Fréttablaðið - 27.05.2021, Qupperneq 11
Langþráð
Menningarnótt
Þann 21. ágúst næstkomandi höldum við langþráða
Menningarnótt hátíðlega í Reykjavík. Við óskum eftir
skemmtilegum og fjölbreyttum hugmyndum frá
listafólki, íbúum, félagasamtökum, rekstraraðilum
og öllum öðrum sem hafa áhuga á að lífga upp
á borgina á Menningarnótt.
Góðum hugmyndum verða veittir styrkir á bilinu
100.000-500.000 kr. úr Menningarnæturpottinum.
Umsóknarfrestur er til 18. júní. Menningarnætur-
potturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar
og Landsbankans sem hefur verið máttarstólpi
hátíðarinnar frá upphafi.
Sæktu um á menningarnott.is
Menningarnótt fer fram með fyrirvara um breytingar vegna sóttvarna.
hordur@frettabladid.is
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið
Skinney-Þinganes var rekið með um
833 milljóna króna tapi á síðasta ári
borið saman við rúmlega milljarð
króna hagnaði á árinu 2019.
Tekjur félagsins jukust hins vegar
um nærri 1.200 milljónir á milli ára
og námu 11,69 milljörðum. Aukna
veltu má einkum rekja til gengis-
veikingar krónunnar og aukinnar
afkastagetu félagsins í bæði veiðum
og vinnslu á bolfiski, að því er fram
kemur í skýrslu stjórnar í nýbirtum
ársreikningi Skinneyjar-Þinganess.
Það sem skýrir tap samstæðunnar,
sem er með höfuðstöðvar á Höfn í
Hornafirði, er neikvæður gengis-
munur upp á 2,4 milljarða og 470
milljóna sölutap þegar búrekstur og
tengdar eignir Selbakka ehf. var selt til
Flateyjarbúsins í árslok 2020.
Heildareignir Skinneyjar-Þinga-
ness, sem er á meðal stærri útgerðar-
fyrirtækja landsins, nema ríflega 41
milljarði króna. Þar munar mestu
um aflaheimildir félagsins sem voru
bókfærðar á 27 milljarða í lok síðasta
árs. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar
er um 30 prósent.
Langtímaskuldir við lánastofnanir
stóðu í 16,3 milljörðum en í ársbyrj-
un voru lán að fjárhæð 6,5 milljarðar,
sem voru á gjalddaga síðar á árinu,
endurfjármögnuð.
Í skýrslu stjórnar segir að Skinney-
Þinganes hafi haldið áfram að auka
við sig í hlutafé í fiskeldisfyrirtækinu
Löxum. Eignarhlutur Skinneyjar-
Þinganess í Löxum er bókfærður á
1.050 milljónir í árslok 2020.
Stærstu hluthafar fyrirtækisins
eru Ingvaldur Ásgeirsson, Gunnar
Ásgeirsson, Ingólfur Ásgrímsson og
Birgir Sigurðsson, með samanlagt
um 70 prósenta beinan og óbeinan
eignarhlut. ■
Skinney-Þinganes tapaði yfir 830 milljónum í fyrra
27
Aflaheimildir útgerðar-
félagsins eru bókfærð-
ar á 27 milljarða króna
í árslok 2020.
hordur@frettabladid.is
Ný útlán bankanna, umfram upp-
og umframgreiðslur, til atvinnu-
fyrirtækja námu um 10 milljörðum
í aprílmánuði. Þetta er sjötti mán-
uðurinn í röð sem hrein ný lán til
fyrirtækja eru að vaxa en frá því í
desember nemur útlánaaukningin
meira en 40 milljörðum króna.
Þetta má lesa út úr nýjum hag-
tölum Seðlabankans um banka-
kerfið, sem birtust í fyrradag, en
til samanburðar voru ný útlán
bankanna til atvinnulífsins aðeins
um 8 milljarðar á öllu árinu 2020.
Mestu munaði um aukin útlán
til fyrirtækja í þjónustu í síðasta
mánuði, sem jukust um tæplega 11
milljarða, en auk þess til fyrirtækja
í samgöngum og flutningum.
Samtals námu ný útlán banka-
kerfisins í liðnum mánuði tæplega
55 milljörðum króna. Á sama tíma
og verðtryggð lán voru greidd upp
fyrir um 13 milljarða var útlána-
aukningin í óverðtryggðum lánum
nærri 63 milljarðar króna og hefur
aldrei verið meiri í einum mánuði.
Þar af námu hrein, ný óverðtryggð
lán til heimilanna 38 milljörðum en
þau voru að langstærstum hluta, eða
sem nemur 30 milljörðum, á breyti-
legum vaxtakjörum.
Frá áramótum hafa ný óverð-
tryggð lán til heimilanna, með veði
í fasteign, vaxið um rúmlega 135
milljarða króna. ■
Lánað 40 milljarða
til fyrirtækja frá
því í desember
Bankarnir juku útlán sín til fyrirtækja
um 10 milljarða í apríl.
38
Hrein, ný óverðtryggð
lán bankanna til
heimila námu 38 millj-
örðum í aprílmánuði,
en langstærstur hluti
þeirra var á breyti-
legum vaxtakjörum.
Markaðurinn 11FIMMTUDAGUR 27. maí 2021