Fréttablaðið - 22.05.2021, Qupperneq 10
kristinnpall@frettabladid.is
COVID-19 Samkvæmt skýrslu sem
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin
(WHO) gaf út í gær hafa 3,4 milljónir
látist af völdum Covid-19 en stofn-
unin óttast að dauðsföll sem rekja
megi með einum eða öðrum hætti
til Covid-19 séu þrefalt f leiri en
opinberar tölur gefa til kynna. Sam-
kvæmt ályktunum WHO er talið að
dauðsföll 6-8 milljóna manna megi
rekja til sjúkdómsins.
Meðal þess sem bætist við þá
tölu eru andlát af völdum kóróna-
veirunnar en Covid-19 var ekki
skráð orsakavaldur andláts, þeir
sem fengu ekki viðeigandi meðferð
vegna skorts á sjúkrahúsplássi og
þeir sem létust af heilsufarsvanda-
málum af völdum hreyfingarleysis.
Aðstoðarforstjóri WHO, greindi
frá þessu í gær. WHO vinnur með
þjóðum að því að skilja áhrif heims-
faraldursins til að vera betur undir-
búin fyrir þann næsta. n
Háskólinn í Reykjavík og Opni háskólinn í HR bjóða
upp á úrval námskeiða í sumar fyrir háskólanema, fólk
sem er að hefja háskólanám í haust og sem vill styrkja
stöðu sína á vinnumarkaði.
Námskeiðin eru liður í aðgerðum stjórnvalda til
að bregðast við áhrifum Covid faraldursins og
þátttakendur greiða aðeins 3000 kr. fyrir námskeiðið.
Dæmi um námskeið:
– Inngangur að forritun
– Að leysa vandamál með spurningum – ekki svörum
– Alþjóðaviðskipti
– Straumlínustjórnun
– Mannauðsstjórnunarhlutverk stjórnandans
– Inngangur að forritun
– Rýnifundir – lykillinn að hraðari lærdómi
– Markaðsstarf í krefjandi umhverfi
– Excel – nokkur trix og formúlur
– Python
– Vektu athygli – náðu í gegn
– Mótun og innleiðing rekstrarstefnu
– Jafningastjórnun
– Næstu skref á starfsferli
Fjölbreytt
sumarnámskeið
í HR
Kynntu þér úrval námskeiða
á hr.is/sumarnamskeid
Óttast að dauðsföllin séu þrefalt fleiri
Lík fólks sem lést úr Covid-19 brennd í Nýju-Delí á Indlandi. Óttast er að
fjöldi látinna sé mun meiri en í opinberum tölum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
thorvardur@frettabladid.is
ASÍA Kínversk yfirvöld hafa ekki
svarað þremur beiðnum Banda-
ríkjastjórnar um viðræður milli
yfirmanns kínverska hersins og
varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna. Vaxandi spenna hefur verið
milli ríkjanna að undanförnu,
einkum vegna málefna Taívan.
Fundur utanríkisráðherra land-
anna í Alaska í mars einkenndist
af átökum og orðaskaki, en Joe
Biden Bandaríkjaforseti vill engu
að síður reyna að koma á samtali
milli þeirra. Það sé mikilvægt til að
freista þess að létta á spennunni og
koma í veg fyrir að átök brjótist út í
Suður-Kínahafi.
Síðan Biden tók við embætti í
janúar hafa löndin deilt um ýmis-
legt, til að mynda meint mann-
réttindabrot Kínverja á Úígúrum í
Xinjiang-héraði og hernaðarumsvif
Kína í nágrenni Taívan. Kínverjar
hafa sakað Bandaríkin um að haga
sér líkt og þeir ráði yfir svæðinu. n
Kínverjar hunsa Bandaríkjamenn
thorvardur@frettabladid.is
GRÆNLAND Pele Broberg, utanríkis-
ráðherra Grænlands, vill að landið
undirriti varnarsamning við Banda-
ríkin, eins og þann sem er milli
Íslands og Bandaríkjanna. Utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna fór til
Grænlands í opinbera heimsókn í
gær eftir að ráðherrafundi Norður-
skautsráðsins lauk í Reykjavík.
Í viðtali við danska ríkisútvarpið
sagði Broberg að hann vildi að Græn-
land yrði með landhelgisgæslu líkt
og Ísland, en að Bandaríkin skuld-
byndu sig til að verja landið ef til þess
kæmi. Þessar hugmyndir hans hafa
mælst misvel fyrir meðal Rússa.
„Erlend hernaðarumsvif nálægt
rússneska heimskautasvæðinu,
sem gætu leitt til átaka, jafnvel með
kjarnavopnum, geta varla verið til
að tryggja stöðugleika á norður-
skautinu,“ segir Vladimír V. Barbín,
sendiherra Rússlands í Danmörku.n
Vill varnarsamning við Bandaríkin
Danmörk fer með
varnarmál Grænlands
en þar er ein bandarísk
herstöð.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Pele Broberg á fundi Norður-
skautsráðsins í Hörpu á fimmtudag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Austin, varnarmálaráðherra Banda-
ríkjanna, vill funda með Kínverjum.
10 Fréttir 22. maí 2021 LAUGARDAGUR