Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.05.2021, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 27.05.2021, Qupperneq 42
thorarinn@frettabladid.is Vinsældir Spiral: From The Book Of Saw, nýjustu og níundu myndar- innar í Saw-hryllingsmyndabálk- inum, benda eindregið til þess að blóðþorstinn hafi verið orðinn ansi mikill í veiruhremmingum kvik- myndahúsanna. Aðsóknin á myndina er líka ágæt vísbending um að allt sé þetta að ná jafnvægi að nýju, en hún hefur haldið toppsætinu í miðasölu í Bandaríkjunum frá því hún var frumsýnd fyrir tveimur vikum og hefur í leiðinni komið mynda- flokknum yfir milljarð í miðasölu. Býsna góður árangur þegar haft er í huga að Saw-myndirnar eru vægast sagt misgóðar, eða -slæmar, eftir því hvernig litið er á arf leið morðingjans Jigsaw, sem að vísu er löngu dauður þótt enn sé verið að blóðmjólka frumlegar aðferðir hans í þrautakóngi dauðans. Vinsældir Spiral eru ekkert verra tilefni en hvað annað til þess að minna á að hvað sem um bálkinn má segja þá hófst hann á býsna góðum og frumlegum trylli með Saw 2003. Þau sem vilja rifja ósköpin upp áður en lagt er í nýj- ustu myndina ættu því að byrja á byrjuninni og síðan er óhætt að kíkja aftur á Saw 5, merkilegt nokk, og síðan Saw 3 og Saw 2 í þessari gæðaröð. Restinni er upplagt að sleppa nema brotaviljinn sé þeim mun meiri. n Sögin endalausa Aldrei þessu vant er Chris Rock ekkert að grínast þegar hann freistar þess að blása lífi í Saw-bálkinn með Spiral. MYND/SKJÁSKOT KVIKMYNDIR Hálfur álfur Leikstjórn: Jón Bjarki Magnússon Aðalhlutverk: Trausti Breiðfjörð Magnússon, Hulda Jónsdóttir Þórarinn Þórarinsson Þótt Hálfur álfur, eftir Jón Bjarka Magnússon, sé f lokkuð sem heim- ildarmynd, tollir sá merkimiði ekkert sérstaklega vel við hana þar sem hún er líka eitthvað allt annað og meira. Hálfur álfur hverfist um ömmu og afa leikstjórans og þá fyrst og fremst afann, sem undir lok langrar ævi vill taka upp nafnið Álfur og meðtaka þannig og fagna sínum innri álfi, á meðan hann undirbýr 100 ára afmælið sitt eða jarðar- förina. Allt eftir því hvort kemur á undan. Jón Bjarki hefur lýst tilurð mynd- arinnar þannig að þegar hann fór að huga að lokaverkefni sínu í meistaranámi í sjónrænni mann- fræði í Berlín hafi hugmyndin um að fylgja ömmu hans og afa eftir með tökuvélina leitað sterkt á hann. Hann lét slag standa enda tíminn naumur þar sem afi hans, Trausti Breiðfjörð Magnússon, var 99 ára gamall og amma, Hulda Jónsdóttir, var 96 ára, þegar hann hófst handa. Sannar kvikmyndastjörnur Trausti var vitavörður og þau Hulda bjuggu á Sauðanesvita við Siglufjörð í hartnær fjóra áratugi. Hálfur álfur er hins vegar rétt rúm- lega klukkustundarlöng, en þau heiðurshjón eru svo yndislegur félagsskapur að þau hefðu hæglega getað staðið undir lengri mynd. Slík er útgeislunin og fegurðin í sambandi þessa roskna andstæðu- pars; úthverfa náttúrubarnsins, hálfa álfsins, og bókelskrar, jarð- bundinnar og innhverfrar kvæða- konunnar. Þarna birtast tvær mann- eskjur sem fulltrúar kyn- slóðar og gildismats sem er á hverfanda hveli. Þau eru eigin- lega heil þjóð, eða þjóðir öllu heldur, þar sem þau gætu allt eins verið að syngja og kveð- ast á í Galway á Írlandi eins og Reykjavík á Íslandi. Jón Bjarki tók vissulega djarfa ákvörðun með því að velja jafn per- sónulegt viðfangsefni og ömmu og afa í sinni fyrstu mynd. Hins vegar er auðvelt að skilja þessa ákvörðun þar sem amma og afi eru kvik- myndastjörnur í sjálfu sér og taka hlutverk sín fallega alvarlega. Vitinn í myrkrinu Frásögn Jóns Bjarka sveif last með viðfangsefnunum og er dásamlega einlæg og blátt áfram, þannig að ekki er annað hægt en að hrífast með frá upphafi til enda. Lífsgleði, bjartsýni og æðruleysi Trausta skín eins og viti í gegnum myndina og myrkur ævikvöldsins, þannig að áhorfandinn sveif last létt milli trega og gleði. Barnabarnið og kvikmynda- gerðarmaðurinn finnur hárfínt jafnvægi í frásögninni þannig að ljúfsár afraksturinn stendur full- komlega fyrir sínu. Þar munar líka um kvikmyndatónlist meðfram- leiðandans, Hlínar Ólafsdóttur, sem fellur ákaf lega vel að stemn- ingunni í myndinni og hjá gömlu hjónunum. n NIÐURSTAÐA: Óðurinn sem gömlu hjónin Trausti og Hulda syngja og kveða lífinu í Hálfum álfi er svo einstakur að hann kemur við innsta kjarna hins sammann- lega. Vekur trega og gleði á víxl í einföldu en um leið margræðu listaverki, sem er eitthvað annað og miklu meira en heimildar- mynd í nokkrum hefðbundnum skilningi. Álfagaldur Framliðin fylking KVIKMYNDIR Army of the Dead Leikstjórn: Zack Snyder Leikarar: Dave Bautista, Ella Purnell, Ana de la Reguera, Omari Hardwick Arnar Tómas Valgeirsson Zombí-heimsfaraldurinn náði hápunkti sínum í poppmenn- ingu fyrir rúmum áratug. Það var varla þverfótað fyrir hinum lifandi dauðu sem ráfuðu gapandi inn í lesefni, kvikmyndir, sjónvarp og símaleiki – bókstafurinn z hefur líklega ekki sést jafn oft hér á landi síðan hann var lagður niður ’73. Skiljanlega fékk fólk f ljótt leið á ormétnum uppvakningum og fór að beina sjónum sínum að vampír- unum í Twilight sem verða að telj- ast meira sexí. Æðið átti óneitanlega rætur að rekja til ársins 2004 þegar endur- gerð leikstjórans Zack Snyder á Dawn of the Dead kom út. Þar tókst gríðarlega vel til við að varðveita arf leifð forverans sem hafði lengi verið hornsteinn í zombí-menn- ingunni, en bæta um betur í has- arnum. Margir telja endurgerðina bestu zombí-mynd allra tíma og því vakti það athygli að Snyder væri með aðra slíka í smíðum. Sögusvið Army of the Dead er Las Vegas borg sem hefur orðið zombí- plágunni að bráð. Ólíkt mörgum öðrum myndum tókst þó að halda faraldrinum í skefjum með því að girða borgina af, sem verður að teljast óraunverulegt miðað við frammistöðu Bandaríkjamanna í sóttvörnum upp á síðkastið. Eftir stendur afgirt svæði sem morar í hinum dauðu og pólitíkusar sem karpa um hvernig best sé að greftra þá. Að lokum er ákveðið að kjarn- orkusprengja verði sprengd á þjóð- hátíðardaginn 4. júlí. Þá víkur sögunni til fyrrverandi hermannsins Scott Ward (Bautista) sem barðist eitt sin við zombíana í Vegas, en vinnur nú við að elda hamborgara á skítugri vegabúllu. Tækifærin drepa á dyr hjá Ward þegar vafasamur auðkýfingur býður honum það hættulega verkefni að fara inn í borgina til að endur- heimta margmilljónir sem liggja í hvelfingu undir einu af fjölmörg- um spilavítum borgarinnar. Ward smalar í misfrítt föruneyti í þetta feigðarf lan og allt virðist stefna í stórskemmtilega vitleysu. Það er þó ekki raunin. Persónurn- ar eru flatar og leikurinn er stirður, sem er kannski ekki skrítið þegar handritið er jafnslæmt og raun ber vitni. Söguþráðurinn er klisju- kenndur og mörg atriði eru allt of löng, eins og myndin sjálf sem slagar hátt í þrjá tíma. Ein helstu vonbrigðin eru hversu lítið sögusvið Las Vegas-borgar spilar þar inn í. Myndin hefst á syrpu þar sem zombíar klæddir sem Elvis éta fólk í spilakassasölum við vel útfærða ábreiðu af Viva Las Vegas. Því miður er þetta hápunktur myndarinnar sem verður fljótt líf- lausari en zombíarnir sjálfir. Þá verður að teljast skrítið hversu illa myndin er útfærð út frá tækni- legu sjónarhorni. Burtséð frá því hvað fólki finnst um Snyder sem handritshöfund, þá skilar hann venjulega frá sér ágætis sjónarspili en hér eru mörg atriði furðulega blörruð sem kemur bagalega út. Áhorfandanum ætti að verða óglatt yfir groddalegu ofbeldi, en hér yrði það frekar yfir slæmri myndvinnslu. Það býst enginn við fagurslípaðri hámenningu þegar kveikt er á mynd sem heitir Army of the Dead, en niðurstaðan er samt sem áður vonbrigði. Zombí-unnendur verða að bíða um ókominn tíma eftir töfralækningunni sem glæðir æðið lífi á ný. n NIÐURSTAÐA: Misheppnuð endurkoma Snyder í zombí- heima. Dave Bautista sem er þekktastur sem Drax í Guardians of the Galaxy tekur zombíana föstum tökum. MYND/SKJÁSKOT LÍFIÐ 27. maí 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.