Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 67

Fréttablaðið - 22.05.2021, Side 67
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigrún Þorleifsdóttir lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 20. maí. Gyða Gísladóttir Helgi Bragason Þórir Gíslason Bergþóra Jónsdóttir Sigríður Gísladóttir Sigurður Sverrir Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra móðir, dóttir, tengdamóðir, systir, mágkona og amma, Sigríður Katrín Þorbjörnsdóttir Mýrarvegi 113, Akureyri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 18. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 28. maí klukkan 13. Athöfninni verður einnig streymt, hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat. Guðrún Vala Árnadóttir Stefán Vilberg Leifsson Helga Bogadóttir Sandra Dís Leifsdóttir Hafþór Jónasson Díana Ósk Leifsdóttir Anton Sigurðsson Þorbjörn Ásgeirsson Guðrún Jensdóttir Linda Antonsdóttir Bjarni Valtýsson Jens Þorsteinsson Hrafnhildur Þórisdóttir Ásgeir Þorbjörnsson Guðrún Maronsdóttir og barnabörn. Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts Esterar Zophoníasdóttur Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækninga- og göngudeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Ástþór Eydal Ísleifsson og fjölskylda. Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur, bróðir og tengdasonur, Völundur Helgi Þorbjörnsson Kanada, lést á heimili sínu, föstudaginn 14. maí. Útförin fer fram á útfararheimilinu Blair & Son í Perth, Kanada, miðvikudaginn 26. maí, klukkan 17 að íslenskum tíma. Streymt verður frá athöfninni og slóðin mun verða sett á blairandson.com og á hans Facebook-síðu. Dæja Björk Kjartansdóttir Ísabella Völundardóttir William Thor Völundarson Agnes Eva Völundardóttir Kristjana Inga Völundardóttir og aðstandendur. Konan mín, lífsförunautur og móðir, Gisela Schulze verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 27. maí kl. 15.00. Árni Jónsson Ingunn Guðrún Árnadóttir tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín G. Þorleifsdóttir frá Þverá, Eyja- og Miklaholtshreppi, lést í Brákarhlíð í Borgarnesi 18. maí. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju laugardaginn 29. maí kl. 11. Jarðsett verður í Miklaholtskirkjugarði. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni: youtu.be/GjD61qoxNhI Þökkum góða aðhlynningu og auðsýnda samúð. Ásgeir Gunnar Jónsson Guðrún Anna Gunnarsdóttir Alda Svanhildur Gísladóttir Guðmundur Þ. Jónsson Halldór Kr. Jónsson Áslaug S. Guðmundsdóttir Sigurður R. Jónsson Ragnheiður Lýðsdóttir Súsanna Þ. Jónsdóttir Gylfi Sigurðsson Sólveig Gyða Jónsdóttir Jón Ásgeir Einarsson og fjölskyldur. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Svala Valdemarsdóttir Arkarholti 14, Mosfellsbæ, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þann 15. maí. Útför fer fram í Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. maí kl. 13. Jarðsett verður í Gufuneskirkjugarði. Þeim sem vildu minnast Svölu er bent á Alzheimersamtökin. Gunnar Rafn Jóhannesson Helga Gunnarsdóttir Sigurður H. Ásgeirsson Sigurður Rafn Gunnarsson Nicola Winterson Thelma Gunnarsdóttir Georg Vilhjálmsson Vala Gunnarsdóttir Gísli Finnsson og barnabörn. Ástkær móðir mín, Ólafía Áskelsdóttir er látin. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Áslaug Erla Haraldsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurður Jónatan Jóhannsson sjómaður, Brúarflöt 2, Akranesi, lést sunnudaginn 16. maí á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 25. maí kl. 13. Í ljósi aðstæðna verður athöfnin með nánustu aðstandendum og vinum, þeim sem vilja koma er bent á að hafa samband við Ragnheiði, sími: 867-1676, raggamagg@yahoo.com, eða Jóhann, sími: 823-3106, joisig12@gmail.com. Athöfninni verður streymt af vef Akraneskirkju. www.akraneskirkja.is Sérstakar þakkir fær starfsfólk lyflækningadeildar HVE fyrir góða umönnun og hlýtt viðmót. Elísabet Karlsdóttir Rúna Björk Sigurðardóttir Björn Olgeirsson Jóhann Þór Sigurðsson Fjóla Lúðvíksdóttir Hrefna Sigurðardóttir Karvel Karvelsson Hulda Ragnarsdóttir Magnús Kristjánsson Sigurður Ragnarsson Elín Rós Sveinsdóttir Magni Ragnarsson Írena Bjarnadóttir Vignir Ragnarsson afabörnin. Þökkum innilega samúð og vináttu við andlát og jarðarför dóttur minnar, systur okkar, stjúpsystur og mágkonu, Hallveigar Fróðadóttur Hólmfríður Kofoed-Hansen Ragna Fróðadóttir Björn Fróðason Lovísa V. Bryngeirsdóttir Hólmfríður Fróðadóttir Ingólfur Þorsteinsson Þorbjörg Kristinsdóttir Hanna Valdís Þorsteinsdóttir Sheer El-Showk Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Leikfélag Sólheima sýnir leikritið Árar, álfar og tröll í Þjóðleikhúsinu á annan í hvítasunnu, 24. maí. Það er hátíðarsýning í tilefni þess að leikfélagið á 90 ára afmæli. gun@frettabladid.is Leikritið Árar, álfar og tröll er ævintýri. Það fjallar um baráttukonuna Sesselju, sem átti sér þann draum að opna barna- heimili þar sem allir gætu lifað í sátt og samlyndi – en gerist í ævintýraheimi,“ segir Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson, leikstjóri verksins og meðhöfundur. Hann segir Hannes Blandon þó eiga meiri heiður af efninu. „Hannes fékk hugmyndina eftir að hafa lesið bókina Mér leggst eitt- hvað til, um Sesselju Sigmundsdóttur stofnanda Sólheima. Hann ákvað að setja efnið í ævintýrabúning. Öll þessi öfl sem börðust gegn Sesselju verða að tröllum, kóngum og alls konar árum í okkar verki. Þau eru kerfið sem reyndi að standa í vegi fyrir hennar áformum. Kóngurinn og drottningin vilja halda í sitt og engu breyta, heldur passa upp á auðæfin. Þetta er klassísk saga,“ segir Guðmundur og tekur fram að Lárus Sig- urðsson sé höfundur tónlistar og fjöldi íbúa á Sólheimum komi að verkinu, bæði í leikhlutverkum og bak við tjöldin. Sjálfur er Guðmundur greinilega vel kynntur á Sólheimum því þetta er í fimmta sinn sem hann leikstýrir þar. Leikfélag Sólheima var stofnað 1931 svo Árar, álfar og tröll er afmælissýning. Frumsýning var á Sólheimum á sumar- daginn fyrsta, 22. apríl, og var sýnt þar fimm sinnum fyrir fullu húsi. Nú bíður Stóra svið Þjóðleikhússins og hefst sýning þar klukkan 18 á annan í hvíta- sunnu. n Kóngurinn vill engu breyta Helga Pálsdóttir leikur Sesselju á Sólheimum sem vildi að allir lifðu í sátt og samlyndi. Guðmundur stýrir Leikfélagi Sólheima í fimmta sinn. MYNDIR/AÐSENDAR Öll þessi öfl sem börðust gegn Sesselju þegar hún var í sínu hugsjónastarfi, þau verða að tröllum, kóngum og alls konar árum í okkar verki. Guðmundur Lúðvík Þorvaldsson, leikstjóri Tímamót 31LAUGARDAGUR 22. maí 2021

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.