Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2018, Síða 46
Drag-Súgur verður til
Skömmu áður en Draggkeppni
Íslands 2015 fór fram stofnaði Ólafur
Helgi Móberg, einnig þekktur sem
dragdrottningin Starina, Facebook-
hóp sem kallaðist Hommaspjallið. Þar
kom upp umræða um skort á hinsegin
viðburðum, sem varð til þess að
skipulagðir voru hittingar á kaffihúsum
þar sem yngri og eldri meðlimir senunnar
gætu komið saman, tengst og deilt
upplýsingum. Þar komst Sigurður í kynni
við virka meðlimi hinsegin samfélagsins.
Hann sjálfur, Hafsteinn Himinljómi
Regínuson og Þórhallur Hafþórsson
ákváðu að láta slag standa og halda eigin
dragviðburð í nóvember það sama ár
undir heitinu Drag-Súgur. Þeir smöluðu
saman um tíu manns til þess að taka þátt
í sýningunni og fengu sjálfan Pál Óskar til
þess að leggja hönd á plóg. „Við vissum
ekkert hvert þetta myndi fara, við vildum
bjóða alla velkomna og auglýsa eins vel
og við gætum en á sama tíma einbeita
okkur líka að hinsegin senunni og
dragsýningunni sem hinsegin viðburði.
Þetta sprakk svo alveg út og varð að
mánaðarlegum viðburði sem er enn í
gangi í dag,“ segir Sigurður.
Í fyrstu var talsvert um lifandi tónlist
og andi kabarettsins sveif yfir vötnum
en smám saman þróaðist Drag-Súgur
í að vera nær eingöngu dragsýning.
Gríðarmargir hafa áhuga á að taka þátt
og koma fram, sem varð til þess að sett
var á laggirnar önnur mánaðarleg sýning,
svokallað Drag-Lab, þar sem aðgangur er
ókeypis og tilraunastarfsemi í hávegum
höfð. „Þar er fólk að þjálfa sig í að koma
fram, prufa eitthvað nýtt og sumir eru að
koma fram í algjörlega fyrsta skipti. Þetta
er magnað,“ segir Sigurður. Hann segir
gæðastaðalinn hafa hækkað stöðugt og
sífellt meiri metnaður sé lagður í sýningar
Drag-Súgs en hópurinn hefur komið fram
við ýmis tækifæri auk reglubundinna
sýninga, m.a. á afar veglegum sýningum
á Hinsegin dögum: „Mér finnst
gæðastaðallinn í íslensku skemmtanalífi
almennt vera mjög hár, fólk veit hvað það
vill og veit hvað það er að borga fyrir. Það
vill gæðaskemmtun og það er það sem
við gerum.“ Í kjölfar vinsælda Drag-Súgs
hafa fleiri reglulegir dragviðburðir bæst
við hinsegin skemmtanalíf Reykjavíkur:
Lip-Sync Karaoke er haldið vikulega, fólk
horfir saman á RuPaul‘s Drag Race og
reglulega kemur erlent draglistafólk fram
á skemmtistöðum borgarinnar.
Opnara samfélag
endurspeglast í
dragsenunni
Sigurður segir vinsældir drags ná út
fyrir hinsegin senuna og rúmlega það.
„Mér finnst að síðan 2014–15 hafi
meginstraumurinn farið að sýna dragi
meiri athygli. Við reiknuðum með að
áhorfendahópurinn okkar í Drag-Súgi
yrði bara frekar lítill hópur af hinsegin
fólki en svo var strax allt troðfullt af öðru
fólki, sérstaklega gagnkynhneigðum
konum sem höfðu mikinn áhuga á
dragi og sáu dragsýninguna fyrst og
fremst sem góða skemmtun. Það var
ekki fyrr en um ári seinna, þegar Drag-
Súgur hafði fest sig í sessi, sem hinsegin
samfélagið fór að verða áberandi í
áhorfendahópnum líka.“ Að sögn
Sigurðar hefur sífellt yngra fólk einnig
áhuga á dragi, sérstaklega í gegnum
samfélagsmiðlana, en þetta telur hann
Dragdrottning að
norðan kemur til
Reykjavíkur
Sigurður Heimir Starr Guðjónsson er
áberandi í íslensku dragsenunni í dag
sem dragdrottningin Gógó Starr. Hann er
tuttugu og fjögurra ára gamall og kemur
frá Akureyri, þar sem hann stofnaði ásamt
fleirum Dragkeppni Norðurlands árið
2011. „Þetta byrjaði í rauninni sem „flipp“
í vinahópnum en síðan bara mættu
áhorfendur þannig að við ákváðum að
gera þetta árlega og búa til alvöru
skemmtun,“ útskýrir Sigurður.
Hann byrjaði af fullri alvöru í dragi
eftir þetta, vann Dragkeppni Norðurlands
árið 2013 og flutti til Reykjavíkur ári síðar.
„Ég hafði stórborgardrauma um
Reykjavík, fjölskyldan fór sjaldan suður
og ég þekkti mjög fáa,“ segir hann. „Ég
var viss um að hér væri allt í gangi, allt
menningarlífið og öll hinseginsenan,
hellingur af dragi og hér gæti ég komið
fram og fundið minn stað. Þegar ég kom
suður áttaði ég mig á að þetta var ekki
raunin, það var ekki raunveruleg
dragsena til staðar. Það var vissulega
Draggkeppni Íslands einu sinni á ári en
lítið var í gangi í hinsegin lífinu árið um
kring og aðeins einn hinsegin
skemmtistaður – regnbogaskreyttur en
að öðru leyti bara venjulegur dansstaður.“
Þegar Sigurður hafði komið sér fyrir
einsetti hann sér að vinna Draggkeppni
Íslands og nýta titilinn til þess að hrista
upp í hinseginsenu borgarinnar. Það
gekk eftir og Gógó Starr varð
Draggdrottning Íslands árið 2015.
Keppnin hefur ekki verið haldin síðan og
Sigurður heldur því enn titlinum.
46