Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 45
Tillaga að breytingum á Stjórnunar- og
verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs 2021
Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs auglýsir til kynningar tillögu að
breytingum á Stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins, á
grundvelli 12. gr. laga um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 60/2007.
Breytingatillagan nær til ákvæða um loftför, tjöldun, þjón-
ustusvæði, vegi, gönguleiðir, smávirkjanir, verndarsvæði
og nýmyndanir. Einnig eru texti og kort í einstökum köflum
uppfærð vegna lagabreytinga eða stækkunar þjóðgarðsins.
Við tillögugerðina var lögð áhersla á að fjalla einungis um
afmörkuð atriði, þar sem heildarendurskoðun á stjórnunar-
og verndaráætlun stendur fyrir dyrum.
Tillagan er aðgengileg á vef þjóðgarðsins, www.vjp.is frá
21. maí til og með 9. ágúst 2021 og eru áhugasamir hvattir til
að kynna sér efni hennar. Athugasemdir skulu sendar eigi
síðar en 9. ágúst 2021 í gegnum hlekk á vef þjóðgarðsins
(www.vjp.is) eða í bréfpósti á skrifstofu Vatnajökulsþjóð-
garðs Urriðaholtsstræti 6-8, 210 Garðabæ.
Tillagan verður kynnt á eftirfarandi veffundum og má
nálgast tengla á þá fundi á vef og Facebook-síðu
Vatnajökulsþjóðgarðs:
• Vestursvæði: Mánudagurinn 31. maí kl 17
• Þjóðgarðurinn í heild-almenn ákvæði:
þriðjudagurinn 1. júní kl. 17
• Austursvæði: Miðvikudagurinn 2. júní kl 17
• Norðursvæði: Fimmtudagurinn 3. júní kl 17
• Suðursvæði: Mánudagurinn 7. júní kl 17
Upptökur frá kynningarfundum verða aðgengilegar á vef
þjóðgarðsins á kynningartíma tillögunnar.
Frekari upplýsingar um tillöguna má nálgast hjá verkefna-
stjóra: johanna.k.thorhallsdottir@vjp.is.
Verið velkomin í Vatnajökulsþjóðgarð!
ARKITEKTAR
BYGGINGAFRÆÐINGAR
Við leitum að arkitektum og byggingafræðingum til starfa.
Unnið er bæði á AutoCad og Revit, reynsla á forritin er því ákjósanleg.
Starfsreynsla á arkitektastofu er kostur.
Við bjóðum upp á fjölbreytt starf með samhentum hópi og góðri vinnuaðstöðu.
Skila skal umsóknum ásamt starfsferilsskrám á netfangið tark@tark.is fyrir 25. maí 2021.
Öllum umsóknum verður svarað og farið verður með þær sem trúnaðarmál.
T.ark er arkitektastofa sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði byggingarlistar, hönnun
nýbygginga, endurhönnun og breytingar á eldri byggingum, gerð skipulagsáætlana,
hönnunarstjórn byggingareftirlit o.fl. Starfsmenn T.ark eru nú 21 talsins; arkitektar,
byggingafræðingar, innanhússarkitektar.
T.ark Arkitektar ehf – Hátúni 2b – 105 Reykjavík – 540 5700 - www.tark.is
Matvælasjóður auglýsir
eftir styrkumsóknum
Matvælasjóður auglýsir eftir styrkumsóknum
Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við fram-
leiðslu og vinnslu matvæla úr landbúnaðar- og sjávarafurðum.
Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og
samkeppnishæfni íslenskra matvæla og hliðarafurða þeirra
um land allt.
Markmið sjóðsins er að ná til verkefna á öllum stigum, allt frá
hugmyndum til markaðssetningar og hagnýtra rannsókna.
Úthlutunarfé sjóðsins eru 630 milljónir á árinu 2021.
OPNAÐ ER FYRIR UMSÓKNIR 14. MAÍ OG ER FRESTUR TIL OG MEÐ 6. JÚNÍ 2021
SJÓÐURINN STARFAR SAMKVÆMT LÖGUM UM MATVÆLASJÓÐ, LÖG NR. 31
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á VEFSÍÐUNNI WWW.MATVÆLASJÓÐUR.IS
Matvælasjóður hefur fjóra flokka:
BÁRA styrkir verkefni á hugmyndastigi. Styrkur úr Báru fleytir
hugmynd yfir í verkefni.
KELDA styrkir rannsóknaverkefni sem miða að því að skapa
nýja þekkingu.
AFURÐ styrkir verkefni sem komin eru af hugmyndastigi en
eru þó ekki tilbúin til markaðssetningar, en leiða af sér afurð.
FJÁRSJÓÐUR styrkir sókn á markað. Fjársjóður er samansafn
verðmætra hluta og styrkir fyrirtæki til að koma sínum
verðmætum á framfæri.