með meiru
Birna Jódís hefur alltaf verið
mikið fyrir það að skapa og
leyfa sínum innri listamanni
að njóta sín, þótt hún segist
ekki vera viss hvort hún
myndi kalla sig listamann.
Birna er förðunarfræðingur
að mennt og hefur vakið mikla
athygli hérlendis og erlendis
fyrir förðunarsnilligáfu sína.
Hún komst í topp fimm í NYX
Nordic Face Awards árið 2016
og hefur lengi verið með stór-
an fylgjendahóp á samfélags-
miðlum.
„Ég hef alltaf verið að búa
eitthvað til, ég veit ekki hvort
ég myndi kalla mig listakonu.
En mér finnst voða gaman að
búa til hluti. Ég er búin að búa
Birna Jódís finnur sig knúna til að búa til bollana þegar svartsýnin tekur yfir. MYNDIR/AÐSENDAR
Guðrún Ósk
Guðjónsdóttir
gudrunosk@dv.is
til skartgripi, verið mikið í
förðun og svo hef ég líka mál-
að myndir. Nú er ég að byrja
að vinna með nýjan efnivið,
gler, samhliða leirnum. Það
er svolítið spennandi. Ég kann
ekkert á það en ég prófa mig
bara áfram. Ég er þannig týpa
að ég bara prófa mig áfram
með hluti,“ segir hún.
Veitingastaðurinn ÚPS
Birna Jódís býr á Höfn í
Hornafirði ásamt eiginmanni
sínum og þremur börnum. Þau
eiga og reka veitingastaðinn
ÚPS á Höfn, sem er í sama
húsi og stúdíóið hennar. Þau
opnuðu staðinn í miðju kófinu
og segir Birna að það hefur
gengið vonum framar.
„Heimafólkið tekur svo
vel í þetta og er duglegt að
mæta svo það heldur þessu
gangandi. Svo kannski koma
túristarnir einhvern tímann,“
segir hún.
Það er hægt að skoða boll-
ana á Instagram, @end.emi. n
KERAMIK
Birna gerir ekki aðeins bolla
heldur einnig alls konar skúlp-
túra. Vasar eru einnig vinsælir
hjá henni.
FOKK
Vinsældir bollanna eru í takt við
COVID-bylgjurnar. Þegar fólk þarf
að hanga heima vill það gera það
með bolla sem er lýsandi fyrir
ástandið.