Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Blaðsíða 27
V örumerkið Gucci fagnar hundrað ára afmæli í ár. Merkið er hátískumerki sem þekkist úti um allan heim og hefur notið svo mikilla vinsælda að það hefur undanfarinn áratug ratað inn í orðaforða margra sem slanguryrði. Að eitthvað sé Gucci þýðir að eitthvað sé frábært, ferskt eða gott. En lífið hjá barnabarni stofn- anda tískuhússins var ekki „Gucci“ heldur var markað af eldheitri rómantík, afbrýði og loks sviplegu morði. Bara eitt orð Þann 27. mars 1995 bárust fréttir sem skóku alla Ítalíu. Krónprins Gucci-fjölskyld- unnar hafði verið skotinn til bana á leið sinni til vinnu, um hábjartan dag og að því er virtist að tilefnislausu. Rann- sókn lögreglu sigldi fljótt í strand enda fundust engar vísbendingar og engar aug- ljósar hvatir að baki verknað- inum. Var Gucci viðriðinn eitthvað misjafnt? Var þetta liður í löngum deilum fjöl- skyldunnar um yfirráð yfir Gucci vörumerkinu? Svo virt- ist sem að svörin við þessum spurningum yrðu aldrei feng- in og fljótlega varð Gucci- málið aðeins rykfallin mappa í málaskrá lögreglunnar. Tveimur árum síðar barst þó símtal sem átti eftir að breyta öllu. Síðla kvölds 8. janúar árið 1997 barst lög- reglu símtal þar sem nafnlaus innhringjandi bað um áheyrn yfirmannsins Filippo Ninni. Þessi uppljóstrari vildi lítið gefa upp í gegnum síma annað en: „Ég ætla bara að segja eitt orð – Gucci.“ Heyrði óvart samtal Þetta eina orð nægði þó Fil- ippo. Þetta var eina mögulega vísbendingin sem lögreglu hafði borist eftir tveggja ára rannsókn. Filippo fór til fundar við uppljóstrarann sem reyndist vera gestur á einnar stjörnu hóteli í Mílanó og hann hafði fyrir tilviljun heyrt samtal sem honum var ekki ætlað að heyra. Starfsmaður á hótelinu hafði nefnilega verið að stæra sig af því að hafa tekið þátt í að fá leigumorðingja til að ráða Gucci af dögum. Loksins hafði lögregla eitt- hvað í höndunum og þegar hún hóf að rannsaka þennan starfsmann áttu mál fljótt eftir að skýrast og mitt í þessum stormi var hvorki undirheimamaður né með- limur Gucci-fjölskyldunnar. Nei þar var að verki kona sem í fjölmiðlum hafði verið kölluð fröken Gucci. Ást við fyrstu sýn Maurizio Gucci var við- Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is skiptamaður og einn erf- ingja að tískuveldinu Gucci sem afi hans stofnaði. Hann var rétt skriðinn á þrítugs- aldurinn þegar hann í sam- kvæmi nokkru rak augun í fallegustu konu sem hann hafði séð. Hann snéri sér að vini sínum og spurði „Hver er þessi fallega, rauðklædda kona sem lítur út eins og Elizabeth Taylor?“ Umrædd fegurðardrottning var Pat- rizia Reggiani. Hún kom úr ríkri fjölskyldu en taldist þó ekki meðal elítu hinna ríku og frægu. Fjölskylda Maurizio var ekki hrifin, en gat þó ekki komið vitinu fyrir unga við- skiptamanninn sem var yfir sig ástfanginn. Þau gengu í hjónaband árið 1972 og fram- tíðin virtist björt. Patrizia elskaði að vera orðin hluti af Gucci-veldinu og hluti elítunn- ar. Hún var fljótt kölluð frök- en Gucci af fjölmiðlum og hún og eiginmaðurinn voru kölluð fallegasta par í heimi. Hjónaband þeirra var hamingjusamt fyrst um sinn en eftir 12 ár fór Maurizio eitt sinn í viðskiptaferð og kom aldrei til baka. Hann lét lækni sínum eftir að tilkynna Patriziu að hjónabandið væri búið, henni til lítillar gleði. Hún stóð frammi fyrir því að missa Gucci úr lífi sínu, bæði tískuhúsið sem og eiginmann- inn. Sá fram á að missa allt Við tók ljótur skilnaður. Pat- rizia ætlaði ekki að standa eftir slypp og snauð. Hún var að missa tengsl sín við eitt stærsta tískumerki heims og ætlaði ekki að gera það án þess að fá nokkuð fyrir sinn snúð. Skilnaðarferlið tók því heilu árin og virtist engan endi ætla að taka. Rétt fyrir skilnaðinn hafði Maurizio tekið við rekstri Gucci. Eftir að hann fór frá Patriziu ákvað hann að fyrir- tækjareksturinn væri ekki fyrir hann og seldi hlut sinn í fyrirtækinu fyrir veglega summu. Patrizia varð brjáluð. Annað áfallið kom svo þeg- ar Maurizio kynntist nýrri konu. Hann vildi nú afgreiða skilnaðinn til að geta gifst nýju kærustunni. Patrizia hafði misst frá sér Gucci- vörumerkið, og nú átti að taka af henni Gucci-nafnið. Hún ákvað því að koma sín- um fyrrverandi fyrir kattar- nef áður en nýja kona hans næði að koma klóm sínum í Gucci-auðæfin og rýra arfinn sem dætur Patriziu og Mauri- zio fengju. Hver er nógu hugaður? „Ég gekk á milli manna og spurði hvort einhver væri nægilega hugaður til að myrða manninn minn,“ sagði Patrizia einu sinni í viðtali. Hún hringdi meira að segja í Maurizio rétt áður en hann dó og sagði honum að hann ætti illt í vændum. Heift hennar varð fljótt að þráhyggju. Hún leitaði logandi ljósi að einhverjum sem gæti ráðið mann hennar af dögum. Hún spurði jafnvel slátrarann sinn og íhugaði stuttlega að gera það sjálf, en taldi það óskyn- SAKAMÁL samlegt þar sem hún kunni illa að fara með skotvopn. Það var svo loksins þegar hún leitaði til spákonu sinnar, Giuseppina Auriemma, sem hjólin fóru að snúast. Au- riemma sagði síðar í viðtali: „Hún bað alla íbúa Mílanó að finna morðingja. Enginn tók hana alvarlega. Ég var eini aulinn sem beit á agnið.“ Giuseppina, kölluð Pina, hafði þekkt Patriziu árum saman og verið einn hennar nánasti ráðgjafi í lífinu. Pina kom sér í samband við Ivano Savioni, næturstarfsmann á áðurnefndu hóteli og hann hafði samband við enn einn aðila sem svo fann leigu- morðingjann sem var fenginn í verkið. Eins og áður sagði var það þessi hótelstarfsmaður sem varð til þess að lögregla komst á spor Patriziu. Bæði með því að tala opinskátt um hlut sinn í málinu án þess að gæta að því að fólk gæti verið að hlusta, en einnig hafði hann á sama tíma aftur verið að leita að morðingja. Í þetta sinn til að kúga Patriziu til að greiða eftirstöðvarnar fyrir morð Maurizio. Glæpir til sölu Allir sem áttu hlut að máli voru handteknir nokkrum vikum síðar og öll voru sak- felld. Patrizia var dæmd í 29 ára fangelsi fyrir sinn hlut, en var sleppt eftir 16 ár og er nú frjáls kona. Meðal sönn- unargagnanna gegn Patri- ziu var dagbók hennar. En þar hafði hún skrifað: „Það er ekki til sá glæpur sem er ekki falur“ og daginn sem Maurizio var drepinn hafði hún aðeins skrifað eitt orð „Parasdeisos“ sem er gríska orðið fyrir paradís. Patrizia hefur aldrei bein- línis játað á sig morðið en þó hefur hún sagt að hún líti ekki á sig sem saklausa heldur frekar sem „ekki seka“. Fyrst þegar henni bauðst að losna úr fangelsi með því skilyrði að hún fengi sér vinnu sagði hún: „Ég hef ekki unnið einn einasta dag í lífinu og ætla svo sannarlega ekki að byrja á því núna“. Hún skipti þó um skoðun og þegar hún losnaði úr fangelsi árið 2014 fór hún að vinna hjá skartgripasala í hlutastarfi. Hún sagði þó í viðtali: „Mig dreymir um að snúa aftur til Gucci. Mér finnst ég enn til- heyra Gucci-fjölskyldunni – jafnvel er ég meiri Gucci en þau öll til samans.“ Nú kemur fljótlega út kvik- mynd sem byggir á sögu Patriziu og Maurizio og mun sjálf Lady Gaga fara með hlutverk Patriziu. Myndin er væntanleg í nóvember á þessu ári. Patrizia veit af þessu og var lítt hrifin af verkefninu og minna hrifin af þeirri hneisu að Lady Gaga hafi ekki heimsótt Patriziu til að undirbúa sig fyrir hlutverkið. Henni fannst það bara hrein- lega ekki „Gucci“. n Það er ekki til sá glæpur sem er ekki falur. Ást, afbrýði og Gucci Það dreymir alla um lúxuslífið og glamúrinn sem því fylgir og sumir eru tilbúnir að gera hvað sem er til að halda í góða lífið. Fröken Gucci fékk síðar nafnið Svarta ekkjan. MYND/GETTY DV 1. APRÍL 2021 FÓKUS 27

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.