Víkurfréttir - 13.01.2021, Qupperneq 10
Daníel Arason staðgengill bæjarstjóra
Daníel Arason, forstöðu-
maður stjórnsýslu í Sveit-
arfélaginu Vogum, verður
staðgengill Ásgeirs Eiríks-
sonar bæjarstjóra sem
verður í veikindaleyfi til 1.
mars 2021.
Þá hefur Róbert Ragn-
arsson, ráðgjafi , verið
fenginn t i l að s inna
ákveðnum verkefnum fyrir
sveitarfélagið samkvæmt nánara
samkomulagi þar um.
Róbert hefur mikla
reynslu úr Vogum, þar
sem hann var bæjar-
stjóri um tíma.
Fjallað var um breyt-
ingar á yfirstjórn sveit-
arfélagsins vegna leyfis
bæjarstjóra í bæjarráði
á dögunum þar sem
bæjarráð samþykkti
m.a. samkomulag við RR ráðgjöf.
Auglýst eftir sviðsstjóra umhverfis-
og skipulagssviðs í Vogum
– Aukin umsvif og framkvæmdir á næstu árum.
Íbúafjöldi mun tvöfaldast á næsta áratug.
Sveitarfélagið Vogar auglýsir nú
eftir sviðsstjóra umhverfis- og
skipulagssviðs. Sveitarfélagið hefur
keypt þjónustu á þessu sviði frá
fyrirtæki á Suðurnesjum en mun
nú ráða starfsmann vegna aukinna
umsvifa en miklar framkvæmdir
standa nú yfir í sveitarfélaginu á
Grænuborgarsvæðinu. Þar stendur
til að byggja um 800 eignir og
hófust framkvæmdir á síðasta ári.
Daníel Arason, staðgengill bæjar-
stjóra í Vogum, segir að nú standi
yfir vinna við endurskoðun aðal-
skipulags en einnig sé þörf á því
að auka framboð sveitarfélagsins á
lóðum í sveitarfélaginu. Samhliða
ráðningu sviðsstjóra umhverfis- og
skipulagssviðs þarf að gera skipu-
lagsbreytingar í stjórnkerfinu með
stofnun nýs sviðs, umhverfis- og
skipulagssviðs.
Í auglýsingu sem birt er í Víkurf-
réttum í þessari viku kemur fram að
viðkomandi beri ábyrgð á daglegri
starfssemi umhverfis- og skipulags-
sviðs og gegni jafnfram leiðandi hlut-
verki við stefnumótum í umhverfis-,
skipulags- og byggingarmálum í sam-
ráði við viðeigandi nefndir. Þá gegni
sviðsstjóri einnig hlutverki bygg-
ingarfulltrúa og skipulagsfulltrúa
sveitarfélagsins. Umsóknarfrestur
er til 25. janúar 2021.
Í Vogum búa um 1.330 íbúar en
sveitarfélagið er næstlandstærsta
sveitarfélagið á Suðurnesjum. Í upp-
byggingu nýs hverfis mun íbúafjöldi
tvöfaldast á næsta áratug.
Daníel Arason.
Það má segja að andrúmsloftið í
Vogunum hafi verið ævintýralegt
á þrettándanum. Börn söfnuðust
saman í Aragerði sem í hjarta
bæjarins, aðeins þau máttu mæta
vegna samgöngutakmarkana.
Við þeim tók Lionsfólk og bauð
þeim upp á smákökur og heitt
kakó. Einnig var hægt að grilla
sykurpúða við opin eld. Krakkarnir
skemmtu sér konunglega og mátti
heyra gleðihlátur um allan skóg
og langt út fyrir svæðið ef lagt var
við hlustir. Grýla og jólasveinninn
héldu svo uppi fjörinu þangað
til að björgunarsveitin Skyggnir
var með tilkomumikla sýningu
sem setti punktinn yfir i-ið í
þessari upplifun barnanna og
vonandi allra bæjarbúa.
HJÓLREIÐASTÍGUR FYRIR 63%
AF KOSTNAÐARÁÆTLUN
Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að taka tilboði GÓ verk ehf. í
lagningu hjólreiðastígs meðfram Vatnsleysustrandarvegi en það hljóðar upp
á 47.181.535 og er 62,84% af kostnaðaráætlun. Í afgreiðslu bæjarráðs kemur
fram að fyrir liggi álit byggingarfulltrúa um að fyrirtækið hafi lagt fram full-
nægjandi gögn um getu sína til að vinna verkið.
Frá skóflustungu í Grænuborg í Vogum sumarið 2020.
Það var skemmtileg
stemmning í Aragerði í
Vogum á þrettándanum.
Ævintýri
í Aragerði
Víkurfréttir sýndu
beint frá formlegri
opnun. Bæjarstjóri
Reykjanesbæjar kveikti
ljósin á gafli hótelsins, til
marks um formlega opnun.
Ingvar Eyfjörð,
framkvæmdastjóri
Akðaltorgs t.h og Hans Prins,
hótelstjóri Courtyard by
Marriott í Reykjanesbæ.
Fáir, vegna Covid-19, en nokkrir gestir fögnuðu með
eigendum og starfsfólki hótelsins við formlega opnun.
10 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár