Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2018, Qupperneq 23
FRÆÐSLUVIÐBURÐUR / LECTURE
REGNBOGASKÓLAR FYRIR ÖLL BÖRN
RAINBOW SCHOOLS FOR ALL CHILDREN
Á þessum viðburði verður staða hinsegin nemenda í
skólakerfinu skoðuð og rætt hvernig hægt sé að gera skóla betri
fyrir öll börn – ekki bara þau sem gætu fallið undir merkimiðann
„hinsegin“. Sólveig Rós, fræðslustýra Samtakanna ‘78, kynnir
helstu rannsóknir á þessu sviði og hvar Íslendingar standa í
alþjóðlegum samanburði. Sigga Birna, ráðgjafi hjá Samtökunum
og grunnskólakennari, fjallar um orðræðu og hefðir innan
skólakerfisins sem ýta undir staðalmyndir kynjanna og hvernig
hægt sé að vinna gegn neikvæðum afleiðingum þeirra. Einnig
munu Kristinn Þorsteinsson, skólameistari Fjölbrautaskólans
í Garðabæ, og Bjarni Snæbjörnsson, leikari og fyrrverandi
leiklistarkennari við FG, ræða sína reynslu af að setja hinsegin
stefnu fyrir skólann og af hverju það er mikilvægt. Í lokin verður
boðið upp á umræður.
Þessi viðburður er sérstaklega ætlaður kennurum og öðrum sem
vinna með börnum og ungmennum en öllum áhugasömum er
velkomið að mæta. Viðburðurinn fer fram á íslensku.
What is the status of LGBTQIAP children in the school system? At this
event we will discuss how we can make the school more open and
accepting for all children and youth – not just those who might be
described as queer. Sólveig Rós, education officer of Samtökin ‘78,
will introduce the latest research on the matter and how Iceland
compares internationally. Sigga Birna, advisor for Samtökin and
a teacher, will share her experience of how norms and discourse
within schools create and strengthen gender stereotypes and how
to battle the negative consequences of that. Kristinn Þorsteinsson,
principal of FG secondary school, and Bjarni Snæbjörnsson, actor
and former drama teacher at the same school, will share their
experience of creating an LGBTI equality policy for the school and
why that matters. A forum for discussion will be provided at the
end of the event.
This event is aimed towards those working with children and
youth, such as teachers, but everyone interested is welcome to
attend. Event in Icelandic.
Safnahúsinu, Hverfisgötu 15,
fimmtudaginn 9. ágúst kl. 16:00.
Aðgangur ókeypis.
Safnahúsið, Hverfisgata 15, Thursday 9
August at 4:00 p.m. Free admission.
Til hamingju
með daginn!
Siðmennt styður opið, víðsýnt
og fjölbreytt samfélag.
Félag siðrænna húmanista á Íslandi | sidmennt.is