Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 4

Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 4
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 JEEP WRANGLER RUBICON 4XE PLUG-IN HYBRID FRUMSÝNING GOÐSÖGNIN RAFMÖGNUÐ VERÐ FRÁ KR. 9.490.000 LAUNCH EDITION VERÐ FRÁ KR. 10.490.000 LAUGARDAG Á MILLI KL. 12-16. Íslendingar eru almennt hlynntari opinberum rekstri í heilbrigðiskerfinu, samkvæmt könnun Félagsvísindastofn- unar. Prófessor segir bil á milli vilja almennings og fyrir- komulags. Læknir segir að hlusta eigi á fólkið á gólfinu. arib@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Almenningur hér á landi er hlynntari opinberum rekstri í heilbrigðiskerfinu en einka- rekstri, samkvæmt könnun Félags- vísindastofnunar HÍ fyrir BSRB og Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Minnstur stuðningur við einka- rekstur var hjá sjúkrahúsum, þar vildi rúmt 81 prósent að slík starf- semi yrði alfarið á vegum hins opin- bera. Mestur stuðningur við einka- rekstur var hjá sjúkraþjálfurum og sálfræðingum. Varðandi einkastof- ur sérfræðilækna á borð við Lækna- stöðina Glæsibæ og Domus Medica telja 42 prósent að slík starfsemi eigi alfarið að vera á vegum hins opin- bera, 10 á vegum einkaaðila eins og staðan er í dag og 48 prósent að það eigi að vera jafnt á milli hins opin- bera og einkaaðila. Rúnar segir að alveg hafi verið sama hvaða rekstrareiningu var spurt um, afstaða almennings hall- aðist alltaf að opinberum rekstri. „Við getum talað um ákveðið bil á milli viðhorfa almennings og raun- verulegs fyrirkomulags heilbrigðis- þjónustunnar í dag,“ segir Rúnar. Ragnar Freyr Ingvarsson, fram- kvæmdastjóri Gigtarmiðstöðvar- innar, segir einkarekinn stofurekst- ur hafa verið starfræktan við góðan orðstír í áratugi. „Þessi sjálfstæði rekstur er mjög ódýr í samanburði við kostnað við heimsókn á heilsu- gæslu, göngudeildir Landspítala eða borinn saman við sambærilega starfsemi í Evrópu. Af fimm vinsælustu heilsugæslu- stöðvunum á Íslandi samkvæmt þjónustukönnunum eru þrjár einkareknar. Ég hef ekkert á móti opinberum rekstri, alls ekki, ég starfa einnig á Landspítalanum við að byggja upp mikilvæga starfsemi. Það sem við þurfum að átta okkur á er að það þarf að vera samspil, blanda af opinberum rekstri við einkarekstur til að við skattgreið- endur fái sem mest fyrir peningana okkar,“ segir Ragnar Freyr. „Það þarf að tala við fólkið sem starfar á gólfinu. Það er alltaf talað við fræðimenn, stjórnendur, for- stjóra, yfirlækna og millistjórn- endur, aldrei við fólkið sem raun- verulega vinnur vinnuna.“ Gísli Páll Pálsson, formaður Sam- taka fyrirtækja í velferðarþjónustu og forstjóri Grundarheimilanna, er ánægður með könnunina. Grundar- heimilin og Hrafnista eru sjálfs- eignarstofnanir, stofnuð í almanna- þágu og rekin fyrir skattfé. „Við flokkumst þar mitt á milli ríkis og einkafyrirtækis, ég held að fólk sé mjög sátt við að Grund, Hrafnista og fleiri sjái um öldrunarþjónustu á Íslandi, við höfum gert það síðan 1922,“ segir Gísli. „Guð forði okkur frá því að ríkið fari að reka hjúkrunarheimili. Ef þú lítur á Vífilsstaði, sem eru reknir af ríkinu, þá taka þeir 55 þúsund krón- ur á dag á meðan við fáum rúmlega 30 þúsund krónur á dag. Og þar er minni þjónusta en á hjúkrunar- heimilum.“ Könnunin var gerð í mars, 842 svöruðu, svarhlutfall var 43 pró- sent. ■ Meirihluti vill opinberan rekstur Um 42 prósent landsmanna telja að hið opinbera eigi að reka einkastofur og læknamiðstöðvar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 0 20 40 60 80 100 42% 48% 10% 3% 4% 68% 29% 58% 38% ■ Fyrst og fremst af hinu opinbera ■ Jafnt af einkaaðil- um og hinu opinbera ■ Fyrst og fremst af einkaaðilum Einkastofur Heilsu- gæslu- stöðvar Hjúkrunar- heimili ✿ Spurt um afstöðu adalheidur@frettabladid.is DÓMSMÁL Tryggingafélagið Sjóvá- Almennar ber fulla og óskipta bótaskyldu vegna tjóns sem varð á tveimur lögreglubifreiðum í aðgerð- um lögreglu í júní 2018. Málið höfð- aði ríkislögreglustjóri í því skyni að eyða réttaróvissu um ábyrgð á tjóni sem varð vegna eftirfarar og stöðv- unar ökumanna sem ekki hlýða fyrirmælum lögreglu. Ríkislögreglustjóri telur að tjón á lögreglubílum vegna slíkra aðgerða eigi að bæta úr ábyrgðartryggingu ökumanns en tryggingafélög hafa hafnað bótaábyrgð á þeim grund- velli að lögreglan hafi valdið tjóninu af ásetningi. Mál þessi hafa ratað f y rir úrskurðarnefnd vátryggingar- mála sem talið hefur að lögreglan eigi sjálf að standa straum af þeim kostnaði sem hlýst af hlutverki hennar við að halda uppi lögum og reglu. Þessu er héraðsdómur ósammála, sem kvað upp dóm í málinu í gær. Tjónið á lögreglubílunum varð þegar lögreglan freistaði þess að stöðva för ökumanns sem var á númerslausum bíl og virti ekki stöðvunarmerki lögreglu. Hann hafði ekið á allt að 140 kílómetra hraða og gerst sekur um fjölda ann- arra umferðarlagabrota. Eftir töluverða eftirför var öðrum lögreglubílnum komið fyrir sem tálma við miðlínu vegarins fyrir framan bílinn, sem ók beint inn í hliðina á lögreglubílnum. Við það hafnaði hin lögreglubifreiðin óhjá- kvæmilega aftan á bílnum og við þetta varð tjón á báðum lögreglu- bílunum. Í dómi héraðsdóms segir að lög- reglu hafi verið fengnar ákveðnar valdheimildir til að gegna því hlut- verki að halda uppi lögum og reglu og stöðva ólögmæta háttsemi. Lög- reglu beri þó að beita valdheimild- um sínum af meðalhófi. Það var mat héraðsdóms að aðgerðir lögreglunnar hefðu verið í eðlilegu samhengi við tilefnið og féllst hann á kröfu ríkislögreglu- stjóra um viðurkenningu á fullri og óskiptri bótaskyldu trygginga- félagsins á grundvelli lögboðinnar ábyrgðartryggingar. ■ Sjóvá dæmt til að borga tjón á lögreglubílum eftir ofsaakstur Sjóvá ber fulla og óskipta bóta- skyldu á tjóni sem varð á tveimur lögreglubifreiðum í aðgerðum lög- reglu í júní 2018. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA birnadrofn@frettabladid.is SAMFÉLAG Íslenska þjóðin mun eldast á næstu þrjátíu árum sam- kvæmt áætlun um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum sem fjármála- og efna- hagsmálaráðherra birti í gær. Nú er sjöundi hver landsmaður 65 ára eða eldri, en árið 2050 verður fjórði hver landsmaður á þeim aldri. Á næstu 30 árum mun hægja á fólksfjölgun á Íslandi, talið er að landsmönnum fjölgi um 60 þús- und. Síðustu þrjátíu ár hefur lands- mönnum fjölgað um 110 þúsund.■ Þjóðin eldist á næstu áratugum Nú er sjöundi hver landsmaður 65 ára eða eldri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR birnadrofn@frettabladid.is VESTFIRÐIR Efnt hefur verið til kosn- ingar um nafn fyrir nýjan þjóðgarð á Vestfjörðum á vegum Umhverfis- stofnunar. Alls barst 21 tillaga . Úr tillögunum voru valin fimm nöfn sem helst þóttu koma til greina. Þau voru: Vesturgarður, Þjóðgarðurinn Gláma, Dynjandis- þjóðgarður, Arnargarður og Vest- fjarðaþjóðgarður. Hægt er að kjósa um nafn þjóðgarðsins á ust.is. ■ Kosið um nafn á nýjan þjóðgarð 4 Fréttir 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.