Hinsegin dagar í Reykjavík - Aug 2018, Page 36
Tómas Magnús Tómasson 23. maí 1954 – 23. janúar 2018
Í MINNINGU TOMMA TOMM EÐA
HOMMA HOMM
Guðni Baldursson 4. mars 1950 – 8. júlí 2017
BJARTASTA HERBERGIÐ Í BÆNUM
Guðni var fyrsti formaður Samtakanna,
vann ötullega fyrir þau og opnaði heimili
sitt fyrir félögum svo það var stundum
eins og félagsheimili. Hann var vel lesinn
og fróðleiksfús og fylgdist vel með þróun
í baráttu samkynhneigðra erlendis, aflaði
sér fræðibóka og var áskrifandi að fjölda
gay tímarita sem sáust annars hvergi hér
á landi.
Á vettvangi Samtakanna upp úr 1980
kynntist Guðni tilvonandi eiginmanni
sínum, Helga Viðari Magnússyni
Staðurinn þar sem margir hittu Guðna
Baldursson fyrst lét ekki mikið yfir sér,
gluggalaust kjallaraherbergi í Garðastræti
2, en í hugum þeirra sem komu þangað
var það samt bjartasta herbergið í bænum,
griðastaður fullur af björtum vonum og
baráttuþreki. Þetta var fyrsta húsnæði
Samtakanna ‘78 og þar tók Guðni á
móti félögum með alúð og vinsemd og
morgunbjartur baráttuandinn var ekki síst
honum að þakka.
Tómas Magnús Tómasson, sem alltaf var
kallaður Tommi Tomm, féll frá í janúar
á þessu ári eftir snarpa baráttu við
krabbamein en hann hefði orðið 64 ára
hinn 23. maí. Tommi var þekktastur fyrir
framlag sitt til íslenskrar tónlistar með
Stuðmönnum og Þursaflokknum en
hann kom einnig að gerð fleiri platna en
flestir aðrir Íslendingar sem bassaleikari
og upptökustjóri.
Ég hafði átt kunningskap við Tomma í
mörg ár þegar ég ásamt fámennum hópi
komum Hinsegin dögum í Reykjavík á
laggirnar undir því nafni árið 2000. Við
leituðum til fjölda tónlistarmanna og
annarra listamanna um að koma fram og
var það yfirleitt auðsótt en Tommi bauð
sig fram að fyrra bragði. Hann sagðist
ætla að skella í hljómsveit fyrir hátíðina
og í mörg ár kom hann með ný atriði og
hljómsveitir undir alls kyns nöfnum.
Svo kom að því að hann bauð Stuðmenn
fram á einum af okkar fyrstu hátíðum. Í
útför hans í Hallgrímskirkju, þar sem vinir
hans úr Stuðmönnum og Þursaflokknum
fóru framarlega í tónlistarflutningi og
minningarorðum, mátti skilja á Jakobi
Magnússyni að Tommi hafi eiginlega
tilkynnt félögum sínum í hljómsveitinni
að Stuðmenn yrðu á Hinsegin dögum.
Það var svo mjög í anda Tomma að hann
gaf sjálfum sér nafnið Hommi Homm
þegar hann kom fram á Hinsegin dögum
og skírði aðra meðlimi Stuðmanna nýjum
gay-nöfnum þegar þeir stigu á stokk.
Tommi var nefnilega einn mesti húmoristi
sem ég hef kynnst og gamansögur af
honum sjálfum og öðru fólki spruttu frá
honum þegar maður hitti hann.
En þótt Tommi hafi verið mikill sprellari
og grallari var hann í raun mjög prívat
maður með sig og einkalíf sitt. Það þýddi
hins vegar ekki að hann væri í neinum
felum og hann var alla tíð mjög skotinn
í og stoltur af manninum sínum honum
Magga, eða Magnúsi Gísla Arnarsyni.
Tommi var nefnilega líka Hommi Homm.
Tommi var snillingur á mörgum
sviðum og úrræðagóður þegar leitað
var til hans með ýmislegt sem kom að
skemmtiatriðum á Hinsegin dögum.
Hann var líka mjög hlýr og góður vinur
og því ákaflega þægilegt að vera í návist
hans. Ég þakka honum samfylgdina í
gegnum árin. Minningarnar um hann
kalla fram notalega tilfinningu, bros,
virðingu og ást.
Fyrir hönd Hinsegin daga þann rúma
áratug sem ég fór fyrir þeim þakka
ég honum ómetanlegt framlag til
hátíðarinnar og votta Magga og öðrum
vinum og vandamönnum mína dýpstu
samúð. Hann var kræfur karl og góður
hann Tommi Tomm.
Heimir Már Pétursson
36