Víkurfréttir - 13.01.2021, Qupperneq 9
Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000
https://www.studlaberg.is/
NÝJAR ÍBÚÐIR VIÐ SJÁVARSÍÐUNA
REYKJANESBÆ
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN KL. 15 - 16.
PÓSTHÚSSTRÆTI 5
Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN 17. JAN. KL. 13- 4.
ÝJ R ÍB IR VI SJ V RSÍ
EY J ES
OPIÐ HÚS SUNNUDAGINN KL. 15 - 16.
I
Grensásvegur 11 - www.eignamidlun.is - Sími 588 9090 Hafnargötu 20 - Reykjanesbær - Sími 420 4000
Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá
HS Orku. Kristinn starfaði áður sem forstöðumaður virkjanareksturs hjá
Orku Náttúrunnar en þar áður starfaði hann í 14 ár sem framkvæmdstjóri
hjá Alcoa bæði á Íslandi og í Bandaríkjunum.
Kristinn er með MBA
gráðu frá Háskóla Íslands,
meistaragráðu í rekstrar-
verkfræði frá DTU í Dan-
mörku auk B.Sc. gráðu
í iðnaðartæknifræði
frá Tækniskóla Íslands.
Hann mun stýra allri
framleiðslu HS Orku í
jarðvarmavirkjununum í
Svartsengi og á Reykja-
nesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar
á Brú í Tungufljóti. Þá er hafin
stækkun á virkjuninni á Reykjanesi
um 30 MW sem áætlað er að komi í
rekstur í lok árs 2022.
Kristinn er kvæntur Hildi Briem
og saman eiga þau þrjú börn.
„Það er mikið gleðiefni að fá Kristinn
til liðs við HS Orku. Hann er gríðar-
lega reynslumikill stjórnandi með
víðfeðma þekkingu á rekstri. Hann
kemur með ferska sýn á verkefnin og
ég er sannfærður um að
hann mun reynast okkur
öflugur liðsstyrkur,“ segir
Tómas Már Sigurðsson
forstjóri HS Orku.
HS Orka hefur verið
leiðandi í framleiðslu á
endurnýjanlegri orku í 45
ár. Hjá fyrirtækinu starfar
öflugur hópur sérfræð-
inga með mikla reynslu
á sínu sviði. Fyrirtækið á og rekur
tvær jarðvarmavirkjanir, Orkuverið
Svartsengi og Reykjanesvirkjun auk
einnar vatnsaflsvirkjunar í Brúará í
Tungufljóti. Fyrirtækið er að hefja
vinnu við stækkun Reykjanesvirkj-
unar um 30 MW. Nýsköpun og frjó
hugsun hefur ætíð verið grunnurinn
í starfsemi fyrirtækisins og er grunn-
urinn að Auðlindagarðinum, þar sem
áhersla er lögð á að allir auðlinda-
straumarnir séu nýttir.
Kristinn Harðarson
nýr framkvæmda-
stjóri hjá HS Orku
Tómas fær nýja Toyotu
í Bláa herinn
Toyota á Íslandi hefur í mörg ár verið aðal styrktaraðili hins umhverfisvæna Bláa hersins. Tómas Knútsson,
höfuðpaur og foringi Bláa hersins, hefur fengið árlega nýjan bíl frá fyrirtækinu til afnota. Tómas fékk nýjan og
glæsilegan Hilux frá Toyota fyrir nokkrum dögum og hann er með skemmtilegt bílnúmer. Tómas sagði við það
tækifæri á Facebook-síðu sinni: „Velkominn til starfa EVA 87, núna verður hvergi slegið af frekar en fyrri daginn.
Mikið er ég stoltur merkisberi hjá Toyota á Íslandi.“
Á myndinni að ofan tekur Tómas Knútsson við lyklum að nýja bílnum.
Skip með útgerðarsögu frá
Suðurnesjum rifið í Njarðvík
Nú er unnið að því að rífa fiskiskipið
Hannes Andrésson SH hjá Skipa-
smíðastöð Njarðvíkur. Skipið verður
klippt niður í brotajárn. Dráttarbátur
kom með skipið til Njarðvíkur fyrir
viku síðan en það var síðast gert út
frá Grundarfirði.
Þetta fiskiskip á sér sögu frá Suður-
nesjum. Sigurður Friðriksson gerði
það út á sínum tíma sem Guðfinn KE
og síðar gerði Nesfiskur það út undir
nafninu Bergur Vigfús GK.
Á síðunni Gömul íslensk skip á
fésbókinni kemur fram að þetta sé
annað skipið með þessu heiti sem er
rifið með þessum hætti í Skipasmíða-
stöð Njarðvíkur.
Hér hvílir Hannes Andrésson SH á
hliðinni í slippnum í Njarðvík. Niðurrif
skipsins er hafið. VF-mynd: Hilmar Bragi
vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 9