Fréttablaðið - 22.05.2021, Page 2
Keppt við náttúruöflin
Stjórnvöld keppa nú við náttúruöflin og hækka varnargarða við eldgosið á Reykjanesskaga, einkum til að fyrirbyggja hraunrennsli í Nátthaga. Ríkisstjórnin
samþykkti í vikunni að verja allt að 20 milljónum til hækkunar garðanna í átta metra. Þeir hafa verið byggðir úr efni sem finna má á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Foreldrar Daða og Sigrúnar
Birnu í Gagnamagninu ætla
að hlýða fyrirmælum sonar
síns og blása til Eurovision-
veislu á heimili sínu í Vörðu-
holti í Ásahreppi.
benediktboas@frettabladid.is
EUROVISION „Það er óhætt hægt
að segja að þetta hafi verið frá-
bært. Við vorum að sjá þetta atriði
í fyrsta sinn og fannst það stór-
kostlegt,“ segir stoltur Eurovisi-
on-pabbinn Pétur Einarsson, faðir
Eurovision-stjörnunnar Daða og
bakraddasöng varans Sigrúnar
Birnu.
Pétur horfði á börnin sín og
tengdadóttur rúlla upp undan-
kvöldinu í Rotterdam og viður-
kennir að púlsinn hafi aðeins farið
upp þegar ræða Gísla Marteins var
búin og Gagnamagnið var kynnt á
svið. Hann var þó stressaðri þegar
atkvæðin voru talin. „Þetta venst
einhvern veginn, þessi athygli á
þeim. Einhvern veginn samt skynj-
ar maður ekki að það séu 150 millj-
ónir plús að horfa. Maður finnur
það ekki.
Markmið Daða var að komast í
úrslitin til að hægt yrði að halda
almennilegt Eurovision-partí á
Íslandi. Ég ætla svo sannarlega að
fara eftir þeim fyrirmælum,“ segir
hann, en dóttir Daða og Árnýjar,
Áróra, er í öruggu fangi afa og
ömmu meðan Eurovision gengur
yfir.
„Við verðum sex saman hér og
Áróra, sem er mikið partíljón,
þannig að það er ekki hægt að
búast við öðru en að hér verði stór-
kostlegt kvöld.“
Pétur og kona hans Björg hafa
eðlilega verið í töluverðu sambandi
við Rotterdam. Hann viðurkennir
að andinn sé góður á hótelher-
bergjunum þar sem hópurinn þarf
að húka meðan beðið er eftir nei-
kvæðu Covid-prófi. „Það er mjög
súrrealískt að þau séu þarna úti en
föst á hótelherbergjum. Það er ab-
súrd og makalaust að þetta sé eini
hópurinn í keppninni sem er undir
allt öðrum hatti en aðrir.“
Hann segir að hópurinn sé
ánægður með hvernig hafi gengið
og sé sáttur við sinn hlut, þrátt fyrir
að vera lokaður inni á herbergjum á
hóteli. „Við erum alveg í skýjunum
með þau. Finnst þetta alveg frábært
og f lott atriði.
Enda ekki annað hægt. Við
mamma hans syngjum bakraddir
í kaf lanum You’re so fascinating
og það er í hástöfum í bakgrunni af
því að það heyrist svo vel í okkur
Björgu. Ég geng út frá því,“ segir
hann og hlær. n
Ekki hægt að búast við öðru
en stórkostlegu Euro-kvöldi
Foreldrar Daða ætla eins og trúlega flestir landsmenn að blása i gleðilúðrana
og halda upp á það að Daði, Sigrún Birna systir hans og tengdadóttirin flytji
10 years fyrir Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Pétur Einarsson faðir Daða og bak-
raddasöngvarans Sigrúnar Birnu.
Beint morgunflug
Tenerife í sumar
Marylanza
10. júlí í 7 nætur
2 fullorðnir
og 2 börn
Frá 114.900 kr
www.aventura.is
Sundagarðar 2 - 104 Reykjavík
Sími: 556 2000
arib@frettabladid.is
STJÓRNSÝSLA Reykjavíkurborg þarf
að greiða 2 milljónir í stjórnvalds-
sekt fyrir viðvarandi viðskipti við
Orku náttúrunnar (ON) um rekstur
og viðhald götulýsingar, í trássi við
lög um opinber innkaup. Þetta er
niðurstaða kærunefndar útboðs-
mála sem telur borgina hafa brotið
gegn útboðsskyldu sinni. Sam-
kvæmt úrskurði þarf borgin að
bjóða út þjónustu við útskiptingu og
uppsetningu LED-lampa í Reykjavík.
Í fyrra kærðu Samtök iðnaðarins
samninga borgarinnar við ON um
rekstur og viðhald á LED-væðingu
götulýsingar. Um er að ræða verkefni
upp á meira en þrjá milljarða króna.
ON er dótturfyrirtæki Orkuveitu
Reykjavíkur sem er að mestu í eigu
borgarinnar. Við meðferð málsins
upplýsti borgin að aldrei hefði verið
gerður samningur við ON, götulýs-
ing hefði alltaf verið í höndum Orku-
veitunnar og tilvist dótturfélagsins
væri aðeins bókhaldslegs eðlis. n
Borgin sektuð um
tvær milljónir
Borgin bar fyrir sig áralangt sam-
band við Orkuveitu Reykjavíkur.
adalheidur@frettabladid.is
STJÓRNMÁL Uppstillinganefndir
Viðreisnar á suðvesturhorninu eru
enn að störfum, en að sögn Jenn-
ýjar Guðrúnar Jónsdóttur, fram-
kvæmdastjóra flokksins, má búast
við því að það dragi til tíðinda í
næstu viku í þeim kjördæmum sem
enn hafa ekki tilkynnt um fram-
boðslista sína.
Töluverð spenna ríkir um odd-
vitasætin í Reykjavík, en f lokkur-
inn á einn þingmann í báðum kjör-
dæmum borgarinnar, þær Hönnu
Katrínu Friðriksson og Sigríði Þor-
björgu Gunnlaugsdóttur.
Báðar hafa lýst yfir vilja til að
halda áfram en varaformaður
flokksins, Daði Már Kristófersson,
vill einnig vera í forystu í borginni.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er alls ekki samhljómur
Tíðinda vænst í vikunni
Þorbjörg Sigríð-
ur Gunnlaugs-
dóttir þingkona
Viðreisnar í
Reykjavík.
í uppstillingarnefnd Reykjavíkur
um að færa aðra þingkonuna neðar
á lista til að hleypa varaformann-
inum að. Miðað við kannanir fær
flokkurinn aðeins einn mann kjör-
inn í hverju kjördæmi og því aðeins
oddvitasætin örugg þingsæti.
Þá hefur einnig verið bent á að
karlar muni leiða öll þrjú kjör-
dæmi landsbyggðarinnar og haldi
allar þingkonur f lokksins sínum
oddvitasætum verði kynjahlutfall
meðal oddvita flokksins jafnt. n
2 Fréttir 22. maí 2021 LAUGARDAGUR