Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Síða 27
V örumerkið Gucci fagnar hundrað ára afmæli í ár. Merkið er
hátískumerki sem þekkist úti
um allan heim og hefur notið
svo mikilla vinsælda að það
hefur undanfarinn áratug
ratað inn í orðaforða margra
sem slanguryrði. Að eitthvað
sé Gucci þýðir að eitthvað sé
frábært, ferskt eða gott. En
lífið hjá barnabarni stofn-
anda tískuhússins var ekki
„Gucci“ heldur var markað
af eldheitri rómantík, afbrýði
og loks sviplegu morði.
Bara eitt orð
Þann 27. mars 1995 bárust
fréttir sem skóku alla Ítalíu.
Krónprins Gucci-fjölskyld-
unnar hafði verið skotinn til
bana á leið sinni til vinnu, um
hábjartan dag og að því er
virtist að tilefnislausu. Rann-
sókn lögreglu sigldi fljótt í
strand enda fundust engar
vísbendingar og engar aug-
ljósar hvatir að baki verknað-
inum. Var Gucci viðriðinn
eitthvað misjafnt? Var þetta
liður í löngum deilum fjöl-
skyldunnar um yfirráð yfir
Gucci vörumerkinu? Svo virt-
ist sem að svörin við þessum
spurningum yrðu aldrei feng-
in og fljótlega varð Gucci-
málið aðeins rykfallin mappa
í málaskrá lögreglunnar.
Tveimur árum síðar barst
þó símtal sem átti eftir að
breyta öllu. Síðla kvölds 8.
janúar árið 1997 barst lög-
reglu símtal þar sem nafnlaus
innhringjandi bað um áheyrn
yfirmannsins Filippo Ninni.
Þessi uppljóstrari vildi lítið
gefa upp í gegnum síma annað
en: „Ég ætla bara að segja eitt
orð – Gucci.“
Heyrði óvart samtal
Þetta eina orð nægði þó Fil-
ippo. Þetta var eina mögulega
vísbendingin sem lögreglu
hafði borist eftir tveggja
ára rannsókn. Filippo fór til
fundar við uppljóstrarann
sem reyndist vera gestur á
einnar stjörnu hóteli í Mílanó
og hann hafði fyrir tilviljun
heyrt samtal sem honum var
ekki ætlað að heyra.
Starfsmaður á hótelinu
hafði nefnilega verið að
stæra sig af því að hafa tekið
þátt í að fá leigumorðingja
til að ráða Gucci af dögum.
Loksins hafði lögregla eitt-
hvað í höndunum og þegar
hún hóf að rannsaka þennan
starfsmann áttu mál fljótt
eftir að skýrast og mitt í
þessum stormi var hvorki
undirheimamaður né með-
limur Gucci-fjölskyldunnar.
Nei þar var að verki kona
sem í fjölmiðlum hafði verið
kölluð fröken Gucci.
Ást við fyrstu sýn
Maurizio Gucci var við-
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
skiptamaður og einn erf-
ingja að tískuveldinu Gucci
sem afi hans stofnaði. Hann
var rétt skriðinn á þrítugs-
aldurinn þegar hann í sam-
kvæmi nokkru rak augun í
fallegustu konu sem hann
hafði séð. Hann snéri sér að
vini sínum og spurði „Hver
er þessi fallega, rauðklædda
kona sem lítur út eins og
Elizabeth Taylor?“ Umrædd
fegurðardrottning var Pat-
rizia Reggiani. Hún kom úr
ríkri fjölskyldu en taldist þó
ekki meðal elítu hinna ríku
og frægu.
Fjölskylda Maurizio var
ekki hrifin, en gat þó ekki
komið vitinu fyrir unga við-
skiptamanninn sem var yfir
sig ástfanginn. Þau gengu í
hjónaband árið 1972 og fram-
tíðin virtist björt. Patrizia
elskaði að vera orðin hluti af
Gucci-veldinu og hluti elítunn-
ar. Hún var fljótt kölluð frök-
en Gucci af fjölmiðlum og hún
og eiginmaðurinn voru kölluð
fallegasta par í heimi.
Hjónaband þeirra var
hamingjusamt fyrst um sinn
en eftir 12 ár fór Maurizio
eitt sinn í viðskiptaferð og
kom aldrei til baka. Hann lét
lækni sínum eftir að tilkynna
Patriziu að hjónabandið væri
búið, henni til lítillar gleði.
Hún stóð frammi fyrir því að
missa Gucci úr lífi sínu, bæði
tískuhúsið sem og eiginmann-
inn.
Sá fram á að missa allt
Við tók ljótur skilnaður. Pat-
rizia ætlaði ekki að standa
eftir slypp og snauð. Hún var
að missa tengsl sín við eitt
stærsta tískumerki heims og
ætlaði ekki að gera það án
þess að fá nokkuð fyrir sinn
snúð. Skilnaðarferlið tók því
heilu árin og virtist engan
endi ætla að taka.
Rétt fyrir skilnaðinn hafði
Maurizio tekið við rekstri
Gucci. Eftir að hann fór frá
Patriziu ákvað hann að fyrir-
tækjareksturinn væri ekki
fyrir hann og seldi hlut sinn
í fyrirtækinu fyrir veglega
summu. Patrizia varð brjáluð.
Annað áfallið kom svo þeg-
ar Maurizio kynntist nýrri
konu. Hann vildi nú afgreiða
skilnaðinn til að geta gifst
nýju kærustunni. Patrizia
hafði misst frá sér Gucci-
vörumerkið, og nú átti að
taka af henni Gucci-nafnið.
Hún ákvað því að koma sín-
um fyrrverandi fyrir kattar-
nef áður en nýja kona hans
næði að koma klóm sínum í
Gucci-auðæfin og rýra arfinn
sem dætur Patriziu og Mauri-
zio fengju.
Hver er nógu hugaður?
„Ég gekk á milli manna og
spurði hvort einhver væri
nægilega hugaður til að
myrða manninn minn,“ sagði
Patrizia einu sinni í viðtali.
Hún hringdi meira að segja í
Maurizio rétt áður en hann dó
og sagði honum að hann ætti
illt í vændum. Heift hennar
varð fljótt að þráhyggju.
Hún leitaði logandi ljósi að
einhverjum sem gæti ráðið
mann hennar af dögum. Hún
spurði jafnvel slátrarann sinn
og íhugaði stuttlega að gera
það sjálf, en taldi það óskyn-
SAKAMÁL samlegt þar sem hún kunni illa að fara með skotvopn.
Það var svo loksins þegar
hún leitaði til spákonu sinnar,
Giuseppina Auriemma, sem
hjólin fóru að snúast. Au-
riemma sagði síðar í viðtali:
„Hún bað alla íbúa Mílanó að
finna morðingja. Enginn tók
hana alvarlega. Ég var eini
aulinn sem beit á agnið.“
Giuseppina, kölluð Pina,
hafði þekkt Patriziu árum
saman og verið einn hennar
nánasti ráðgjafi í lífinu. Pina
kom sér í samband við Ivano
Savioni, næturstarfsmann á
áðurnefndu hóteli og hann
hafði samband við enn einn
aðila sem svo fann leigu-
morðingjann sem var fenginn
í verkið.
Eins og áður sagði var
það þessi hótelstarfsmaður
sem varð til þess að lögregla
komst á spor Patriziu. Bæði
með því að tala opinskátt um
hlut sinn í málinu án þess að
gæta að því að fólk gæti verið
að hlusta, en einnig hafði
hann á sama tíma aftur verið
að leita að morðingja. Í þetta
sinn til að kúga Patriziu til að
greiða eftirstöðvarnar fyrir
morð Maurizio.
Glæpir til sölu
Allir sem áttu hlut að máli
voru handteknir nokkrum
vikum síðar og öll voru sak-
felld. Patrizia var dæmd í 29
ára fangelsi fyrir sinn hlut,
en var sleppt eftir 16 ár og er
nú frjáls kona. Meðal sönn-
unargagnanna gegn Patri-
ziu var dagbók hennar. En
þar hafði hún skrifað: „Það
er ekki til sá glæpur sem er
ekki falur“ og daginn sem
Maurizio var drepinn hafði
hún aðeins skrifað eitt orð
„Parasdeisos“ sem er gríska
orðið fyrir paradís.
Patrizia hefur aldrei bein-
línis játað á sig morðið en
þó hefur hún sagt að hún
líti ekki á sig sem saklausa
heldur frekar sem „ekki
seka“. Fyrst þegar henni
bauðst að losna úr fangelsi
með því skilyrði að hún fengi
sér vinnu sagði hún: „Ég hef
ekki unnið einn einasta dag í
lífinu og ætla svo sannarlega
ekki að byrja á því núna“.
Hún skipti þó um skoðun og
þegar hún losnaði úr fangelsi
árið 2014 fór hún að vinna hjá
skartgripasala í hlutastarfi.
Hún sagði þó í viðtali: „Mig
dreymir um að snúa aftur til
Gucci. Mér finnst ég enn til-
heyra Gucci-fjölskyldunni –
jafnvel er ég meiri Gucci en
þau öll til samans.“
Nú kemur fljótlega út kvik-
mynd sem byggir á sögu
Patriziu og Maurizio og mun
sjálf Lady Gaga fara með
hlutverk Patriziu. Myndin
er væntanleg í nóvember á
þessu ári.
Patrizia veit af þessu og
var lítt hrifin af verkefninu
og minna hrifin af þeirri
hneisu að Lady Gaga hafi
ekki heimsótt Patriziu til að
undirbúa sig fyrir hlutverkið.
Henni fannst það bara hrein-
lega ekki „Gucci“. n
Það er ekki til
sá glæpur sem
er ekki falur.
Ást, afbrýði
og Gucci
Það dreymir alla um lúxuslífið og glamúrinn
sem því fylgir og sumir eru tilbúnir að gera
hvað sem er til að halda í góða lífið.
Fröken Gucci fékk síðar nafnið Svarta ekkjan. MYND/GETTY
DV 1. APRÍL 2021 FÓKUS 27