Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2018, Blaðsíða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2018, Blaðsíða 30
VIÐBURÐUR / EVENTS TÓNLEIKAR HINSEGIN KÓRSINS REYKJAVÍK QUEER CHOIR CONCERT Fríkirkjunni í Reykjavík, föstudaginn 10. ágúst kl. 18:00. Aðgangseyrir: 2.500 kr. í forsölu. Við hurð: 3.000 kr. Pride-passi veitir 500 kr. afslátt við hurð. Fríkirkjan Church in Reykjavík, Friday 10 August at 6:00 p.m. Pre-sale tickets: 2.500 ISK. Full price tickets: 3.000 ISK. 500 ISK discount at the door with Pride pass. Hinsegin kórinn efnir til tónleika í tilefni Hinsegin daga. Kórinn hefur á undanförnum árum getið sér afar gott orð fyrir góðan söng og skemmtilega framkomu en hann syngur undir stjórn tónlistarkonunnar Helgu Margrétar Marzellíusardóttur. Hinsegin kórinn hefur komið víða fram, bæði hér heima og erlendis, og hélt á vordögum til München og tók þátt í hinsegin kóramótinu Various Voices við gríðargóðar undirtektir. Kórinn hefur áður sungið meðal annars í Færeyjum, London, Dublin og Helsinki. Efnisskrá tónleikanna að þessu sinni inniheldur blöndu af íslenskum og erlendum lögum sem sum hver hafa verið útsett sérstaklega fyrir kórinn. Meðleikari er Vignir Þór Stefánsson. The Reykjavík Queer Choir performs in Fríkirkjan Church in Reykjavík on Friday 10 August. The choir has performed in London, Dublin, Helsinki and recently at Various Voices in Munich. The programme contains a variety of songs so everyone should find something to their liking. The choir is conducted by Helga Margrét Marzellíusardóttir and accompanied by Vignir Þór Stefánsson on piano. VIÐBURÐUR / EVENTS LJÓÐASAMKEPPNI HÝRIR HÚSLESTRAR QUEEREADS Stúdentakjallaranum, Sæmundargötu 4, föstudaginn 10. ágúst kl. 17:00. Aðgangur ókeypis. Stúdentakjallarinn, University of Iceland, Friday 10 August at 5 p.m. Free admission. Bókmenntaviðburður Hinsegin daga sló enn og aftur í gegn á síðasta ári og hefur fest sig rækilega í sessi sem einn skemmtilegasti viðburður ársins. Júlía Margrét Einarsdóttir mun lesa úr nýútkominni bók sinni Jarðarberjatungli. Aðdáendur pólitískra trylla af bestu gerð geta glaðst því lesið verður upp úr bók Lilju Sigurðardóttur, Svik, sem mun koma út í október. Einnig verður lesið upp úr skáldsögunni Homo sapína eftir grænlenska rithöfundinn Niviaq Korneliussen í nýrri íslenskri þýðingu Heiðrúnar Ólafsdóttur. Þá munu listamenn Rauða skáldahússins taka þátt með sínum hætti auk þess sem fleiri hinsegin skáld stíga á stokk. Viðburðurinn fer fram á íslensku. Reykjavik Pride invites you once again to enjoy a poetic Friday afternoon of Icelandic literary readings and performances. Writer Júlía Margrét Einarsdóttir will read from her new book Jarðarberjatungl, and Lilja Sigurðardóttir will perform a dramatic reading from her unpublished book Svik. There will also be a reading from the new Greenlandic novel Homo Sapína by Niviaq Korneliussen, as translated by Heiðrún Ólafsdóttir. Additionally a selection of queer poets will perform from their own pieces – and be prepared for a surprise guest. Event in Icelandic. Ertu inni í ljóðaskápnum? Áttu örsögur í skúffunni sem þrá að verða sýnilegar? Núna er rétti tíminn til að opna sig því Hinsegin dagar efna enn á ný til ljóðasamkeppni. Hinsegin skáld, jafnt óreynd sem reynsluboltar, eru hvött til að senda inn ljóð eða örsögur og taka þannig þátt í að efla og auka við hina blómlegu menningu okkar. Þátttakendur sendi texta í tölvupósti á netfangið huslestrar@gmail.com fyrir 1. ágúst. Dómnefnd fær textana nafnlausa í hendurnar og henni eru ekki veittar upplýsingar um höfunda fyrr en þrjú verðlaunaverk hafa verið valin. Úrslit verða tilkynnt á Hýrum húslestrum á Hinsegin dögum föstudaginn 10. ágúst þar sem verðlaunatextarnir verða enn fremur fluttir. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.