Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 27.05.2021, Blaðsíða 28
Það er ekki amalegt að liggja í róleg- heitum á Balí. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Fyrir þá sem dreymir um að komast um heimsins höf og gista á lúxushótelum er ótrúlega gaman að fylgjast með theluxurytravel­ expert.com­bloggi og Youtube­ myndböndum. Í þáttunum dvelur höfundur síðunnar á glæsilegum hótelum um víða veröld og leyfir áhorfendum að skyggnast inn í veröld sem fæstir hafa upplifað. Hægt er að lesa um ferðir hans á blogginu. Höfundurinn sem nafngreinir sig ekki er með sérstaka ástríðu fyrir ferðalögum og starfi sínu, en hann er læknir. Hann byggir síðuna á eigin ferðalögum og gætir sín að segja rétt og satt frá því sem hann upplifir. Læknirinn hefur verið á stöðugum ferðalögum um heiminn í 20 ár og byggir síðuna á langri reynslu sinni. Á síðunni er hægt að nálgast ýmis góð ráð og leiðbeiningar um bæði frábær hótel, f lug og f leira nytsamlegt. Á hverjum laugar­ degi setur hann inn nýtt You­ tube­myndband. Læknirinn lætur ekkert stöðva sig, hvorki Covid­19 né annað. Hann er einnig með Instagram­síðu þar sem hann er með yfir eitt hundrað þúsund fylgjendur. Þeir sem gerast áskrifendur að blogginu fá ýmis tilboð og frétta­ bréf um ferðalög. n Ferðast í lúxus um alla veröld Brian Chesky, forstjóri og meðstofn- andi Airbnb. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY Airbnb er nú að kynna ýmsar breytingar á starfsemi sinni sem Brian Chesky, forstjóri og með­ stofnandi Airbnb, segir að búi það undir nýtt tímabil í millilanda­ ferðalögum. Chesky telur að fólk sé sífellt að verða sveigjanlegra og minna bundið. Hann segir að fólk hafi áttað sig á að það þurfi ekki að búa í borg og vera svona nálægt öðrum og geti nú búið, unnið og ferðast víðar. Hann segir að þetta valdi því að fólk ferðist hvenær sem er og mun meira en áður. Hann segir að ferðalög verði aldrei eins og þau voru árið 2019 og ferðalög og búseta eigi eftir að blandast saman í auknum mæli, fólk fari að leigja húsnæði í skemmri tíma í einu og lifa meira flakkaralífi. Hann telur líka að ein af stærstu breytingunum sem séu í vændum sé að ferðalög vegna vinnu minnki. Hann telur að þrjár meginbreyt­ ingar verði ráðandi löngu eftir faraldurinn; að fólk ferðist meira til yndisauka og minna vegna vinnu, að fleiri ferðamenn leiti til minna þekktra áfangastaða og að ferðamenn fái meiri áhuga á ferða­ lögum sem hafa þýðingu, frekar en túristastöðum. Chesky segir að þetta séu stærstu breytingarnar á ferðalögum frá heimsstyrjöldinni síðari. n Airbnb spáir þáttaskilum í ferðalögum 595 1000 . heimsferdir.isBókaðu þína ferð á – fáðu meira út úr fríinu Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th . a ð v er ð g etu r b re yst án fy rir va r Áfangastaður Önnur leið Báðar leiðir Alicante Frá 14.900 Frá 39.800 Malaga Costa del Sol Frá 14.900 Frá 39.900 Las Palmas Gran Canaria Frá 39.950 Frá 77.900 Chania Krít Frá 38.950 Frá 73.900 Lissabon Frá 39.950 Frá 79.900 Ljubljana Frá 37.050 Frá 74.100 Porto Frá 37.450 Frá 74.900 Róm Frá 44.950 Frá 89.900 Tenerife Frá 16.900 Frá 36.800 Verona Frá 19.950 Frá 39.900 á vit ævintýranna Fljúgum Það er ekki að ástæðulausu að L’arc de triomphe í París sé svona vinsælt kennileiti. Sigurboginn er einfald- lega gullfallegur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY. Setningar eins og „Ekki falla í túristagildruna“ eða „Besta leiðin til að ferðast er að ferðast eins og heimamaður“ hljóma víða þegar fólk ætlar til útlanda. En þegar upp er staðið; hvað gerir heima­ maður í sinni eigin borg? Hvað gerum við Íslendingar til dæmis dagsdaglega? Viltu í alvöru ferðast þúsundir kílómetra til þess eins að horfa á sjónvarpið, fá þér Subway í kvöldmat og eyða löngum stundum á Instagram og Twitter? Heimamenn njóta þess sjaldan líkt og ferðamenn að vafra um á þúsund ára gömlum steinilögðum strætum, skoða kirkjur og liggja á ströndinni og borða kirsuber. Því loksins þegar við getum klætt okkur í kargóbuxurnar sem má renna í stuttar, prýtt okkur með sjúskuðum sólhatti og smellt af hundruðum sjálfsmynda fyrir framan Eiffelturninn, ættum við að njóta þess að vera bara jafn­ miklir túristar og okkur lystir. n Láttu þig falla í gildruna 8 kynningarblað 27. maí 2021 FIMMTUDAGURUTANLANDSFERÐIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.