Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2018, Blaðsíða 68
Eftirtaldir
ráðherrar styðja
Hinsegin daga
2018:
Ásmundur Einar Daðason
félags- og jafnréttismálaráðherra
Bjarni Benediktsson
fjármála- og efnahagsráðherra
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
Lilja Alfreðsdóttir
mennta- og menningarmálaráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Svandís Svavarsdóttir
heilbrigðisráðherra
Hýrar þakkir fyrir
stuðninginn
HINSEGIN DAGAR
REYKJAVIK PRIDE
Hinsegin frá Ö til A
Vefsíðan Hinsegin frá Ö til A, www.otila.is, fór í loftið í október
árið 2017. Hún var stofnuð af Írisi Ellenberger og Auði Magndísi
Auðardóttur. Síðan er ætluð öllum þeim sem vilja kynna sér
hinsegin málefni á íslensku. Þær höfðu ótal sinnum heyrt fólk
kvarta yfir „öllum þessum hugtökum“ og vissu að það ætti í
erfiðleikum með að finna áreiðanlegar upplýsingar á íslensku.
Viðbrögðin hafa verið mjög góð. Á síðustu mánuðum hafa rúmlega
6000 manns farið inn á síðuna samtals um 9000 sinnum.
Þær hafa fengið fregnir af því að síðan sé notuð í kennslu, t.d. í
mörgum framhaldsskólum, í Háskóla Íslands (t.d. í uppeldis- og
menntunarfræði og íslensku) og í fræðslu Samtakanna ‘78, Q –
félags hinsegin stúdenta og fyrirlestrum Siggu Daggar og Áslaugar
Kristjánsdóttur kynfræðinga. Það hlaut svo sem að vera einhver
ástæða fyrir því að ítrekað eru 30–40 manns inni á síðunni í einu
klukkan níu á morgnana!
Á síðunni má finna nærri 30 reynslusögur hinsegin fólks þar sem það
setur hin ýmsu hinsegin hugtök í persónulegt samhengi. Írisi og Auði
finnst mikilvægt að sýna að hinsegin hugtök eru ekki bara tæknileg
og þurr orð heldur skipta þau sköpum fyrir sjálfsmynd og líf hinsegin
fólks. Reynslusögurnar eru það efni sem er hvað vinsælast á vefnum
en þar á eftir koma ýmis grunnhugtök, t.d. hinsegin, kynsegin,
kyn og kyngervi.
Topp 5 listi
1. Kynsegin
Kynsegin er hugtak sem nær yfir fólk sem skilgreinir
kyn sitt utan tvíhyggju kynjakerfisins (og er því einnig
trans). Sumt kynsegin fólk er t.d. karlkyns og kvenkyns,
annað hvorki karlkyns né kvenkyns eða skilgreinir ekki
kyn sitt. Kynsegin er því í raun regnhlífarhugtak undir
regnhlífarhugtakinu trans.
Kynhneigð segir til um hverjum fólk getur laðast að, orðið
skotið í eða ástfangið af.
3. Hinsegin
Orðið hinsegin hefur margvíslegar merkingar og
skírskotanir. Í hinsegin umræðu hérlendis hefur það
öðlast sess sem regnhlífarhugtak yfir allt það fólk sem
er ekki gagnkynhneigt og/eða fellur ekki inn í það
sem telst hefðbundið kyn eða kynhlutverk.
4. Kyn og kyngervi
Kyn og kyngervi eru lykilhugtök bæði innan
hinseginfræða og kynjafræða. Í þessum fræðum þykir
oft gagnlegt að greina á milli líffræðilegs kyns annars
vegar, sem þá er einfaldlega nefnt kyn, og hins vegar
félagslega mótað kyns, sem þá er nefnt kyngervi.
5. Trans
Trans er regnhlífarheiti yfir fólk sem er með
kynvitund sem samræmist ekki því kyni sem því var
úthlutað við fæðingu.
2. Kynhneigð