Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 34

Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 34
Stjórnendur fyrir umhverfið Umhverfisstofnun leitar að öflugum stjórnendum til starfa. Leitað er að reyndum og hvetjandi einstaklingum í tvö störf sviðsstjóra sem geta leitt hóp sérfræðinga með jákvæðni, metnað og fagmennsku að leiðarljósi. Sviðsstjórar eru fyrirmyndir í öllum sínum störfum og samskiptum. Nánari upplýsingar veita Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, og Þóra Margrét Pálsdóttir Briem, mannauðsstjóri, í síma 591 2000. Umsóknarfrestur er til og með 7. júní 2021. Nánari upplýsingar má finna á www.intellecta.is. Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni og uppruna, eru hvattir til að sækja um starfið. Föst starfsaðstaða getur verið, allt eftir búsetu, í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum. Nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun má finna á www.ust.is Umsjón fjölbreyttra náttúruverndarsvæða um allt land, uppbygging innviða og ástandsmat. Undirbúningur friðlýsinga og stjórnunar- og verndaráætlana. Náttúruvernd og grænir áfangastaðir Sviðsstjóri Mengunarvarnir, vatn, loft og jarðvegur Sviðsstjóri Eftirlit með skilyrðum um mengunarvarnir, viðskiptakerfi losunarheimilda, loftgæði, mengun jarðvegs, stjórnun vatnamála og bráðamengun. Öryrkjabandalag Íslands auglýsir eftir verkefnisstjóra í tímabundið 50% starf á sviði aðgengismála. Um er að ræða átak í aðgengismálum í samræmi við stefnu og framkvæmdaáætlun í málefnum fatlaðs fólks. Um samstarfsverkefni er að ræða á milli samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis vegna Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga, félagsmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Öryrkjabandalagsins. Starfssvið verkefnisstjóra er m.a. að kynna úthlutunarreglur Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir sveitarfélögum, veita ráðgjöf um aðgengismál, aðstoða við gerð umsókna og annast samskipti aðgengisfulltrúa og notendaráðs sveitarfélaga með reglulegum netfundum. Verkefnið eru unnið í nánu samstarfi við skrifstofu ÖBÍ, málefnahóp ÖBÍ um aðgengismál og starfsmann hans. Verkefnið mun standa yfir til ársloka 2022. Við lok þess verður árangurinn metinn og ákvörðun tekin um frekara samstarf á þessu sviði. Verkefnisstjóri á sviði aðgengismála Verkefni: • Mótun verkefna á sviði aðgengismála hjá sveitarfélögunum • Samskipti og ráðgjöf um úthlutanir Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga • Undirbúningur, skipulagning og utanumhald • Skýrslugerð, miðlun niðurstaðna og eftirfylgni Hæfniskröfur: • Menntun á háskólastigi eða sambærilegt • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð • Íslenskukunnátta og ritfærni • Tölvukunnátta og þekking á samfélagsmiðlum • Reynsla og þekking á aðgengismálum • Þekking á mannvirkja- og skipulagsmálum • Góð samskipti og samstarfshæfileikar Fatlað fólk/fólk með skerta starfsgetu er sérstaklega hvatt til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem fram komi rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Öryrkjabandalag Íslands (ÖBÍ) er heildarsamtök hagsmuna og mannréttinda fatlaðs fólks á Íslandi. Bandalagið samanstendur af 42 aðildarfélögum fatlaðs fólks, öryrkja, einstaklinga með langvinna sjúkdóma og aðstandenda þeirra. Aðildarfélögin eru hagsmunasamtök ólíkra fötlunarhópa sem öll starfa á landsvísu. Samanlagður félagafjöldi þeirra er um 30 þúsund manns. Hlutverk ÖBÍ er að vinna að samfélagslegu réttlæti, bættum lífsgæðum og kjörum auk þess að vera stefnumótandi í réttindamálum hagsmunahópsins. Skrifstofa ÖBÍ er í góðu og aðgengilegu húsnæði í Sigtúni 42, Reykjavík. Nánari upplýsingar á obi.is Umsóknarfrestur er til og með 6. júní nk. Upplýsingar veitir Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.