Fréttablaðið - 22.05.2021, Qupperneq 60
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn@
frettabladid.is
Sumarið er tíminn fyrir
sælkerasmárétti sem trylla
bragðlaukana og tekur
örskamma stund að fram-
reiða. Í þættinum Matur og
heimili voru töfraðir fram
tveir smáréttir á augabragði.
Edamame baunir eru einstak-
lega ljúffengar einar og sér en líka
sem meðlæti með ýmsum réttum,
sérstaklega suður-amerískum og
asískum mat. Edamame baunirnar
slá alltaf í gegn hjá matargestum.
Þær er einnig hægt að bera fram
sem forrétt og á smáréttahlaðborð.
Kosturinn við edamame baun-
irnar er að þær eru bæði hollar og
ljúffengar, stútfullar af próteini
og henta mörgum, meðal annars
þeim sem eru vegan og á ketófæði.
Risarækjurnar slá líka ávallt í
gegn og hægt er að gera svo margt
með þeim. Réttinn sem fram-
reiddur var í þættinum er hægt
að bera fram með ýmsum hætti.
Hægt er að raða risarækjunum
niður á nokkra diska og bjóða upp
á léttan forrétt. Hægt er að útbúa
risarækjusalat, en þá er mikilvægt
að vera með sítrusávexti eins og
límónur eða sítrónur. Risarækjur
steiktar með hvítlauk og chili eru
sælkeramatur og á vel við yfir
sumartímann.
Bæði edamame baunirnar og
risarækjurnar er hægt að kaupa
frosnar í pokum, til að mynda í
Bónus og því er kærkomið að eiga
ávallt poka í frystinum sem hægt
er að grípa í þegar galdra þarf fram
sælkerarétti á augabragði.
Edamame baunir með
chili og hvítlauk
1 poki frosnar edamame baunir
2 litlir hvítlaukar (riflausir) saxaðir
2 stk. ferskur, rauður chilipipar,
gróft saxaður
1 tsk. svartur pipar úr kvörn
1-2 tsk. chili kryddflögur
grófar Himalaya saltflögur eftir
smekk
ólífuolía til steikingar
Byrjið á því að setja vatn í pott
og sjóða. Þegar suðan er komin
Edamame baunir og
risarækjur með chilli
Edamame baunir eru einstaklega góðar jafnt sem meðlæti eða aðalréttur.
Risarækjur í
asískum fusion
stíl eru einstak-
lega góðar.
Hvítasunnan er þriðja stórhátíð
kristinna manna. Hinar eru jól
og páskar. Þá er þess minnst að
heilagur andi kom yfir lærisveina
Jesú og er litið á atburðinn sem upp-
haf kirkjunnar þegar þrjú þúsund
manns létu skírast til kristni og til
varð fyrsti kristni söfnuðurinn. Í
Jóhannesarguðspjalli er sagt frá því
að Jesús Kristur, sem þá var uppris-
inn, hafi heitið lærisveinum sínum
að þeim gæfist annar hjálpari, sem
öfugt við hann sjálfan yrði hjá þeim
að eilífu. Sá hjálpari var heilagur
andi. Heilagur andi er ein af þremur
persónum hins þríeina Guðs sem
kristnir menn trúa á. Hinar eru
Guð faðir og Jesús Kristur. Hlutverk
föðurins felst í sköpuninni, hlut-
verk sonarins í endurlausn undan
syndinni, en hlutverk heilags anda
er að upplýsa sérhvern mann og
endurnýja gjörvalla sköpun Guðs.
Hann er sagður vera sá umskapandi
kraftur sem kemur öllu góðu til
leiðar í mannlífi og náttúru. ■
Hvítasunna markar upphaf kirkjunnar
upp, hellið edamame baununum í
vatnið og stráið örlitlu af Himalaya
saltflögum yfir og látið sjóða í um
það bil 3 mínútur. Hellið vatninu
af baununum í gegnum sigti. Hitið
pönnu með ólífuolíu í rúmlega
miðlungs hita. Þegar ólífuolían
er orðin vel heit, setjið þá saxaða
hvítlaukinn og chili piparinn út í
olíuna og steikið þar til hvítlaukur-
inn og chili piparinn eru orðnir
mjúkir. Bætið þá baununum við og
leyfið þeim að malla aðeins saman
við. Kryddið í lokin með chili
kryddflögunum, svörtum pipar
og grófum Himalaya saltflögum.
Berið fram á fallegan og aðlaðandi
hátt. Það er bæði mjög gott og
fallegt að strá grófum saltflögum
yfir þegar edamame baunirnar eru
bornar fram.
Æðislega góðar risarækjur í
asískum fusion stíl
500 g risarækjur, óeldaðar, fást í
Bónus
2-3 litlir hvítlaukar, fínt saxaðir
2 stk. rauður ferskur chilipipar,
gróft saxaður
4 msk. ólífuolía
2 msk. maukað chili (fæst í krukku
í Bónus)
Afþíðið rækjurnar og þerrið
vel á pappír eftir að þær hafa
þiðnað. Setjið rækjurnar í skál
með hvítlauknum, chili, olíunni og
chili-maukinu. Marínerið í 10-15
mínútur. Má marínera lengur.
Steikið á rjúkandi heitri pönnu í
2-3 mínútur á hvorri hlið. Það er
líka hægt að þræða rækjurnar upp
á stálgrillpinna eða trégrillpinna
og grilla á funheitu grilli í 2-3
mínútur á hvorri hlið.
Risarækjurnar eru gjarnan born-
ar fram með því að setja klettasalat
í grunna skál eða veglegan bakka,
síðan risarækjurnar yfir þegar þær
eru tilbúnar og skreytt með lím-
ónubátum og jafnvel ætiblómum.
Gott að setja smá límónusafa yfir
rækjurnar. Það má skreyta að vild
með því sem ykkur þykir passa vel
með rækjunum. Einnig er líka ljúft
að snæða rækjurnar beint af pönnu
eða grilli og njóta þeirra án þess að
hafa salat með. ■
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Sumarið er
komið í DORMA
Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði
STYTTU ÞÉR LEIÐ GEGNUM BÆKLINGINN OKKAR
Sófar 2-9 | Svefnsófar 10–11 | Stólar 12–13 | RÚM 14–23 | Mjúkvara og dúnn 24–25 | Smávörur 26–33
SUMAR
TILBOÐIN
2021
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
ÞÚ FINNUR SUMARTILBOÐ
DORMA OG NÝJAN
BÆKLING Á DORMA.IS
www.dorma.is
V E F V E R S LU N
ALLTAF
OPIN
CANNES
hægindastóll
með skemli
Vandaður, glæsilegur og þægilegur
hægindastóll með þykku leðri á slitflötum
á sterkum snúningsfæti. Bakhæð: 73 cm.
Sethæð: 47 cm. Stærð: 87x75 H: 104 cm.
Fullt verð: 159.900 kr.
Aðeins 135.992 kr.
15%
AFSLÁTTUR
SUMAR
TILBOÐ
6 kynningarblað A L LT 22. maí 2021 LAUGARDAGUR