Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 22
22 FÓKUS 1. APRÍL 2021 DV Dónalegir bollar sem mokseljast Birna Jódís, förðunarfræðingur og keramiklistakona með meiru, gerir krúttlega bolla með ekki svo krúttlegum skilaboðum sem rokseljast, sérstaklega í COVID. B irna Jódís Magnúsdóttir býr til keramik-bolla, vasa og annars konar skúlptúra undir nafninu End- emi. Hún hefur varla undan við að búa til bolla með skila- boðum eins og: „Fokking fokk sjitt sjittafokk“, „helvítis“ og „fokk sjitt“. Hún segir að vinsældir bollanna hafi aukist í COVID. „Mér finnst vinsældirnar vera í takt við COVID-bylgjurnar. Líka hjá mér sjálfri. Ég tek stundum pásur frá því að búa til bolla, fer að einbeita mér að öðru en svo finn ég að þegar ég fyllist af einhverri svart- sýni dett ég aftur í „fokk“ og „sjitt“,“ segir Birna. „Ég var byrjuð að gera bolla með áletruninni „þetta verður allt í fokking lagi“. Ég gerði svolítið af þeim fyrir jól, því þá var ég farin að sjá fyrir endann á þessu og fólk líka almennt. En svo datt ég aftur í þennan fokk-pakka um daginn í ljósi nýjustu COVID- fregna.“ Krúttlegt og alls ekki krúttlegt Birna byrjaði að vinna með keramik fyrir tveimur árum. „Ég þekki listakonu sem vinnur mikið með leir, ég fékk að fylgjast með henni og nota aðstöðuna hennar. Ég hef ekki stoppað síðan,“ segir Birna. „Bollarnir komu fljótlega upp úr því. Ég var að vinna með krúttlega liti og mig lang- aði að fá smá „contrast“ þann- ig skilaboðin á bollunum eru ekki mjög krúttleg.“ Fer eftir eigin höfði Birna tekur ekki á móti sér- pöntunum og allt sem hún auglýsir til sölu á Instagram- síðu Endemis rýkur út. „Það er lúxusvandamál,“ segir hún. „Ég tek orðið ekki pantanir, ég set inn vörur þegar ég get. Stundum sel ég beint út úr stúdíóinu hjá mér og það ratar ekki á síðuna.“ Hún viðurkennir að það sé frábært að hafa frelsið til að búa til það sem hana langar til að hverju sinni. „Það er al- gjör bónus að fólki finnist það skemmtilegt sem ég ákveð að gera.“ Listakona með meiru Birna Jódís hefur alltaf verið mikið fyrir það að skapa og leyfa sínum innri listamanni að njóta sín, þótt hún segist ekki vera viss hvort hún myndi kalla sig listamann. Birna er förðunarfræðingur að mennt og hefur vakið mikla athygli hérlendis og erlendis fyrir förðunarsnilligáfu sína. Hún komst í topp fimm í NYX Nordic Face Awards árið 2016 og hefur lengi verið með stór- an fylgjendahóp á samfélags- miðlum. „Ég hef alltaf verið að búa eitthvað til, ég veit ekki hvort ég myndi kalla mig listakonu. En mér finnst voða gaman að búa til hluti. Ég er búin að búa Birna Jódís finnur sig knúna til að búa til bollana þegar svartsýnin tekur yfir. MYNDIR/AÐSENDAR Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is til skartgripi, verið mikið í förðun og svo hef ég líka mál- að myndir. Nú er ég að byrja að vinna með nýjan efnivið, gler, samhliða leirnum. Það er svolítið spennandi. Ég kann ekkert á það en ég prófa mig bara áfram. Ég er þannig týpa að ég bara prófa mig áfram með hluti,“ segir hún. Veitingastaðurinn ÚPS Birna Jódís býr á Höfn í Hornafirði ásamt eiginmanni sínum og þremur börnum. Þau eiga og reka veitingastaðinn ÚPS á Höfn, sem er í sama húsi og stúdíóið hennar. Þau opnuðu staðinn í miðju kófinu og segir Birna að það hefur gengið vonum framar. „Heimafólkið tekur svo vel í þetta og er duglegt að mæta svo það heldur þessu gangandi. Svo kannski koma túristarnir einhvern tímann,“ segir hún. Það er hægt að skoða boll- ana á Instagram, @end.emi. n KERAMIK Birna gerir ekki aðeins bolla heldur einnig alls konar skúlp- túra. Vasar eru einnig vinsælir hjá henni. FOKK Vinsældir bollanna eru í takt við COVID-bylgjurnar. Þegar fólk þarf að hanga heima vill það gera það með bolla sem er lýsandi fyrir ástandið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.