Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2021, Page 34
Stálheiðarlegur kjötréttur frá Belgíu „Þetta er „stoofvlees“ eða í beinni þýðingu „Eldavélakjöt .“ Þessi réttur var fyrsti rétturinn sem ég gerði í Soð og fór hann í loftið fyrir rétt rúmlega fjórum árum,“ segir Kristinn. 800 g grísavangi/nautagúllas 2 stórir laukar 1 msk. malt-edik (eða eplaedik) Pipar & salt 2 msk. sinnep 6 geirar hvítlaukur 2 msk. timían 2 brauðsneiðar 1 líter gott kjötsoð 2 33 cl dökkur bjór 2 lárviðarlauf Skerið laukinn gróft niður. Flysjið hvítlaukinn, skerið smátt (því smærra sem þú skerð hvítlaukinn því sterkari verður hann). Skerið kjötið í sirka 4-7 cm teninga. Steikið kjötið á mjög háum hita, náið góðum lit. Setjið kjötið til hliðar. Steikið laukinn þar til hann verður gullinbrúnn og sveittur. Bætið við hvítlauknum, steikið í stutta stund. Einn líter af soði. Smyrja brauðið með dijon og bætið út í soðið. Ná upp suðu. Timían og lárviðarlauf sett í pottinn. Þegar suðan er komin upp þá er bjórnum hellt út í. Náið upp suðu aftur. Kjöt í pottinn og edik með. Mallað í 1-2 klukkutíma eða þangað til að kjötið fellur í sundur. Kjöt og lárviðarlauf veitt úr pottinum (reynið að halda sem mestum lauk í pottinum). Töfrasproti notaður til að blanda sósuna uns hún er þykk og falleg. Kjöt sett út í aftur og hitað upp í svona 10 mínútur á lágum hita. Svo bara njóta með til dæmis belg- ískum kartöflum (frönskum) eða kartöflustöppu. Matseðill Kristins Morgunmatur Vatnsglas með hálfri kreistri sítr­ ónu og espresso. Hádegismatur Brauðsneið með einhverjum ostum og salat stundum, ef vel stendur á. Ég dýrka marmite og set það oft á ristað brauð með smjöri. Millimál Ávextir Kvöldmatur Hvað sem er, fer eftir hvað ég hef mikinn tíma. Á virkum dögum er það yfirleit t grænmetisrét tur. Við þykjumst fara til Asíu og Ítal íu og svo er það belgíska mat­ seldin, mikið af kartöflum. 34 MATUR Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Reiður yfir kjaftæðis- eldhúsáhöldum Myndlistarmaðurinn Kristinn Guðmundsson hefur verið að slá í gegn í eldhúsi matreiðsluþáttarins Soð um árabil. Hann er tilgerðarlaus og ein- faldur í eldhúsinu, hann þarf ekki nýjustu græjurnar, aðeins góðan hníf. Þ að er óhætt að segja að dagar Kristins séu fjölbreyttir. Hann er myndlistarmaður, einn höf- unda og flytjenda sviðslista- hópsins Marmarabörn og sér um matreiðsluþáttinn Soð á RÚV. Svo enginn dagur er eins, það fer einfaldlega eftir því hvaða verkefnum hann er að sinna. Hann reynir þó að byrja alla daga snemma og á göngutúr til að brjóta upp daginn, þar sem hann vinnur mestmegnis heima, hvort sem það er COVID eða ekki. Mataræðið „Ég er alltaf tilbúinn í að smakka. Það skiptir engu máli hvernig það lyktar eða lítur út. En við á heimilinu erum fisk- ætur (e. pesceterian), aðal- lega grænmetisætur sex daga vikunnar og fáum okkur kjöt á sunnudögum. Annars er þetta mestmegnis grænmeti, rosa mikið ávextir og brauð. Það er mjög gott bakarí nálægt mér og við förum þangað mjög reglulega að kaupa brauð,“ segir Kristinn og bætir við hvað það sé frískandi að gefa sér tíma til að standa í röðinni í sólskininu, horfa yfir síkið og fara heim með gott brauð. Hann segir að það sé allt of algengt þessa dagana að fólk gefi sér ekki tíma í svona lagað en það sé nauðsynlegt. Verður heitt í hamsi Þegar kemur að því að nefna eldhúsáhald sem honum þykir nauðsynlegt í hvert eldhús, nefnir Kristinn góðan hníf. „Góður hnífur sem er góður fyrir þig er mitt uppáhalds- tól. Það gerir allt lífið miklu betra. Hann þarf ekki að vera dýr, hann þarf að vera góður. Eiga einn lítinn og einn kokka- hníf. Það er nóg, það þarf ekkert meira. Ég sker meira að segja brauðið mitt með kokkahnífnum mínum. Ég þarf ekkert að eiga fjörutíu hnífa,“ segir hann. Það er Kristni mikið hita- mál að nefna áhöld sem eru gjörsamlega gagnslaus að hans mati. „Ég verð reiður og ég er ekki að djóka, ég er mjög „stabíll“ náungi en verð mjög reiður þegar ég sé svona kjaftæðiseldhúsáhöld, eins og til dæmis plasthólk til að sjóða egg, ég sá það á netinu um daginn. Og avókadóhníf og allt svona. Ég verð alveg brjálaður þegar ég sé svona kjaftæði,“ segir hann, en viðurkennir að sig langi í eina græju, hrísgrjónapott. Gerðu pítsaofn úr jörðinni Aðspurður hvort hann eigi sér uppáhaldsmáltíð segist Krist- inn horfa til upplifunarinnar frekar en þess sem er á diskn- um. Hvar hann er og með hverjum skiptir meira máli en hvað er í matinn. Hann rifjar upp skemmtilega matarminn- ingu þegar hann var í útilegu á Ítalíu með kærustu sinni og vinafólki. „Við vorum á tjaldsvæði og það byrjaði að rigna. Vinur minn er skúlptúrgerðarmað- ur og vinnur mikið með leir. Við föttuðum að jörðin varð bara að leir þegar það rigndi. Við bjuggum til pítsaofn úr leirnum og elduðum pítsur og lasagna í honum. Það er held ég mín uppáhaldsminn- ing af mat. Þó þessar pítsur hafi kannski verið smá hráar á einum stað og brenndar á öðrum, þá gerði allt þetta ves- en í kringum máltíðina hana svo miklu betri. Ég held að vesen sé svolítið einkunnar- orð mitt í eldhúsinu. Því við njótum svo mikilla forrétt- inda, við þurfum ekkert að leita að mat. Förum bara út í búð eða pöntum mat heim, en þessi gamla tilfinning að hafa virkilega unnið fyrir matnum er ekki. Maður er orðinn rosalega svangur því maður byggði sér helvítis pítsaofn til að borða, svo fær maður loksins pítsuna og hún er þá svo ótrúlega góð. Það er uppáhaldsmaturinn minn.“ n 1. APRÍL 2021 DV Það er hægt að nálgast fullt af þáttum af Soð og uppskriftum á Soð.is. Þú getur einnig fylgst með ævin- týrum Kristins á Instagram @kristinnsod og á YouTube-síðunni Soð. MYNDIR/AÐSENDAR Ég er alltaf tilbúinn í að smakka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.