Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 8
Skotbyrgi og aðrar herminjar hafa ekki náð hundrað ára aldri og eru því ekki friðuð mannvirki. Þeim hefur ekki verið haldið við í þrjá aldar- fjórðunga. Safnstjóri Borgar- sögusafns telur rétt að hlífa herminjum í skipulagsvinnu.  kristinnhaukur@frettabladid.is SAMFÉLAG Skotbyrgjum frá her- námsárunum og ýmsum öðrum herminjum hefur lítið sem ekkert verið haldið við í þrjá aldarfjórð- unga. Eru sum illa farin og jafnvel slysahætta af þeim. Minjarnar eru f lestar í Öskjuhlíðinni og Vatns- mýrinni, en einnig víðar í borgar- landinu, svo sem við Elliðaárnar, Seljahverfi, Engey og við Ægisíðuna. Einnig á Seltjarnarnesi, Hafnarfirði og víðar. Herminjarnar falla utangarðs þegar kemur að friðun því þær hafa ekki náð hundrað ára aldri. Hefur því til dæmis bröggunum verið kerfisbundið útrýmt í Reykjavík og aðeins örfáir standa eftir. Borgar- sögusafn hefur skrásett þær her- minjar sem standa í Reykjavík og veitt ráðgjöf við skipulagsvinnu. „Við höfum talað fyrir að þessar minjar séu ekki rifnar þótt þær séu ekki friðaðar,“ segir Guðbrandur Benediktsson safnstjóri. Meðal þeirra eru skotbyrgin í Breiðholtinu sem fá hverfisvernd og verða ekki rifin með nýju skipulagi hverfisins. Þau byrgi eru þó illa farin og íbúar hafa bent á að það sé af þeim slysa- hætta. Á einu er þriggja metra steypt þakplata nokkuð heilleg en hlaðnir veggirnir eru mikið molnaðir. Guðbrandur segir að ef herminjar eru ekki fyrir ættu þær að fá að standa eins og þær eru og helst að merkja þær og ryðja að þeim veg. „Ef hætta er á að minjar séu slysagildra ætti að tilkynna það til borgarinn- ar,“ segir hann. Byrgjunum hefur ekkert verið haldið við síðan í stríðslokum og eðlilega hefur tíminn tekið sinn toll af þeim. Eitt byrgi í Faxaskjóli var fyllt með garðaúrgangi eftir stríðið og árið 1975 fundust þar mannabein. Í einu byrginu í Öskjuhlíð höfðu nokkrir hjólabrettamenn steypt sér ramp árið 2019. Sá rampur var hins vegar tekinn niður. „Þarna voru á ferðinni elju- samir ungir menn og ég verð að hrósa þeim fyrir framtakið, að bera þangað sementspoka og hræra,“ segir Guðbrandur kíminn. „Það var hálfgerð synd að þurfa að taka þetta niður.“ Aðspurður um hvað safnið telji réttast að gera segir Guðbrandur að áherslan ætti að vera á þann stað þar sem minjarnar eru f lestar og þéttastar, það er Öskjuhlíðina. Þar ætti að halda utan um og viðhalda þessari sögu. Gildi annarra herminja ætti að meta í hvert skipti við skipu- lagsvinnu. „Við höfum sett upp söguskilti í Öskjuhlíð og verið með leiðsagnir um svæðið sem reyndust mjög vin- sælar,“ segir Guðbrandur. Þó að minjarnar séu ekki orðnar hundrað ára hafi þær menningarlegt gildi og fólk hafi áhuga á þeim. ■ Slysahætta vegna skotbyrgja sem ekki hefur verið haldið við í áratugi Skotbyrgið við Gróttu er eitt af fjölmörgum óvernduðum herminjum á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Við höfum talað fyrir að þessar minjar séu ekki rifnar þó þær séu ekki friðaðar Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri Borgarsögu- safnsins námskeið Skráning í síma 581 1281 "Crash course" í júní Einkatímar 2x í viku í 4 vikur Skráning er hafin www.gitarskoli.is birnadrofn@frettabladid.is KÍNA Kínverskur fjárhirðir, Zhu Keming, bjargaði lífi sex maraþon- hlaupara í norðausturhluta Kína um liðna helgi. Óveður skall á í miðju hlaupi og var hlé gert á hlaup- inu er 172 hlauparar voru horfnir. 21 hlaupari lét lífið. BBC greinir frá. Zhu leitaði skjóls í helli er óveðrið skall á. Er hann sá hlaupara í vanda leiddi hann hlauparann í hellinn, kveikti eld og hlúði að honum. Fimm hlauparar bættust við og er Zhu fagnað sem hetju. Hann segist aðeins vera „venjuleg manneskja sem gerði venjulegan hlut“. ■ Fjárhirðir bjargar sex hlaupurum arib@frettabladid.is COVID-19 Almannatengslafyrirtæki tengd rússneskum stjórnvöldum bjóða áhrifavöldum á samfélags- miðlum í Evrópu mikið fé til að tor- tryggja bóluefni Pfizer við Covid-19. Breski fjölmiðillinn Independent hefur eftir Leo Gasset, áhrifavaldi með yfir milljón fylgjendur á You- Tube, að almannatengslafyrirtækið Fazze hafi boðið honum fé fyrir myndband þar sem kæmi fram að bóluefni Pfizer væri skaðlegt. Fleiri áhrifavaldar segja sömu sögu. Samkvæmt AP fréttaveitunni bendir síða Fazze til að það sé í Rúss- landi. Fyrir mánuði sökuðu Evr- ópuþjóðir Rússa og Kínverja um að grafa undan vestrænum bóluefnum til að koma sínum eigin á markað. ■ Buðu fé fyrir að tala illa um Pfizer Bóluefni Pfizer hefur verið notað hér á landi með góðum árangri. Búnaður til lækninga sendur frá Tyrklandi til Indlands Þessir menn unnu hörðum höndum þegar þeir tóku á móti búnaði til lækninga við COVID-19 sem sendur hafði verið til Nýju-Delí í Indlandi frá Ankara í Tyrk- landi. Alls hafa verð greind yfir 27 milljón tilfelli af sjúkdómnum í Indlandi og yfir 315 þúsund manns hafa látið lífið þar vegna COVID-19. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 8 Fréttir 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.