Víkurfréttir - 13.01.2021, Side 11
Árið 2020 markaði nýtt upphaf
hjá Kadeco. Eftir að síðustu eignir
varnar liðsins voru seldar settu
stjórn völd nýja stefnu fyrir félagið.
Kadeco gegnir nú mikil vægu hlut
verki við að leiða framtíðar þróun
svæðis ins um hverfis Keflavíkur
flugvöll.
Vitaskuld hafði heimsfaraldurinn
sem nú sér loks fyrir endann á
veru leg áhrif á starf semi Kadeco.
Að stæður í sam félag inu hafa verið
krefjandi, ekki síst fyrir þau sem
starfa í flug tengdum greinum eða
reiða sig á flug starf semi. Þessar
áskoranir hafa á sama tíma haft
áhrif á hvernig við viljum hugsa
þróun flug vallar svæðisins til fram
tíðar. Í mótlæti leynast tæki færi
og við hjá Kadeco höfum meðal
annars nýtt þetta óvenju lega ár
til að hugsa hlutina upp á nýtt
með það að leiðar ljósi að nálgast
breyttan veru leika á skap andi hátt.
Á nýju ári munum við setja enn
meiri kraft í þá vinnu og leita lið
sinnis færustu sérfræðinga á
því sviði.
Í upphafi árs 2021 verður efnt
til alþjóð legrar hug mynda og
hönnunar sam keppni fyrir sjálf bært
þróunar svæði við Kefla víkur
flugvöll. Sam keppnin verður ein sú
stærsta sinnar tegundar sem efnt
hefur verið til hér lendis. Keppninni
er ætlað að svara mörgum stórum
spurningum um fram tíð Suður nesja
og festa enn frekar í sessi hlut verk
svæðis ins sem þunga miðju atvinnu
lífs og verð mæta sköpunar á Íslandi
með fjöl breyttum atvinnu tæki
færum og blóm legu mannlífi.
Á liðnu ári höfum við átt í frábæru
samstarfi við fjölda fólks sem
við erum þakk lát fyrir og margar
góðar hug myndir hafa fæðst. Við
höfum fulla trú á að við spyrnan í
flug starf semi verði hröð og höldum
inn í nýtt ár full bjart sýni með trú
á þeim fjöl mörgu tæki færum sem
bíða þess að raun gerast á Suður
nesjum. Fyrir hönd Kadeco óskum
við ykkur öllum gleði legs nýs árs,
með þökk fyrir það liðna og von
um áfram hald andi gott sam starf
og samskipti.
Pálmi, Anna Steinunn, Gréta
og Guðmundur.
Kæru vinir!
MARRIOTT FÆR GÓÐAR MÓTTTÖKUR
Nýja Marriott hótelið við Aðaltorg í Reykjanesbæ opnaði formlega
7. janúar en fram að því hafði það verið opið í nokkra mánuði fyrir gistingu.
Nýr veitingastaður og bar, The Bridge, opnaði núna. Upphaflega átti að
opna hótelið fyrir ári síðan eða um það leyti sem heimsfaraldur skall á.
Víkurfréttir sýndu frá opnuninni í beinni útsendingu á Facebook-síðu
sinni en Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri, tendraði ljós á merki hót-
elsins á gafli þess og opnaði það þannig formlega.
Forráðamenn hótelsins með Ingvari Eyfjörð og Rósu Ingvarsdóttur hjá
Aðaltorgi, einum af aðaleigendum þess, voru að sjálfssögðu í eldlínunni
ásamt fleiri starfsmönnum sem hafa beðið eftir þessum degi. Hótelstjórinn
er hollenskur og heitir Hans Prins og hann sagði allt tilbúið og bauð Suður-
nesjamenn og aðra velkomna í mat og drykk og gistingu og þjónustu af
bestu gerð.
Miklu færri voru við formlega opnun vegna veirureglna en fjölmargir
heimsóttu hótelið og veitingastaðinn heim næstu daga á eftir. Meðfylgj-
andi myndir voru teknar við formlega opnun.
vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM Í 40 ár // 11