Fréttablaðið - 22.05.2021, Síða 22
+ + + = 19.990 kr.
A L LT ÓTA K M A R K A Ð
Fjölskyldupakkinn:
alltaf þannig og það minnir mann
á að ástin sé ákvörðun, svo reynir
maður að standa við þá ákvörðun,“
segir hún.
María Heba segir þau Kristófer
bæta hvort annað upp. Þau séu afar
ólík en nái einstaklega vel saman.
„Ég er miklu hægari og varkárari og
þarf að hugsa alla hluti vel. Hann er
iðnasta manneskja sem ég þekki,
þarf alltaf að vera að gera eitthvað
og er alltaf með mörg járn í eld-
inum."
Hún segir barnsmissinn hafa
gert samband þeirra sterkara og að
þau hafi staðið saman í gegnum þá
reynslu. „Ég held að í svona reynslu
sé bara tvennt í boði, annað hvort
fjarlægast hjón eða þau styrkjast.
Fyrir einhverja mildi vorum við svo
heppin að við náðum að feta þetta
saman.“
Missirinn skilgreinir hana ekki
Þau hjónin hafa unnið í sorginni og
eru meðvituð um að huga einstak-
lega vel að lifandi börnum sínum.
„Ég er búin að ganga með og eiga
fjögur börn og systkini hennar vita
af henni. Hún er hluti af fjölskyld-
unni en mér finnst mikilvægt að
börnin mín sem eru hjá mér finni
að þau séu aðalatriðið í mínu lífi
en ekki í öðru sæti vegna barnsins
sem ég fékk ekki að hafa hjá mér,“
útskýrir hún. „Og ég held að okkur
hafi tekist það.“
„Þetta er reynsla sem er ekki hægt
að skilja nema að hafa upplifað hana
en ég er meðvituð um að þetta atvik
skilgreini mig ekki því það er svo
margt annað sem við hjónin erum.
Ég er ekki bara konan sem missti
barnið sitt, ég er til dæmis líka
konan sem á þrjá frábæra krakka.“
Fullkomin tímasetning
María Heba segist yfirleitt ánægð
með það starf sem hún valdi sér,
að vera leikkona. Foreldrar hennar
voru bæði kennarar og þegar hún
var barn var leiklistin ekki hennar
draumur. „Það bara hvarflaði ein-
hvern veginn ekki að mér að verða
leikkona, ég bara hafði ekki hug-
myndaflug í það. Kannski vantaði
mig bara fyrirmyndir á þeim vett-
vangi í mínu nærumhverfi. Ég var
alltaf í dansi sem barn og hafði mikla
ástríðu fyrir því að dansa og hef hana
enn,“ segir María sem æfir dans hjá
Birnu Björns í hverri viku.
„Svo þegar ég var í Háskólanum
þá var kær vinkona mín í leiklistar-
skólanum og ég fylgdist náið með
henni og hennar bekk og áttaði mig
þannig á að þetta væri eitthvað sem
væri hægt að læra og verða góð í,“
segir hún.
María Heba sótti þrisvar um í
leiklistarskólann og komst svo
inn sama ár og hún útskrifaðist úr
Háskólanum. Það sama ár komst
hún einnig inn í leiklistarskóla í
London en var ákveðin í því að
læra leiklist hér heima á Íslandi.
„Ég komst inn í skólann á nákvæm-
lega réttum tíma fyrir mig og lenti
í rétta bekknum fyrir mig, það er
alveg klárt mál,“ segir María Heba
sem heldur enn góðu sambandi við
bekkjarsystur sínar úr skólanum.
Hjartað slær í leikhúsinu
María Heba hefur unnið mikið bæði
í sjónvarpi og í leikhúsi. Um þessar
mundir leikur hún í verkinu Mæður
sem sýnt er í Borgarleikhúsinu. Hún
segist njóta þess að vinna bæði í
leikhúsi og sjónvarpi en að hjartað
slái í leikhúsinu.
„Þegar það er gaman í leikhúsinu
þá er eiginlega hvergi skemmtilegra
að vera,“ segir hún. Aðspurð hvort
endurtekning felist í því að leika
sama verkið kvöld eftir kvöld segir
hún svo ekki vera, sem leikari þurfi
maður bara að læra að elska endur-
tekningu. „Það er alltaf ný hlustun
og ný tenging með nýjum áhorf-
endum,“ segir hún.
Mæður fjallar um allar klisjur,
mýtur og það óvænta sem fylgir
móðurhlutverkinu og er í leikstjórn
Álfrúnar Örnólfsdóttur. Sýningar
standa til 5. júní. ■
María Heba
hefur leikið
mikið bæði í
leikhúsi og sjón-
varpi. Hún segir
hjartað slá í leik-
húsinu en hún
leikur um þessar
mundir í verkinu
Mæður í Borgar-
leikhúsinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
Maríu dreymdi ekki um að verða
leikari í æsku en nýtur starfsins.
María Heba og
Kristófer hafa
verið saman í
27 ára. Þau eru
bestu vinir og
sálufélagar. Hér
eru þau fjöl-
skyldan saman í
Flatey.
MYND/AÐSEND
Í öllu samtali um
femínisma megum við
ekki gleyma því hvað
þetta er gamalt kerfi
sem við erum að brjóta
niður, þetta er árþús-
unda gamalt og breyt-
ingarnar eru að gerast
mjög hratt þó okkur
finnist þær stundum
standa í stað.
Hann er besti vinur
minn og sálufélagi og
við höfum alveg geng-
ið í gegnum okkar
brekkur á þessum 27
árum sem við höfum
verið saman en það er
svo langt síðan ég tók
ákvörðun um að ég
ætlaði að vera með
honum að það hefur
lítil áhrif á okkar
samband.
22 Helgin 22. maí 2021 LAUGARDAGUR