Víkurfréttir - 13.01.2021, Page 6
Útgefandi:
Víkurfréttir ehf.,
kt. 710183-0319
Afgreiðsla og ritstjórn:
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbæ,
sími 421 0000
Ritstjóri og ábm.:
Páll Ketilsson,
sími 421 0004,
pket@vf.is
Fréttastjóri:
Hilmar Bragi Bárðarson,
sími 898 2222,
hilmar@vf.is
Prentun:
Landsprent
Auglýsingastjóri:
Andrea Vigdís
Theodórsdóttir,
sími 421 0001,
andrea@vf.is
Útlit og umbrot:
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Hilmar Bragi Bárðarson
Dagleg stafræn útgáfa:
vf.is og kylfingur.is
Víkurfréttir í 40 ár
fimmtudagurinn 14. janúar 1982
Það eru liðin 40 ár síðan Gamla búð við Duusgötu í Keflavík varð eldi að
bráð. Í Víkurfréttum þann 14. janúar 1982 var birt mynd af brunarústunum
og þeirri spurningu velt upp hvort húsið verði endurbyggt. Það þótti ekki
sjálfsagt í þá daga að endurbyggja hús. Gamla búð er hins vegar menn-
ingarverðmæti sem er ein af perlum Reykjanesbæjar í dag.
Nutu þrettándans í
Reykjanesbæ í bílum
Hátíðarhöld þrettándans í Reykjanesbæ voru með óhefðbundnu
sniði að þessu sinni vegna kórónuveirufaraldurs. Í stað dagskrár við
Hafnargötu var boðið upp á útvarpstónleika með Ingó veðurguði og
flugeldasýningu á efra Nikkelsvæðinu. Gestir voru beðnir um að vera
í bílum sínum og hlusta á tónleikana þar og horfa á flugeldasýningu
Björgunarsveitarinnar Suðurness úr bílnum. Púkar og tröll voru
þó á sveimi innan um bílana. Myndina hér að neðan tók Hilmar
Bragi, ljósmyndari blaðsins, með flygildi yfir þetta óhefðbundna
hátíðarsvæði. Þarna má sjá bílafjölda á einu af skipulögðum
bílastæðum svæðisins og meðfram Þjóðbraut og Reykjanesbrautinni.
Það er óhætt að segja að kvenfólkið á Suðurnesjum
hafi skinið skært á árinu 2020, veiruárinu mikla. Þær
Sólborg Guðbrandsdóttir, tónlistarkona, áhrifavaldur
og laganemi, og knattspyrnukonan Sveindís Jane Jóns-
dóttir voru í eldlínunni, hvor á sínu sviði. Þær fengu
báðar margar tilnefningar til Suðurnesjamanns ársins
2020 en að endingu var það Sólborg sem hlaut útnefn-
inguna og er hún vel að henni komin. Sveindís kvaddi
Suðurnesin í bili þegar hún fór á vit fótboltaævintýra í
Svíþjóð sem atvinnumaður í greininni og á framtíðina
fyrir sér, aðeins nítján ára gömul.
Sólborg kemst í ansi skemmtilegan hóp á Suðurnesjum
en Víkurfréttir hafa valið Mann ársins allar götur síðan
árið 1990. Þetta var í 31. skipti sem valið fer fram en
sá fyrsti sem fékk þessa nafnbót var Grindvíkingurinn
og útgerðarmaðurinn Dagbjartur Einarsson. Það hefur
hallað á konur á þessum lista en síðasta áratuginn hefur
sú þróun breyst og allt frá árinu 2012 hafa fjórar konur
hlotið nafnbótina en eitt árið fékk Stopp hópurinn, sem
vinnur að hagsmunum Reykjanesbrautar, útnefningu.
Í honum voru tvær konur. Auk Sólborgar hafa þær El-
enora Rós Georgesdóttir, bakari, Fida Abu Libdeh, frum-
kvöðull, og Nanna Bryndís Hilmarsdóttir, tónlistarkona,
fengið nafnbótina en sú síðastnefnda var valin með
Brynjari Leifssyni. Þau voru og eru meðlimir hinnar
heimsfrægu hljómsveitar Of Monsters and Men. Listinn
yfir okkar besta fólk er glæsilegur og hægt er að sjá hann
inni í blaðinu. Már Gunnarsson, sundkappi og tónlistar-
maður, var kjörinn í fyrra og var á leiðinni á Ólympíuleika
en ónefnd heimsveira stoppaði það eins og svo margt
annað á árinu sem einkenndist mikið af heimsfaraldri.
Sólborg er aðeins 24 ára og var þekkt fyrir hæfileika sína
í söng og tónlist áður en hún fór að láta til sín taka á allt
öðrum vettvangi. Hún var í lok árs tilnefnd af mennta-
málaráðherra til formennsku í stýrihópi um kynfræðslu
í grunn- og framhaldsskólum en það er mál sem hefur
brunnið á henni síðustu árin. Hápunkturinn hjá henni
var á síðasta ári þegar hún gaf út bókina Fávitar sem
byggð er á spurningum sem ungmenni hafa sent henni
um kynfræðslu og kynferðislegt ofbeldi á netinu. Því
er skemmst frá að segja að bókin sló í gegn og Sólborg
var nýliði ársins meðal rithöfunda. Hún fékk m.a. ungan
listamann úr Keflavík til að hjálpa sér með teikningar í
bókina og gaf svo út bókina sjálf án aðkomu bókaútgáfu.
Bókin endaði í 11. sæti yfir mest seldu bækur landsins á
síðasta ári. Hún segir í skemmtilegu viðtali í blaðinu að
hún hafi alls ekki á von á þessum viðtökum en leynir því
þó ekki að hún hafi átt von á því að ungmenni myndi
taka bókinni vel.
Sólborg hóf nám í lögfræði fyrir stuttu síðan og vonast
til að geta einbeitt sér betur að náminu eftir erilsamt
ár í bókaútgáfunni. Einnig hefur hún hug á því að gera
meira á tónlistarsviðinu. Við óskum henni góðs gengis
með verkefnin sem bíða hennar.
Veiruárið var öðruvísi hjá flestum, meðal annars hjá
okkur á Víkurfréttum. Við áttum 40 ára útgáfuafmæli
og stóran hluta ársins var mikil áskorun að halda úti
starfseminni. Auglýsingamarkaðurinn laskaðist mikið
en undirritaður vill þakka öllum þeim sem studdu okkur
í jólablaðinu, þeir voru margir. Við viljum auðvitað þakka
öllum sem hafa stutt útgáfu VF með ýmsum hætti í ára-
tugi. Með stuðningi Suðurnesjamanna, hvort sem er
með kaupum á auglýsingum í okkar miðla eða annarri
þjónustu okkar, fer fyrirtækið nú inn í 39. starfsárið en
Víkurfréttir ehf. hófu rekstur í janúar 1983 með kaupum
á prentútgáfu Víkurfrétta af Prentsmiðjunni Grágás
sem stofnaði blaðið í ágúst 1980. Með ykkar stuðningi
höldum við áfram að gefa út blaðið, reka fréttavef og
golfvef og gerð sjónvarpsþáttarins Suðurnesjamagasíns.
Fyrir það viljum við þakka.
Gleðilegt ár og takk fyrir samstarfið á liðnum áratugum!
Páll Ketilsson.
Kvenfólkið á Suðurnesjum
FRÉTTAVAKT VÍKURFRÉTTA
898 2222
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár