Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 10
18
Skattabreytingar
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
20
17
20
18
20
19
20
20
20
21
sa
m
ta
ls
n Lækkanir n Hækkanir
5
7
2
3
4
3
5
8
9
3
4
6
11
8
19
8
341
88
14
16
21
28
29
19
19
19
18
18
17
253
HEIMILD: VIÐSKIPTARÁÐ
1990 2000 2010 2020
Hlutfall háskólamenntaðra á
íslenskum vinnumarkaði (%)
n Í öðrum störfum
n Í störfum háskólamenntaðra
2
3
7
11
9 12 22 27
HEIMILD: VIÐSKIPTARÁÐ
Alþjóðageirinn hefur ein-
ungis vaxið að meðaltali um
2,7 prósent á ári á tíu árum
til ársins 2020. Hefði þurft að
vaxa um tíu prósent.
Það er ekki augljóst að við náum
að byggja upp alþjóðageirann
sem lykilstoð í hagkerfinu ef fram
fer sem horfir. Þetta segir Sveinn
Sölvason, formaður alþjóðahóps
Viðskiptaráðs og fjármálastjóri
Össurar, í samtali við Fréttablaðið.
Alþjóðageirinn hefur einungis
vaxið að meðaltali um 2,7 prósent
á ári á tíu árum til ársins 2020. Ráð-
gjafarfyrirtækið McKinsey benti
á árið 2012 að vöxturinn yrði að
vera tíu prósent á ári til að ná fram
kröftugum hagvexti, að því er fram
kemur í skýrslu Viðskiptaráðs sem
alþjóðahópurinn stóð að, Hugsum
stærra, Ísland í alþjóðasamkeppni.
Rétt er að nefna að sprenging í
ferðamennsku, sem hófst um það
leyti sem McKinsey-skýrslan birt-
ist, gerði það að verkum að mikill
hagvöxtur varð hér á landi. Þegar
McKinsey-skýrslan birtist var hag-
kerfið í sárum eftir bankahrunið
2008.
Undir alþjóðageirann falla hug-
vitsdrifin fyrirtæki sem treysta
ekki á náttúruauðlindir. Auðlinda-
geirinn samanstendur af ferða-
þjónustu, sjávarútvegi, stóriðju og
landbúnaði en náttúruauðlindir
setja starfsemi þeirra skorður.
„Við sem þjóð þurfum að taka
ák vörðun um að byg gja upp
alþjóðageirann. Lönd eins og Dan-
mörk og Finnland tóku þá ákvörð-
un,“ segir Sveinn og nefnir að þau
hafi framfylgt stefnunni með skyn-
sömum hætti.
Að hans sögn þarf að setja málið
á oddinn. Það slái tóninn fyrir
grunnstoðirnar svo alþjóðageir-
inn fái blómstrað. „Við þurfum að
hugsa málið heildstætt enda snertir
það alls kyns málaf lokka,“ segir
Sveinn. „Það þarf markmið sem
sendir skýr skilaboð í gegnum allt
kerfið um að hugsa út frá alþjóða-
geiranum,“ segir hann.
Fram kemur í skýrslunni að
starfsumhverfi fyrirtækja á Íslandi
hafi lengi verið sveipað óstöðug-
leika, hvort sem litið sé til hagrænna
þátta eða laga- og reglugerðarum-
hverfis. Skortur á fyrirsjáanleika í
starfsumhverfi fyrirtækja geti haft
fjölmargar neikvæðar afleiðingar
í för með sér, til að mynda fælandi
áhrif á erlenda fjárfesta.
Athygli vekur að skattar hafa
hækkað 253 sinnum frá árinu 2008
til 2021 en einungis lækkað 88
sinnum á sama tíma, að því er Við-
skiptaráð bendir á. Eins hafa laun
Þurfum að setja alþjóðageirann á oddinn
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill
@frettabladid.is
Þörf á sjálfstæðu regluráði
Þörf er á sjálfstæðu regluráði á
Íslandi sem metur afleiðingar
löggjafar, segir í skýrslu Við-
skiptaráðs, og hætta þarf inn-
leiðingu EES-regluverks með
óþarflega íþyngjandi hætti.
Í nágrannalöndum Íslands
eru starfrækt svonefnd reglu-
ráð (e. Better regulation com-
mittee) sem njóta sjálfstæðis
frá stjórnvöldum og greina
áhrif lagafrumvarpa fyrir-
fram en með stofnun slíks
ráðs hérlendis dregur úr líkum
á því að óþarflega íþyngjandi
reglur verði að veruleika. Slíkt
ráð gæti gefið út skýrslur sem
stjórnvöld þyrftu að bregðast
við.
„Greining á af leiðingum
reglusetningar er nauðsynleg
svo markmiðum stjórnvalda
um einföldun regluverks náist
og óhóf legar kvaðir séu ekki
innleiddar sem skerða mögu-
leika íslenskra fyrirtækja til
að keppa á alþjóðagrundvelli
þar sem fyrirtæki í helstu við-
skiptalöndum okkar þurfa
ekki að lúta slíkum óþarflega
íþyngjandi kvöðum,“ segir í
skýrslunni. EES-reglugerðum
sé ætlað að samræma reglu-
verk. Séríslenskar kvaðir við
innleiðingu vinna gegn því
markmiði.
Með auknum fjölda þeirra
er hætt við því að Íslendingar
sitji uppi með ósamkeppnis-
hæft regluverk. Þá er mikil-
vægt að Ísland innleiði EES-
reglur tímanlega. Dráttur á
innleiðingu þeirra getur verið
bagalegur fyrir þá sem vinna á
alþjóðlegum mörkuðum, segja
skýrsluhöfundar. ■
Fjölga þarf útskrifuðum úr tæknigreinum
Til að stuðla að uppbyggingu fyrirtækja í hugvitsdrifinni starfsemi þarf að fjölga útskrif-
uðum nemendum úr tæknigreinum. Í skýrslunni segir að hlutfall nemenda sem útskrifist
úr svokölluðum STEM-fögum (vísindum, tækni, verkfræði og stærðfræði) sé einn mæli-
kvarði á samkeppnishæfni ríkja. Því sé mikið áhyggjuefni að Ísland standi illa að vígi
hvað þetta varðar.
Draga þurfi úr miðstýringu og auka sveigjanleika skóla til að mæta betur þörfum nem-
enda. Jafnframt þurfi að gefa kennurum frjálsari hendur til að móta námskrá og kennslu
út frá almennum grunnviðmiðum. Það hafi skilað góðum árangri í Finnlandi sem útskrifi
f lesta STEM-menntaða á meðal Norðurlanda. ■
hækkað tíu sinnum á undanförnum
ellefu árum umfram svigrúm. Að
meðaltali er hækkunin meira en
tveimur prósentum umfram getu
hagkerfisins. „Ef fram fer sem horfir
mun eitthvað láta undan með meira
atvinnuleysi eða verðbólgu en nú
er,“ segir í skýrslunni.
Verkalýðshreyfingin tók þátt í
samráðsvettvangi þar sem reynt
var að bæta fyrirkomulag kjara-
samninga. Reynt var að skapa sátt
um forsendur kjarasamninga út
frá samkeppnisstöðu, framleiðni
og verðstöðugleika. Sú vinna hófst
en síðan hafa orðið vatnaskil og
við blasir hörð andstaða verkalýðs-
hreyfingarinnar við slíkar breyt-
ingar, segja skýrsluhöfundar.
Stöðugt gengi er mikilvæg for-
senda þess að tryggja alþjóðageir-
anum tækifæri til vaxtar. Í skýrsl-
unni segir að líkt og í ýmsu öðru
er varði hagstjórn hafi það þróast
til betri vegar síðustu ár sem birt-
ist í óvenjulitlum gengissveif lum
samhliða yfirstandi kreppu. Það
megi meðal annars þakka minni
verðbólguvæntingum, viðskipta-
afgangi, stórbættri eignastöðu
þjóðarbúsins og miklum gjald-
eyrisforða.
Aukinheldur er vakin athygli á
því í skýrslunni að skattheimta á
Íslandi sé næsthæst á meðal OECD-
ríkja og að skattkerfið sé í ofanálag
óskilvirkt. Það sé áhyggjuefni í ljósi
þess að skattkerfið hafi afgerandi
áhrif á samkeppnishæfni og lífs-
kjör landsmanna. Skattheimta sé
meðal helstu atriða sem alþjóðleg
og innlend fyrirtæki horfi til við
staðsetningu ólíkra hluta starfsemi.
Tækifæri séu til staðar til að auka
skilvirkni og hvata til verðmæta-
sköpunar til dæmis með því að gefa
fyrirtækjum meira svigrúm til að
flýta afskriftum og minnka umfang
skattbyrði.
Fram kemur í skýrslunni að það
sé áhyggjuefni ef stuðningur við
nýsköpun með skattaafsláttum
minnki á næstu árum, einkum í
ljósi þess að stuðningur íslenska
ríkisins til rannsókna og þróunar
sé almennt lítill í norrænum saman-
burði. En sterk staða hvað varðar
rannsóknir og þróun sé forsenda
þess að hægt sé að byggja upp fyrir-
tæki í alþjóðageiranum. ■
Lítill stuðningur er á Íslandi við nýsköpun miðað við hin Norðurlöndin. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Við sem
þjóð
þurfum að
taka
ákvörðun
um að
byggja upp
alþjóða-
geirann.
Sveinn Sölva-
son, formaður
alþjóðahóps
Viðskiptaráðs
og fjármála-
stjóri Össurar.
MARKAÐURINN 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR