Fréttablaðið - 27.05.2021, Side 30
Kim Gordon, bassaleikari
hljómsveitarinnar Sonic
Youth, er sennilega ein
svalasta og áhrifamesta tón-
listarkona rokksögunnar.
hjordiserna@frettabladid.is
Kim Althea Gordon er fædd 28.
apríl árið 1953 í New York, en ólst
upp í Los Angeles frá fimm ára
aldri þar sem faðir hennar var
prófessor í Kaliforníuháskóla, eða
UCLA. Á námsárunum bjó Gordon
um skeið í Toronto í Kanada en
eftir að kanadíski veturinn skall á
með fullum þunga ákvað Gordon
að snúa aftur til Los Angeles þar
sem hún hóf listnám við Otis-lista-
háskólann. Samhliða náminu
vann hún á indverskum veitinga-
stað og fyrir listaverkasalann Larry
Gagosian.
Frjálslegur níhilismi
Eftir útskrift f lutti Gordon til New
York í von um að geta fundið sér
atvinnu sem listakona. Hún vann
þar við ýmis störf, eins og að skrifa
fyrir tímaritið Artforum, endur-
gera íbúðir vina sinna og árið 1981
hafði hún umsjón með sýningu í
White Columns-listasafninu.
Sama ár fékk hún áhuga á svo-
kölluðum „no-wave“ hljómsveit-
um sem voru eins konar andsvar
framúrstefnulegra listamanna við
pönkinu og nýbylgjunni sem réð
ríkjum á þeim tíma. Gordon, sem
þá var 27 ára gömul og hafði aldrei
spilað á hljóðfæri, lýsti tónlistinni
sem expressjónískri og níhilískri,
og hugsaði með sér að þetta væri
eitthvað sem hún gæti gert.
Ekki leið á löngu þar til hún gekk
til liðs við sína fyrstu hljómsveit,
hina stuttlífu CKM, en það var í
gegnum hana sem hún kynntist
þeim Lee Ranaldo og Thurston
Moore. Gordon og Moore urðu
fljótt par og þau ásamt Ranaldo
stofnuðu hljómsveitina Sonic
Youth. Þar með voru drögin lögð
að einni áhrifamestu hljómsveit
tónlistarsögunnar.
Fyrsta plata sveitarinnar sem var
ónefnd kom út árið 1982 og á eftir
fylgdu Confusion is Sex árið 1983
og Bad Moon Rising árið 1985. Árið
1986 kom síðan út platan EVOL, ári
seinna platan Sister og árið 1988
kom út meistaraverkið Daydream
Nation. Árið 1990 kom út platan
Goo og næstu 19 árin gaf sveitin út
níu plötur til viðbótar.
Sársaukafull endalok
Samband Gordon og Moore var
lengi vel talið eitt farsælasta
hjónaband rokksögunnar, en þau
giftu sig árið 1984 og eignuðust
dótturina Coco tíu árum síðar.
Aðdáendum sveitarinnar var því
brugðið þegar fréttir af skilnaði
bárust í október 2011 en parið
hafði þá verið gift í 27 ár. Í ljós kom
að Moore hafði um árabil staðið
í framhjáhaldi með aðdáanda
sveitarinnar sem Gordon hafði
kynnt hann fyrir árið 2005. Í kjöl-
farið lagði sveitin upp laupana eftir
30 ára samstarf.
Gordon hefur alla tíð vakið
athygli fyrir sviðsframkomu sína
og útlit en hún þykir eitursvöl,
yfirveguð og sjálfsörugg. Sjálf
hefur hún þó greint frá því að hún
hafi glímt við óöryggi gagnvart
ímynd sinni og hlutverki í Sonic
Youth. Gordon var oft í stuttum
kjólum á sviði eða einfaldlega
stuttermabol og öðrum afslöpp-
uðum fatnaði. Hér eru nokkrar
myndir af þessari stórmerkilegu
konu sem kölluð hefur verið „Guð-
móðir gruggsins“.. ■
Goðsagnakennd guðmóðir gruggsins
FERMINGARGJAFIR
Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út
bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal
hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum.
Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst
gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna dagblaði landsins.
Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402
eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is
Áhugasamir auglýsendur geta haft samband við:
Jóhann Waage Markaðsfulltúi Fréttablaðsins
johannwaage@frettabladid.is eða 550-5656
FERÐALÖG INNANLANDS
Föstud ginn 4. júní gefur Fréttablaðið út stórt og f ott Ferðaþema.
Nú er það undir okkur komið að halda hjólum ferðaþjónustunnar gangandi
og vera dugleg að ferðast innanlands í sumar og væntanlega fram á haust.
Og þá er það ferðaþjónustunnar að vera dugleg að auglýsa hvað er í boði
fyrir hinn almenna ferðamann, tilboð á gistingu, afþreyingu og veitingum.
Tryggðu þér gott auglýsingapláss
í langmest lesna da blaði landsins.
Geggjuð Gordon í vínrauðri blússu
með sólgleraugu og svartan gítar.
Í bláum ermalausum kjól á Glaston-
bury-tónlistarhátíðinni árið 1998.
Hvítklædd Kim
Gordon á tón-
listarhátíðinni
Coachella árið
2003. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
Svartklædd og svöl Kim Gordon á sviði ásamt hljómsveit
sinni Sonic Youth í Bretlandi árið 2004.
Gordon í vín-
rauðri blússu og
litríkum buxum
á tónleikum í
New York.
Kim Gordon klædd stuttum rönd-
óttum kjól á góðri stundu.
6 kynningarblað A L LT 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR