Fréttablaðið - 22.05.2021, Síða 72

Fréttablaðið - 22.05.2021, Síða 72
njall@frettabladid.is Bandalag Íslenskra Bílablaðamanna (BÍBB) hefur tilkynnt hvaða bílar það eru sem komust í úrslit við val á Bíl ársins á Íslandi 2021. Er það fimm manna forvalsnefnd sem velur úrslitabílana. Í f lokki minni fólksbíla voru það Opel Corsa e, Honda e og Toyota Yaris sem urðu fyrir valinu. Í flokknum stærri fólks- bílar urðu efstir VW ID.3, Peugeot 2008 og Opel Mokka. Minni jeppar og jepplingar er þriðji f lokkurinn en þar voru VW ID.4, Skoda Enyaq og MG EHS PHEV hlutskarpastir, en í stærri jeppum og jepplingum Land Rover Defender, Ford Explorer PHEV og Kia Sorento. Bílarnir sem komust í úrslit verða svo prófaðir af tólf manna dómnefnd frá miðlum eins og Fréttablaðinu, Morgunblaðinu, FÍB blaðinu, Við- skiptablaðinu, visir.is og bilablogg. is. Tilkynnt verður um úrslit í sérstöku hófi BÍBB í húsakynnum Blaða- mannafélagsins í Síðumúla 23 mánu- daginn 7. júní næstkomandi. Einnig verður sagt frá valinu í næsta Bíla- blaði Fréttablaðsins sem kemur út 8. júní að þessu sinni. n Tólf bílar í úrslit í Bíl ársins 2021 Keppt er til verðlauna í fjórum flokkum en stigahæsti bíllinn ár hvert hlýtur Stálstýrið til varðveislu. Með tilkomu rafbíla á markað má búast við að framleiðend- ur komi með aflmeiri útgáfur, sérstaklega Volkswagen þar sem hefð er fyrir slíku. njall@frettabladid.is Forstjóri Volkswagen, Ralf Brand- statter, kynnti í vikunni nýjan til- raunabíl frá merkinu sem kallast einfaldlega ID.X. Að sögn Brandstatter er bíllinn þó ekki kynningarmynd framleiðslu- bíls en að Volkswagen muni þó taka upp marga þá þætti sem notaðir hafa verið í þennan bíl. Í myndum sem Brandstatter birti á Instagram- reikningi sínum má sjá mjög sport- legan bíl sem greinilega er byggður á ID.3 með neongrænum línum í ytra byrði og innréttingu, þar sem að stórir körfustólar og stærri upp- lýsingaskjáir eru áberandi. Talsverðar breytingar hafa verið gerðar á rafhlöðu og rafmótorum, sem kemur beint frá ID.4 GTX. Raf- hlaðan er 82 kWst og samanlagt afl mótoranna er 329 hestöf l sem er 34 hestöflum meira en í ID.4 GTX. Líkt og í GTX er bíllinn með fjór- hjóladrifi. Þessu til viðbótar hefur Volkswagen náð að létta bílinn um 200 kíló en útskýrir þó ekki hvernig þessi mikla lækkun þyngdar náðist fram. Að sögn Brandstatter er bíll- inn snöggur og fer í hundraðið á 5,3 sekúndum og hann mun hafa skrik- stillingu (DriftMode) eins og nýjasti VW Golf R. Volkswagen hefur ýjað að því áður að von sé á GTX útgáfu af ID.3 svo að hér sjáum við líklega hvern- ig sá bíll gæti litið út að einhverju leyti. n VW kynnir aflmikinn tilraunabíl byggðan á ID.3 Brandstatter við nýja tilraunabílinn sem er 329 hestöfl og ekki nema 5,3 sekúndur í hundraðið. njall@frettabladid.is Forstjóri Mini, Bernd Korber, hefur staðfest að með næstu kynslóð mini muni koma blæjubíll í einni útgáfu hans. Næsta kynslóð Mini er vænt- anleg á markað árið 2023 en blæju- útgáfan kemur þó varla fyrr en 2025 í sýningarsali. Njósnamyndir hafa þegar náðst af Mini við prófanir og sýna þær að bíll- inn hefur minnkað aftur. Mun hann nota nýjan rafundirvagn sem er þró- aður í samstarfi Mini við kínverska framleiðandann Great Wall. Búast má við að Mini og Mini blæjubíllinn verði framleiddir í Kína en þar mun talsverð sala fara fram á bílnum. Blæjuútgáfan hefur alltaf verið vinsæl hjá Mini sem eflaust hefur átt sinn þátt í ákvörðuninni að smíða bílinn, en rafdrifnir blæju- bílar eru teljandi á fingrum ann- arrar handar. Það er helst Fiat 500 C sem keppa mun við hann ásamt hugsanlegri blæjuútgáfu Volks- wagen ID.3. n Næsta kynslóð Mini einnig blæjubíll Engar upp- lýsingar um blæjubílinn eða stærð hans eru fyrirliggjandi en búast má við fjögurra sæta bíl eins og í núverandi kyn- slóð. Næsta kynslóð Mini verður líklega aðeins minni en núverandi kynslóð og kemur þá einnig í rafútgáfu. Sjúkratryggingar Íslands auglýsa eftir áhugasömum aðilum til viðræð- na um þverfaglega geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni. Eftirfarandi kröfur eru gerðar: • Að fyrirtækið/starfsstofan uppfylli skilyrði heilbrigðisyfirvalda til rekstursins • Að á stofunni starfi þverfaglegt teymi geðheilbrigðisstarfsmanna sem hafi a.m.k. tveggja ára starfsreynslu sem klínískir heilbrigðis- starfsmenn • Að þjónustan sé veitt, með þverfaglegum hætti, af heilbrigðis- starfsmönnum með sérþekkingu á greiningu og gagnreyndri meðferð geðheilbrigðisvanda barna og ungs fólks • Að þjónustan sé veitt börnum og ungmennum allt að 25 ára aldri • Að þjónustan sé veitt bæði á starfsstofu og í formi fjarheilbrigðisþjónustu Um er að ræða tímabundið átak sem gildir út árið 2021. Áhugasamir aðilar eru beðnir um að senda tölvupóst á netfangið innkaup@sjukra.is þar sem fram kemur stutt kynning á fyrirtækinu, lýsing á gæðastefnu og hvernig ofangreindir þættir eru uppfylltir og eftir atvikum umfram þær kröfur. Frestur til að lýsa yfir áhuga til viðræðna er til og með 31. maí nk. Markmið með innkaupum skv. auglýsingu þessari er að kaupa sem mest af þverfaglegri geðheilbrigðisþjónustu, fyrir þá fjárveitingu sem til verkefnisins er ætluð, að teknu tilliti til þeirra þátta sem tilteknir eru í 3. mgr. 40. gr. laga nr. 112/2208 um sjúkratryggingar. Geðheilbrigðisþjónusta fyrir börn og ungmenni AÐALFUNDUR Landssambands sumarhúsaeigenda Verður haldinn, fimmtudaginn 3. júní í SÍBS- húsinu, Síðumúla 6 , Reykjavík kl. 18:00 Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Á fundinum verður fylgt tilmælum um sóttvarnir. Stjórnin. 36 Bílar 22. maí 2021 LAUGARDAGUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.