Fréttablaðið - 27.05.2021, Page 16

Fréttablaðið - 27.05.2021, Page 16
Forvarnir og fræðsla um lýðheilsu allra aldurshópa hefur verið fyrir- ferðarmikil síðustu árin. Við lifum á upplýsingatímum þar sem flest er rannsakað og tækninni f leytir fram. Forvarnir geta verið ýmiss konar; jafnt í félagslegu skyni sem og heilsufarslegu. Ég tel að hér á landi getum við lagt enn meiri áherslu á forvarnir, því þær bæði bæta lífsgæði og líðan ein- staklinga en geta einnig haft mikla efnahagslega þýðingu. Með mark- vissu forvarnarstarfi munu útgjöld til ýmissa félagslegra og heilbrigðis- tengdra viðfangsefna lækka hjá hinu opinbera. Hafnarfjarðarbæ er mjög umhug- að um forvarnir og hefur tekið ákveðna forystu á því sviði. Sem dæmi um þau verkefni má nefna Hafnarfjarðarmódelið, ,,BRÚNA“ og heilsueflingu eldri borgara. Hafnarf jarðarmódelið í for- vörnum barna og ungmenna er óformlegt heiti á því að bæjarfélagið leggur mikla áherslu á að börn og ungmenni stundi íþróttir og tóm- stundir. Hafnarfjarðarbær var fyrsta sveitarfélagið til að veita börnum frístundastyrk og flest sveitarfélög hafa síðan fylgt því fordæmi. Rann- sóknir hafa sýnt það og það hefur einnig sannað sig að ef börn eru í íþróttum eða öðru skipulögðu tóm- stundastarfi þá eru þau líklegri til að fresta því að neyta áfengis, reykja eða nota vímuefni og það hefur áhrif á félagslega, andlega og líkamlega líðan þeirra. ,,BRÚIN“ (Barn, ráðgjöf, úrræði) er verkefni um snemmtæka íhlutun í málefnum barna sem Hafnar- fjarðarbær hóf haustið 2018. Mark- miðið er að grípa snemma inn í erf- iðar aðstæður barna og samþætta þjónustu bæjarins börnum og fjöl- skyldum þeirra til heilla. Þar vinnur félagsþjónusta bæjarins og mennta- sviðið saman með ákveðnum hætti. Með þessu breytta verklagi er hægt að koma í veg fyrir að félags- leg vandamál barna verði þyngri og erfiðari viðureignar sem kalla myndi annars á frekari þjónustu á vegum bæjarins. ,,Fjölþætt heilsuef ling 65 plús“ – leið að farsælum efri árum undir handleiðslu Janusar heilsueflingar, hefur verið í boði fyrir eldri borgara í bænum frá árinu 2016 og er liður í heilsustefnu Hafnarfjarðar. Hjá Janusi heilsuef lingu stunda ein- staklingar styrktarþjálfun undir handleiðslu þjálfara, fylgst er með árangri af æfingunum með reglu- legum mælingum og einnig eru ýmis fræðsluerindi um almennt heilbrigði. Hafnarfjarðarbær býður einnig upp á frístundastyrk fyrir 67 ára og eldri. Það hefur verið sannað að heilsuefling eldri borgara eykur lífsgæði þeirra og lengir tímann í sjálfstæðri búsetu. Kostnaður rík- isins við rekstur á einu hjúkrunar- rými er 15 milljónir á ári. Það hafa 500 einstaklingar farið í gegnum heilsueflingarprógrammið í Hafn- arfirði síðan það hófst. Ef við gefum okkur að við höfum náð að lengja tíma þeirra allra um eitt ár heima þá hefur ríkið sparað 7,5 milljarða. Ein- staklingar sem eru eldri en 65 ára á Íslandi í dag eru 54 þúsund og þeim hefur fjölgað um 40% á síðustu 10 árum. Heilbrigðiskerfið getur ekki staðið undir þessari fjölgun og því er mikilvægara en nokkurn tíma fyrr að setja aukið fjármagn í heilsu- eflingu eldri borgara því það hefur mikinn fjárhagslegan ávinning – svo ekki sé minnst á að einstakling- unum líður betur og eru virkari. Við getum lært margt af Hafnar- firði og því góða starfi sem hefur verið unnið í forvörnum þvert á aldurshópa til að draga úr félags- legum og heilsufarstengdum vanda- málum. Sjálfstæðisflokkurinn á að vera leiðandi í málefnum forvarna og lýðheilsu. Það hefur sannað sig í Hafnarfirði að með forvörnum spörum við pening til framtíðar. Mörg tækifæri eru til samstarfs hins opinbera og einkaaðila í þeim efnum. Horfum til framtíðar með aukn- um forvörnum og spörum þannig fjármuni ríkisins. n Forvarnir fyrir framtíðina Guðbjörg Oddný Jónasdóttir varabæjarfulltrúi í Hafnarfirði og frambjóðandi í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Suðvesturkjör- dæmi. Næst á eftir því að dæma mál eftir lögum og virða réttindi borgar- anna er líklega fátt mikilvægara fyrir dómara í starfi en að kunna að taka gagnrýni á störf dómstólanna. Í ljósi hlutverks dómstóla er eðli- legt að samfélagið geri ríkar kröfur til starfa þeirra og að þær kröfur birtist í opinberri gagnrýni eftir því sem tilefni gefst til. Í vikunni sem leið hefur þessi gagnrýni einkum beinst að þátt- töku dómara í kennslu og rann- sóknum við íslenska háskóla og hugsanlegum áhrifum þess á fræði- lega umræðu um störf dómstól- anna. Það er auðvitað áhyggjuefni ef talið er að dómarar sem sinna kennslu og rannsóknum í auka- starfi hafi slík ítök í lagadeildum að það fæli starfsfólk frá því að halda uppi málefnalegri umræðu um störf dómstóla. Fyrir óinnvígða getur þó verið erfitt að greina í hverju þessi ítök felast. Við umf jöllun um aukastörf dómara er brýnt að hafa í huga að enginn hópur einstaklinga á íslenskum vinnumarkaði býr við eins strangar takmarkanir á því að taka að sér aukastörf og dómarar. Dómarar geta ekki tekið að sér slík störf nema af la fyrirfram leyfis eftirlitsnefndar um dómarastörf. Sú nefnd hefur að vísu veitt þá undanþágu að slíkt leyfi þurfi ekki til kennslustarfa í takmörkuðum mæli. Dómara er aftur á móti skylt að tilkynna um kennslustörf til nefndarinnar áður en hann tekur við þeim. Auk þess hefur nefndin eftirlit með því hvort aukastarfið leiði af sér hættu á að dómarinn geti ekki sinnt dómarastarfinu sínu sem skyldi. Reynslan hefur sýnt að eftirlitsnefndin hefur þar síður en svo setið með hendur í skauti. Þvert á móti hefur hún óhikað haft frum- kvæði að því að afla upplýsinga frá dómurum þegar hún telur hættu á því að viðkomandi hafi færst of mikið í fang. Ef horft er til alþjóðlegs saman- burðar þá lúta íslenskir dómarar nú einum ströngustu reglum í Evr- ópu um aukastörf og skráningu hagsmuna, meðal annars talsvert strangari reglum en starfssystkini þeirra í Danmörku og Noregi þar sem um margt er byggt á sams konar sjónarmiðum í réttarfari og hérlendis. Af opinberum upplýsingum að dæma gegna nú um tíu af 62 sk ipuðum dómurum landsins föstum aukastörfum við laga- deildir háskólanna. Þar af gegna þrír ótímabundnum hlutastöðum sem þeir sinna að aukastarfi með- fram dómstörfum. Tveir eru í hlutastöðum sem renna út nú í sumar og tengjast starfslokum þeirra við Lagadeild Háskóla Íslands í lok nóvember sl. Aðrir sinna aðeins kennslu eða fræði- legum rannsóknum á grundvelli tímabundinna samninga, sem aðjunktar eða gestakennarar, sem ekki fylgja launagreiðslur nema að því leyti sem þeir taka að sér tilfall- andi kennslu, líkt og hefðbundnir stundakennarar. Það er auðvitað viðbúið og eðli- legt að einhverjum þyki hér nóg um. Hins vegar má ekki gleyma að vinnuframlag dómara til þessara aukastarfa sætir sjálfstæðu og virku eftirliti. Á meðan svo er má hugsan- lega láta sig dreyma um að dag einn verði íslenskum dómurum helst fundið það til foráttu að þau sinni hóflegum kennslu- og rannsókna- störfum á sviði lögfræði. Líklega er þó óþarfi að hafa áhyggjur af því á næstunni. n Aukastörf dómara Kjartan Bjarni Björgvinsson formaður Dóm- arafélags Íslands. Ef horft er til alþjóð- legs samanburðar þá lúta íslenskir dómarar nú einum ströngustu reglum í Evrópu um aukastörf og skráningu hagsmuna, meðal annars talsvert strangari reglum en starfssystkini þeirra í Danmörku og Noregi þar sem um margt er byggt á sams konar sjónar- miðum í réttarfari og hérlendis. Hafnarfjarðarbær var fyrsta sveitarfélagið til að veita börnum frístunda- styrk og flest sveitarfélög hafa síðan fylgt því for- dæmi. Til þess að komast inn á vinnumark- að framtíðar þarf að ganga áfram, út úr nútímanum. Undirrituð hefur heyrt orðróm um að með hækkandi aldri verði erfiðara að finna pláss fyrir konur á besta aldri, í síbreyti- legum störfum. Í nýlegum atvinnu- missi bárust mörg vinaleg skilaboð með sama innihaldi: Þú ert á besta aldri og jafnar þig á þessu. En hvað er það að vera á besta aldri? Persónulega var minn besti aldur á sextánda ári og neita ég því að vinnumarkaður framtíðarinn- ar ætli sér að fara að þekkja okkar besta tíma, það er engin til þess betur búin en við sjálfar. Stjórnendur þurfa að hætta að einblína á lífaldur starfsmanna og einblína mun fremur á vilja og áhuga eldra fólks til þess að vinna. Þannig er stuðlað að fjölbreyttara atvinnuumhverfi þar sem allur aldur, kyn og kynþættir mætast, með ólíka sýn og upplifun. Við búum vel hérlendis, en ekki nógu vel út frá samsetningu ólíkra hópa, enda okkar samfélag rótgróið og barnauppeldi oft eftir bókinni. Í frjálsu og fjölbreyttu samfélagi er best að búa, við göngum best áfram í sameiningu, því saman erum við sterkari. Þess vegna hlakka ég til þess að eldast og eiga sama erindi á vinnumarkað nú sem og seinna. Ég veit nefnilega að minn besti aldur á eftir að koma. n Ég er á besta aldri Katrín Kristjana Hjartardóttir stjórnmála- fræðingur og frambjóðandi til stjórnar FKA  Stjórnendur þurfa að hætta að einblína á líf- aldur starfsmanna og einblína mun fremur á vilja og áhuga eldra fólks til þess að vinna. Hverju mannsbarni er kunnugt að úr innsta valdahring Sjálfstæðis- f lokks, Framsóknarflokks, Vinstri- hreyfingarinnar - græns framboðs og Miðflokks (sem er reyndar söfn- uður fremur en stjórnmálaflokkur) liggja gagnvegir til íslenzka útgerð- arauðvaldsins. Það auðvald hefur slíkt steinbítstak á þessum stjórn- málasamtökum að ókleift virðist vera enn sem fyrr að festa með skýrum orðum í stjórnarskrá þá ályktun alls þorra landsmanna að íslenzka fiskveiðilögsagan sé annað og meira en gjöf úr guðs hendi til Samherja og þeirra hinna, gjöf sem gangi síðan að erfðum frá kyni til kyns, ef því er að skipta. Græðgi útgerðarauðvaldsins er hemjulaus. Leigugjald af fiskveiði- auðlind þjóðarinnar er fyrir þeim óréttlátur, ef ekki lagalaus skattur. Veiðikóngarnir segja það ef til vill ekki bláköldum orðum, „en maður heyrir andardráttinn“ eins og þar stendur. Og þeim verður aldrei gert til geðs fyrr en þeir fá að nýta fiskveiðilögsögu Íslands endur- gjaldslaust að fullu; og ekki með loðmullulegri heimild, heldur samkvæmt sjálfri stjórnarskrá landsins. Hliðstæðu þess, þó vitaskuld að breyttu breytanda, er að finna sunnar í álfu: þegar gríska hagkerf- ið fór á hvolf um 2010, mest fyrir ýmiss konar sviksemi og hróplegan ójöfnuð heima fyrir um áratugi, og þrælsnúnir samningafundir tóku við í því skyni að treysta grískan efnahag með öllum tiltækum aðferðum, þá vörpuðu fulltrúar lánardrottna dag nokkurn fram spurningu til grískra stjórnvalda. Hún hljóðaði nokkurn veginn svona: „Væri ekki ráð að skattleggja skipakóngana?“ Spurningin vísaði til þess að einn allra stærsti farm- skipaf loti heims var og er í eigu grískra auðjöfra (muna menn eftir milljarðamæringunum og svilun- um Aristoteles Onassis og Stavros Niarchos, svo tveir séu nefndir?). Þegar áðurgreind spurning f laug fyrir var Alexis Tsipras orðinn for- sætisráðherra Grikklands (gegndi embættinu 2015-19), róttækur jafnaðarmaður. Hann tók spurn- ingunni vel að vonum og kvaðst mundu athuga málið. Síðan þá hefur litlum sögum farið af þeirri athugun svo greinarhöfundur viti. En hvers vegna var þessi spurn- ing borin upp í miðri skuldakreppu grísku þjóðarinnar? Jú, vegna þess að auðjöfrar þeirrar þjóðar, skipa- kóngarnir, höfðu komið ár sinni svo vel fyrir borð að samkvæmt stjórnarskrá landsins bar þeim ekki að greiða skatt! Sannið til: íslenzku veiðikóng- arnir láta sig aldrei fyrr en þeir hafa að sínu leyti náð fram sömu fríðindum og grísku skipakóng- arnir. Og þegar orðalag íslenzku stjórnarsk rárinnar um f isk irí verður komið í það horf sem þeim líkar og ríkiskassinn tæmist næst, þá spyr kaupmaðurinn á horninu í mesta sakleysi: „Er ekki einhver leið til að innheimta auðlinda- gjaldið sáluga?“ n Sækonungar Hannes Pétursson rithöfundur Græðgi útgerðarauð- valdsins er hemjulaus. Leigugjald af fiskveiði- auðlind þjóðarinnar er fyrir þeim óréttlátur, ef ekki lagalaus skattur. 16 Skoðun 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.