Fréttablaðið - 22.05.2021, Síða 18
Kjörskrár vegna kosningar um sameiningu
sveitarfélaganna Blönduósbæjar, Húna-
vatnshrepps, Skagabyggðar og Sveitar-
félagsins Skagastrandar, sem haldnar verða
laugardaginn 5. júní 2021, skulu lagðar fram
eigi síðar en 26. maí 2021.
Kjörskrár skal leggja fram á skrifstofu
sveitarstjórna eða á öðrum hentugum stað
sem sveitarstjórn ákveður.
Þeim sem vilja koma að athugasemdum er
bent á að senda þær hlutaðeigandi sveitar-
stjórn.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. maí 2021.
Framlagning kjörskráa
Á miðvikudaginn fer af stað í
annað sinn hátíð sem ætlað er
að fagna nýsköpun í allri sinni
dýrð og er opin öllum áhuga-
sömum, bæði í raun- og net-
heimum. Nýsköpunarvikan
stendur yfir dagana 26. maí til
2. júní.
Hátíðin sem var haldin í fyrsta sinn í
fyrra vex um 230 prósent á milli ára
en yfir 70 viðburðir eru nú á dag-
skrá. Um er að ræða svokallaða þátt-
tökuhátíð þar sem sviðsljósinu er
beint að nýsköpun á Íslandi í sinni
breiðustu mynd og að sögn stjórn-
enda er markmiðið að auka sýni-
leika nýsköpunar þvert á atvinnu-
greinar. Eins vilja þau auka aðgengi
og hvetja almenning til þátttöku í
nýsköpun og er því almenningur
hvattur til að sækja viðburði hátíð-
arinnar sér að kostnaðarlausu.
Hátíð um allan bæ
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir er
ein þriggja stofnenda hátíðarinnar.
„Við erum þrír stofnendur en við
höfum öll verið að vinna í umhverfi
sprota- og nýsköpunar hér á landi.
Okkur fannst þetta vanta en svona
stórar nýsköpunar og tækniráð-
stefnur eru haldnar árlega alls
staðar í kringum okkur. Okkar
fyrirmynd er í rauninni Oslo Inn-
ovation Week og okkur fannst tími
kominn til að setja Ísland á sama
stall,“ segir Melkorka og bætir við
að stjórnendur finni strax mikinn
áhuga frá hinum Norðurlöndunum.
„Við höfum fengið mikið af fyrir-
spurnum og höfum nú þegar mynd-
að sterkt tengslanet með þessum
ráðstefnum í kringum okkur,“ segir
hún og bindur vonir við að hátíðin
stækki frá ári til árs: „Okkar draum-
ur er að við séum þessi alþjóðlegi
markaðsgluggi íslenskrar nýsköp-
unar út á við.“
Fyrsta hátíðin var skyndilega
færð úr raunheimum í netheima
þegar samkomutakmarkanir voru
hertar í fyrra.
„Við þurftum þá að beita nýsköp-
unarhugsun og færa alla viðburði
yfir í streymi um leið. Nú er um
helmingur viðburða í streymi. Við
viljum þó líka að fólk hittist og
kynnist og við gætum þá ítrustu
sóttvarna.“
Melkorka segir hátíðina byggja á
því að fyrirtæki, stofnanir og frum-
kvöðlar leggi til viðburði og þann-
ig einskorðist hátíðin ekki við einn
stað heldur fer hún fram úti um
allan bæ.
„Að því sögðu þá erum við með
Fagna nýsköpun í allri sinni dýrð
Melkorka Sig
ríður Magnús
dóttir er einn
stofnenda
Nýsköpunar
vikunnar.
MYND/SAGA SIG
Eimur ætlar að fjalla um mögu
leika tengda vetni sem orkugjafa
og þörunga sem matvæli og
bjóða upp á tilraunarstarfsemi í
beinni, þar sem landsliðskokkur
reiðir fram dýrindis þörunga.
Fulltrúar Háskóla Íslands og CCP
opna nýtt netnámskeið um vináttu
á tímum vaxandi tölvuleikjaspilunar
og spyrja til dæmis hvort hægt sé að
hanna vináttu. MYND/AÐSEND
Saltverk býður fólki til að koma
í „happy hour“ og spjall um sögu
fyrirtækisins frá hugmynd að
saltgerð á Íslandi til dagsins í dag.
Feed The Viking býður upp á frum
kvöðlasjósund í Nauthólsvík og
heita íslenska kjötsúpu og í vegan
útgáfu þegar komið er upp úr.
Íslandsbanki – Reynslusögur frá styrkþegum
Streymi 27. maí klukkan 10.00–11.00
Íslandsbanki býður gestum Nýsköpunarvikunnar að hlýða á reynslu-
sögur frá fyrri styrkþegum Frumkvöðlasjóðs Íslandsbanka.
Styrkþegar segja frá sínum verkefnum, hvar þau eru stödd í dag
og hvernig styrkurinn hjálpaði þeim til að taka sín verkefni áfram. Í
upphafi fundar verður stutt kynning á Frumkvöðlasjóði Íslandsbanka
sem gagnast sérstaklega þeim sem hafa áhuga á að sækja um styrk úr
sjóðnum.
Á fundinum verða erindi frá: Garðari Finnssyni, stofnanda Plast-
garða, Sigríði Bylgju, stofnanda Trés lífsins, Rögnu Söru, stofnanda
Fólks, og Chanel Björk, höfundi Hennar raddar.
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
heimili fyrir heimilislausa viðburði
hér í Grósku, í Vísindagörðum,
heimili nýsköpunar,“ útskýrir Mel-
korka.
Allt frá þörungum að vináttuvél
Eins og fyrr segir eru yfir 70 við-
burðir á dagskrá þar sem fyrirtækj-
um og frumkvöðlum gefst kostur á
að standa fyrir nýsköpunartengd-
um viðburðum þar sem spennandi
sóknarfæri og frjóar hugmyndir
geta sprottið upp. Hér má sjá nokk-
ur dæmi um áhugaverða viðburði,
allt frá salti og þörungum yfir í
tölvuleiki og vináttu. ■
Eimur –
Tilraun um þörunga og vetni
Streymi 31. maí klukkan 10.00–
11.00
Eimu r, samst ar fsverkef ni
Landsvirkjunar, Norðurorku,
Orkuveitu Húsavíkur og Sam-
taka sveitarfélaga og atvinnu-
þróunar á Norðurlandi eystra,
ætlar að fjalla um möguleika
tengda vetni sem orkugjafa og
þörungum sem matvælum, en
upp á síðkastið hefur mikið
verið rætt um nýmælið í þessu
tvennu.
Boðið verður upp á tilrauna-
starfsemi í beinni, þar sem
landsliðskokkur reiðir fram
dýrindis þörunga og vísinda-
maðurinn Ottó Elísson fræðir
gesti um kraftinn sem býr í
vatninu.
CCP og Háskóli Íslands –
Vináttuvélin
Streymi 26. maí klukkan 17.00–18.00
Fulltrúar Háskóla Íslands og CCP
opna nýtt netnámskeið um vináttu
á tímum vaxandi tölvuleikjaspil-
unar þann 26. maí. Viðburðurinn
verður í streymi.
Er hægt að hanna vináttu? Hefur
vinátta sem verður til á netinu sömu
þýðingu og sú sem verður til í raun-
heimum? Hvaða hlutverki gegna
tölvuleikir í myndun nýrra vina-
sambanda þvert á heimsálfur? Hver
eru heilsufarslega áhrif þess að vera
einmana og hvaða hlutverki gegna
tölvuleikir í að rjúfa einangrun
fólks? Þessum og fleiri spurningum
er svarað á námskeiðinu auk þess
sem fjallað er um hvernig tölvuleik-
ir eru að þróast, bæði sem afþreying
og samfélagslegur áhrifavaldur.
Saltverk – Fræ sem urðu að nýjum sprotum
Saltverk, Nýbýlavegi 4, fimmtudaginn 27. maí klukk-
an 17.00–19.00
Saltverk býður fólki til að koma í „happy hour“ og
spjall um sögu fyrirtækisins frá hugmynd að saltgerð
á Íslandi til dagsins í dag og hugmyndum að nýjum
sprotum sem spruttu á leiðinni og eru allir innan
skrifstofu Saltverks.
Höfuðstöðvar Saltverks geyma þrjá aðra sprota
sem allir spruttu úr hugmyndafræði Saltverks yfir
árin. Angan Skincare sem eru sjálf bærar húðvörur
sem upphaflega voru unnar úr affalls-magnesíum-
salti. Skál! sem er náttúruvínsbar og veitingastaður á
Hlemmi Mathöll og síðan Rætur & Vín sem sérhæfir
sig í innflutningi á náttúruvínum.
Feed the Viking – Smakk á bakka
og frumkvöðlasjósund
Nauthólsvík 28. maí klukkan 8.00–
10.00
Feed The Viking er nýsköpunar-
fyrirtæki á matvælasviðinu sem hóf
árið 2016 að bjóða upp á íslenskt
kjöt- og fisk „jerky“ og framleiðir
nú ýmiss konar þurrfrysta rétti til
sölu um allan heim, með áherslu á
íslenska matvælaarfleifð.
Fyrirtækið býður upp á frum-
kvöðlasjósund í Nauthólsvík og
heita íslenska kjötsúpu og í vegan-
útgáfu þegar komið er upp úr.
Okkar
draumur er
að við
séum þessi
alþjóðlegi
markaðs-
gluggi
íslenskrar
nýsköp-
unar út á
við.
HELGIN 22. maí 2021 LAUGARDAGUR