Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.05.2021, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 27.05.2021, Qupperneq 12
Norðan Botnssúlna á Uxahryggjaleið er móbergsfjall sem ekki lætur mikið yfir sér en ber sérkennilegt nafn, Kvígindisfell. Nafnið vísar til kvíginda, sem merkir ungir nautgripir og er skylt orðunum kvíga og kvígur (bolakálfur). Er talið að grónar f latir norðan fjallsins hafi fyrr á tímum verið afréttur fyrir unga nautgripi. Þótt fjallið sé 783 m hátt og af því frábært útsýni þá hefur það löngum þurft að standa í skugga þekktari nágranna sinna eins og Botnssúlna, Skjaldbreiðs, Þóris- jökuls, Oks, Fantófells og Hvalfells. Umhverfi þess er ekki síður fallegt og þar hafa orðið atburðir sem verð- skulda að því sé sýnd athygli. Því til staðfestingar er Biskupsbrekka norðan Kvígindisfells, skammt frá svo- kölluðum Víðikerjum. Þar andaðist eftir stutt veikindi Jón biskup Þorkelsson Vídalín árið 1720, en hann var þá staddur þarna á leið frá Skálholti í útför mágs síns á Staðarstað. Jón Vídalín var einn helsti lærdómsmaður og latínuskáld síns tíma og við hann er kennd Vídalíns- postilla, íslenskt guðræknirit sem í eina og hálfa öld var ein mest lesna bók á Íslandi. Til að heiðra minningu hins ástsæla Jóns Vídalíns hafa verið reistir krossar í Biskupsbrekku en einnig er þar minnisvarði eftir listamanninn Pál Guðmundsson á Húsafelli. Stutt frá urðu enn voveiflegri atburðir þegar ómennið Hallbjörn Oddsson var veginn þar ásamt sjö öðrum. Átti honum, samkvæmt Landnámu, að hafa sinnast við konu sína og myrt hana með því að höggva af henni höfuðið. Eltu ættingjar hennar Hallbjörn uppi og drápu þar sem nú standa átta vörður fyrir þá sem létu lífið í bardaganum. Kallast þær Hallbjarnarvörður en frá þeim sést vel til Kvígindisfells og flatanna þar sem geldnautin sprönguðu um forðum. Ganga á Kvígindis- fell er ekki erfið og er gengið upp á fjallið úr norðaustri. Tilkomumiklu hamragili er fylgt austan megin upp fjallið og eru 5 km upp á hátindinn, sem er vestast nokk- urra tinda. Af honum er frábært útsýni að áðurnefndum fjöllum en einnig sést ofan í Hvalfjörð. Hægt er að ganga aðra og vestari leið niður af fjallinu, en þeir sem vilja lengri göngu gætu haldið áfram ofan í Hvalfjörð, norðan Hvalfells og meðfram risafossinum Glym. n Í fótspor nauta, biskups og morðingja Kvígindisfell séð úr norðri en í forgrunni er ein af Hallbjarnarvörðum. MYND/TG Skammt frá Kvígindisfelli er talið að hafi verið afréttur fyrir kvígindi, það er unga nautgripi. MYND/TG Útsýni af Kvígindisfelli er frábært, ekki síst í suður að Botnssúlum. MYND/HARALD JÓHANNESSON FÓKUS Á HJARTA LANDSINS 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR Ólafur Már Björnsson, augnlæknir og ljósmyndari Tómas Guðbjartsson, hjartaskurð­ læknir og náttúru­ unnandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.