Skessuhorn - 28.04.2021, Blaðsíða 1
Ert Þú í áskrift?
Sími 433 5500
www.skessuhorn.is
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 17. tbl. 24. árg. 28. apríl 2021 - kr. 950 í lausasölu
MATSTOFA
GAMLA
KAUPFÉLAGSINS
HÆGT AÐ BORÐA HJÁ
OKKUR OG TAKA MEÐ
Opið alla virka
daga frá 11:30 - 14:00
Sími: 431 4343 / Kirkjubraut 11
www.matstofa.is
KÍKTU VIÐ
Í HJARTA BÆJARINS
Ef þú klippir út þessa auglýsingu
20% afslátt í matstofunni
og kemur með til okkar færðu
Grilled sandwich meal
1.395 kr.
Máltíð
Tilboð gildir út apríl 2021
Gos úr vél frá CCEP fylgir meðBorgarnes:
Akranes: Gosflaska frá CCEP fylgir með
Hjartað slær í
kjördæminu
Í lok síðasta mánaðar var kynntur
til leiks nýr oddviti Viðreisnar í
Norðvesturkjördæmi en það er
Guðmundur Gunnarsson sem
mun leiða listann fyrir kosn-
ingarnar næsta haust. Uppstill-
ingarnefnd Viðreisnar á þó enn
eftir að kynna listann í heild sinni.
Guðmundur þekkir kjördæmið vel
frá störfum sínum og uppvexti í
Bolungarvík. Skessuhorn heldur
áfram kynningu á væntanlegum
frambjóðendum til kjörs í haust.
Sjá bls. 20-21
Safnað fyrir
torfæruhjóli
Sumardagurinn fyrsti fyrir rúmu
ári hverfur Sveinbirni Reyr
Hjaltasyni á Akranesi seint úr
minni. Þann dag lenti hann í
óhappi á motocrossbrautinni við
rætur Akrafjalls, hendist á hjóli
sínu út fyrir braut og lá þar um
tíma eða þar til félagi hans finnur
hann eftir nokkra leit. Sveinbjörn
Reyr brotnar við 6. hryggjarlið
og er lamaður eftir slysið. Næst-
komandi laugardag standa jafn-
aldrar Svenna fyrir áheitastökkum
í Akraneshöfn. Safnað verður fyrir
torfæruhjóli. Sjá bls 16-17
Við hesta-
þjálfun og
reiðkennslu
Á Oddsstöðum í Lundarreykjadal
býr hin sænska Denise Michaela
Weber ásamt manni sínum
Sigurði Hannesi Sigurðssyni og
tveimur börnum þeirra. Denise
hefur verið á Íslandi síðan 2012
og starfar við hestaþjálfun og reið-
kennslu. Blaðamaður Skessuhorns
kíkti í heimsókn til Denise, en
hún er þessa dagana mest heima
enda nýbúin að eignast sitt annað
barn.
Sjá bls. 22
Heyrist vel í
henni
Sigrún Ríkharðsdóttir gefur
venjulega allt í það sem hún tekur
sér fyrir hendur. Það fer ekki
framhjá nokkrum manni þegar
hún er mætt á völlinn að styðja
Skagamenn í boltanum. Hvatn-
ingahróp hennar bergmála frá
stúkunni, inn á völlinn og í næsta
nágrenni. Hún og þéttur kjarni
stuðningsmanna hafa haldið hóp-
inn til margra ára og láta vel í sér
heyra á öllum leikjum. Nú þegar
boltinn fer að rúlla á Íslands-
mótinu er ekki úr vegi að heyra í
stuðningsmanni ÍA nr. 1.
Sjá bls. 18
arionbanki.is
Hraðþjónusta fyrir eldri borgara
Þú hringir í þjónustuverið í síma 444 7000 og velur 4
Íslandsmótið í knattspyrnu fer af stað um næstu helgi í Pepsí Max deild karla.
Skagamenn sækja Val heim á Hlíðarenda á föstudaginn klukkan 20 í opnunar-
leik mótsins. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð2 Sport. Mjólkurbikarinn
heldur sömuleiðis áfram um helgina með fjölda leikja þar sem t.d. Kári tekur á
móti Skallagrími í sannkölluðum Vesturlandsslag. Meðfylgjandi mynd var hins
vegar tekin á Hellissandsvelli á mánudaginn. Þar tók Reynir á móti Afureldingu
í tímamótaleik. Reynir tekur í fyrsta sinn þátt í Íslandsmóti meistaraflokks karla
og jafnframt var þetta vígsluleikur á velli heimamanna þar sem umgjörðin er
vissulega í dýrari kantinum. Sjá nánar bls. 26.
Ljósm. af.