Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2018, Qupperneq 53
Sólveig Rós er
tvíkynhneigð kona og
Alexander Björn er
gagnkynhneigður trans
maður. Þau eru búin að
vera saman í tvö ár og ætla
að gifta sig í sumar. Þau
búa saman í lítilli notalegri
íbúð á Stúdentagörðunum.
Sólveig er fræðslustýra
Samtakanna ‘78 og
Alexander er að læra
félagsráðgjöf. Þau urðu
foreldrar í júlí 2017 þegar
þau eignuðust saman
dótturina Ylfu Líf.
Í upphafi
Sólveig og Alexander kynntust í
eftirpartýi eftir aðalfund Samtakanna
‘78. Sólveig komst að því í partýinu að
Alexander hafði aldrei séð bíómyndina
Með allt á hreinu, svo að þau hittust
stuttu seinna til að horfa á hana. Því má
þakka Stuðmönnum, eða áhugaleysi
um þá, fyrir sambandið. Þau höfðu bæði
verið í samböndum þar sem barneignir
voru ekki í boði svo að þau ræddu mjög
snemma í sambandinu áhuga sinn á
barneignum og fóru fljótt að huga að
þeim.
S: Við gátum ekki farið að huga að
barneignum þegar við vorum ekki einu
sinni búin að vera saman í mánuð. Svo
þegar mánuður var liðinn var sú afsökun
farin og þá þýddi ekkert annað en fara að
ræða barneignir af alvöru.
Þau voru nýbyrjuð saman þegar þau fóru
af stað í ferlið, bjuggu ekki saman og áttu
ekki krónu. Þetta getur verið rándýrt ferli
og tekið mikið á fólk en þau voru heppin,
það þurfti ekki margar tilraunir áður en
Ylfa varð til. Þegar þau hófu ferlið voru
þau bæði með eggjastokka og leg svo að
þau fengu gjafasæði til að hjálpa þeim að
búa barnið til. Þau leituðu aðstoðar IVF
og voru mjög ánægð með þjónustuna
sem þau fengu þar. Sólveig Rós gekk með
barnið og þau notuðu hennar eggfrumur.
Eggin hans Alex
Þarna var möguleiki á að nota eggfrumur
Alexanders. Í kynleiðréttingarferlinu er
spurt hvort trans menn vilji láta frysta
eggin sín til að eiga möguleika á að
nota þau seinna. Þeir þurfa svo sjálfir að
ganga eftir því að það sé gert en það er
mjög stutt síðan þetta varð möguleiki
á Íslandi. Alexander er ekki lengur með
eggjastokka en á þessum tíma var hann
með virkar eggfrumur. Sólveig vildi nota
þær en hann hafði engan áhuga á því.
S: Mér fannst leiðinlegt að hans frábæru
genetísku eiginleikar færu ekki áfram til
barnanna okkar því að þetta yrði ekki í
boði að eilífu. Um leið og hann hélt áfram
í kynleiðréttingarferlinu hætti það að vera
möguleiki.
A: Ég hefði þurft að hætta
hormónameðferð sem ég var byrjaður á
og bíða eftir að hormónastarfsemin sem
ég er fæddur með færi í gang aftur. Svo
hefðum við þurft að fara til Svíþjóðar til
að láta taka og frysta eggfrumurnar. Ég
var búinn að ákveða fyrir löngu síðan að
ég hefði enga þörf fyrir að barnið mitt
væri genetískt tengt mér, það yrði alltaf
barnið mitt.
S: Það er til hreyfing trans manna erlendis
sem ganga með börn sín og finna ekki
þörf fyrir að taka hormóna eða taka
sér pásu í ferlinu. Það er í raun mjög
áhugavert af því að samfélagið sér þetta
sem það kvenlegasta sem þú getur gert,
en þetta eru karlmenn sem ögra og ýta á
þann þægindaramma.
A: Mig langaði ekki að ganga með barn,
jafnvel áður en ég var búinn að átta mig
á því að ég væri trans, en mig langaði að
eiga barn.
S: Mig hefur alltaf langað til að ganga
með börn. Ég á fullt af yngri systkinum,
passaði börn lengi og hef unnið á
leikskólum. Ég hef alltaf dýrkað börn.
A: Ég hef ekki verið tilbúinn fyrr en nýlega
til að ala upp barn en ég hef alltaf ætlað
að eignast börn.
Hinsegin að innan
Sólveig og Alexander eru í svolítið
sérstakri stöðu þar sem þau eru hinsegin
fjölskylda en líta ekki út fyrir að vera það.
Þau falla fullkomlega inn í gagnkynheigða
sís boxið á pappírum og í útliti. Ylfa var
til dæmis feðruð beint í Þjóðskrá og
tengd föður sínum í Íslendingabók en
ef hún hefði fæðst fyrir nafnbreytingu
og kynskrárbreytingu Alexanders hefðu
þau þurft að skrá hana sérstaklega og
feðra hana eins og konur í samkynja
samböndum þurfa enn að gera.
53